Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1966, Blaðsíða 27
Verðlagsmál landbúnaðarins
Eins og kunnugt er rofnaði það samstarf, sem verið
hefur í sexmannanefnd þeirri, sem ákveðið hefur verð-
lag landbúnaðarafurða.
Á síðastliðnu hausti ákvað stjórn Alþýðusambands
íslands að afturkalla tilnefningu á fulltrúa sínum í þess-
ari sexmannanefnd. Varð þá ljóst, að til þess að um
áframhaldandi samstarf neytenda og framleiðenda á
sviði verðlagningar landbúnaðarafurða gæti verið að
ræða, yrði að endurskoða lögin um framleiðsluráð
landbúnaðarins, verðskráningu o. fl.
I því skyni skipaði ríkisstjórnin sjömannanefnd í
nóvembermánuði síðastliðnum og áttu í henni sæti 3
fulltrúar neytenda, 3 fulltrúar framleiðenda og formað-
ur tilnefndur af ráðherra. Frá störfum nefndarinnar var
skýrt í síðasta hefti Tímarits iðnaðarmanna og sam-
kvæmt þeim lögum, sem þessi nefnd gerði drög að,
var ný sexmannanefnd skipuð nú á síðasta sumri. Af
hálfu Landssambands iðnaðarmanna var Otto Schopka
framkvæmdastjóri tilnefndur í nefndina. Um þessar
mundir vinnur nefndin að verðlagningu landbúnaðar-
afurða fyrir verðlagsárið 1966-1967.
Sýningarmól
Skömmu eftir síðasta iðnþing tók stjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna ákvörðun um að taka þátt í iðn-
sýningu með Félagi íslenzkra iðnrekenda, sem halda
skyldi haustið 1966, og tilnefndi af sinni hálfu Björgvin
Frederiksen í sýningarnefnd. Síðar var ákveðið að
fjölga í sýningarnefndinni og var Þórir Jónsson þá til-
nefndur í nefndina af hálfu Landssambands iðnaðar-
manna. Björgvin Frederiksen óskaði eftir að fá lausn
frá störfum um síðustu áramót og var þá Hafsteinn
Guðmundsson, prentsmiðjustjóri skipaður af hálfu
Landssambands iðnaðarmanna í hans stað.
Sýningarnefndin réð Arinbjörn Kristjánsson, tækni-
fræðing, sem framkvæmdastjóra sýningarinnar og hafði
sýningarnefndin og framkvæmdastjóri hennar skrif-
stofuaðstöðu hjá Landssambandi iðnaðarmanna fram
á mitt sumar en þá flutti nefndin starfsemi sína í skrif-
stofuhús íþróttabandalagsins við Sýningarhöllina í
Laugardal. Landssamband iðnaðarmanna lagði tals-
verða vinnu í að fá iðnaðarmenn til að taka þátt í
Iðnsýningunni en því ber ekki að leyna að árangur var
ekki eins góður og skyldi og undirtektir manna heldur
dræmar.
Er því um að ræða hlutfallslega minni þátttöku hjá
félagsmönnum í Landssambandi iðnaðarmanna en i
Félagi íslenzkra iðnrekenda, enda þótt félagsmenn í
Landssambandinu séu margfalt fleiri. Orsaka þessa er
meðal annars að leita til þess hve kostnaður við þátt-
töku í sýningunni er mikill en búast má þó við því að
fyrirtæki, sem taka þátt í sýningunni muni hafa beinan
hagnað af þátttöku.
Sýnmgin var opnuð 30. ágúst s.l. og áætlað er að hún
muni standa yfir til 18. september n.k. Framkvæmdir
við Sýningarhöllina í Laugardal drógust mjög á lang-
inn vegna fjárskorts Sýningarsamtaka atvinnuveganna
hf., og var því ákveðið að auka hlutafé félagsins um
2 millj. króna. Landssamband iðnaðarmanna ákvað að
selja innan sinna vébanda kr. 200.000,00 og var sam-
bandsfélögum og fyrirtækjum ritað bréf um það á síð-
astliðnu vori. Undirtektir voru þó mjög dræmar og
seldist aðeins örlítið brot af þessari upphæð. Var þá
leitað til margra fyrirtækja og einstaklinga um kaup á
hlutabréfum í Sýningarsamtökunum og náðist þannig
sú upphæð að mestu leyti, sem Landssambandið varð
að leggja fram,en afganginn tók Landssambandið sjálft
og mun reyna að selja síðar, þar sem það getur ekki
bundið mikið fé í hlutabréfum.
Útboð og tilboð
Á undanförnum iðnþingum hafa verið gerðar marg-
ítrekaðar ályktanir þess efnis, að nefnd sú, er skipuð
var af viðskiptamálaráðherra árið 1959, til að semja
reglur um útboð og tilboð, hraði störfum, þar sem
mjög aðkallandi er orðið, að slíkar reglur verði settar
hér á landi. Skömmu fyrir áramót var gerð fyrirspurn
á Alþingi að undirlagi Meistarasambands bygginga-
manna um hvað liði störfum nefndarinnar og varð það
til að nokkur skriður komst á málið.
Nú nýlega hefur nefndin lokið við að gera drög að
almennum skilmálum um útboð og tilboð og sent þau
viðskiptamálaráðuneytinu. Er þess að vænta, að ráðu-
neytið sendi þeim samtökum, sem málið varðar, reglur
þessar til athugunar, áður en endanlega verður frá
þeim gengið. Þá er heldur ekki enn ljóst hvernig með
þessar reglur verður farið, þ. e. hvort þær verða gefnar
út af ráðuneytinu sem reglugerð, eða gefnar út af Iðn-
aðarmálastofnun íslands sem staðall. Loks er nú leið
fyrir hendi, sem farin hefur verið t. d. í Danmörku, að
samtök þeirra aðila, sem mikil afskipti hafa af útboð-
um og tilboðum í verk, gera með sér samkomulag um
að fylgja settum reglum í þeim efnum, og eru þá allir
meðlimir samtakanna bundnir þeirri samþykkt.
Fræðslu- og upplýsingastarfsemi
Eftir síðasta iðnþing var rætt við iðnaðarmálaráð-
herra um hugsanlega aukna fjárveitingu til Landssam-
bands iðnaðarmanna til þess að því yrði gert kleyft að
hafa í sinni þjónustu erindreka til að annast upplýs-
inga- og fræðslustarfsemi á sviði félags- og tæknimála
meðal sambandsfélaganna eins og iðnþingið hafði gert
ályktanir um. Iðnaðarmálaráðherra tók þessari mála-
leitan af skilningi og vinsemd og við afgreiðslu fjárlaga
fyrir árið 1966 var samþykkt að hækka framlag ríkis-
sjóðs til Landssambandsins um kr. 300 þús., eða í kr.
600 þús.
Upphaflega var ætlunin að ráða sérstakan mann til
þessa starfs en að vel athuguðu máli taldi stjórnin það
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
83