Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Síða 12

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Síða 12
í septembermánuði s.l. var sænska Iðnþingið haldið í Sundsvall dagana 25.-26. Á þingið var boðið forsetum og framkvæmdastjórum systur- samtakanna á hium Norðurlöndunum. Héðan mættu þeir Sigurður Kristinsson og Þórleifur Jónsson. Fyrr á árinu, eða í maímánuði, var hald- ið aukaþing og þar var samþykkt að SHIO eða Sverige Hantverks- och Industriorganisation og Familjeföretagen, sem einnig er mjög stórt sam- band sameinuðust. Þá var það einnig vitað að Stig Stefanson, sem verið hefur formaður SHIO s.l. 20 ár, rnyndi ekki gefa kost á sér til endur- kjörs. Hinir eiginlegu þingfundir stóðu í tvo daga. Fyrri daginn voru afgreidd hin ýmsu mál og á- lyktanir, sem fyrir þinginu lágu, en þau voru fjölmörg og vel undirbúin fyrir þingið. Flest málin, sem fyrir þingið eru lögð, eru komin frá aðildarfélögum, þannig að þau liafa sent stjórn sambandsins málin með ósk um að þau verði lögð fyrir þingið. Stjórnin lætur síðan nefndir vinna í viðkomandi málum, fær um þau álit og umsögn og sendir ályktanirnar síðan, ásamt sinni umsögn í einu lagi með þeim málum sem hún hyggst leggja fyrir þingið, til allra aðildarfélag- anna áður en til þingsins kemur. Þarna voru fjöl- mörg mál afgreidd á tiltölulega skömmum tíma, vel undirbúin og fulltrúar höfðu mótaða afstöðu til þess. Seinnipart fyrri dagsins fór fram nokkurs kon- ar kveðjuathöfn, þar sem Stig Stefanson var þökk- uð margvísleg störf Iians fyrir samtökin um 20 ára skeið. Fulltrúar systursamtakanna fluttu þarna allir ræður og færðu Stig miklar og góðar þakkir fyrir forystu hans um fjölmörg mál um tveggja áratuga skeið. Sigurður Kristinsson flutti Stig þakkir og kveðjur frá íslenskum iðnaðar- mönnum í Landssambandi iðnaðarmanna og Slig Stejanson jormaöur i 20 ár, en lét nú aj störjum, rœÖir hér við ejtirmann sinn, Sven Olav Trafj. Sænska iðnþingið F ormannaskifti Sigurður Kristiusson jjakkaði sérstaklega alla þá vinsemd senr Stig og hans ágæta kona, Marta, hafa ávallt sýnt í garð Islendinga, hann kallaði þau hjón til sín og af- hendi þeim gjafir, sem örlítinn Jrakklætisvott fyr- ir Jreirra miklu störf. Þarna voru einng heiðraðir margir starfsmenn SHIO fyrir margháttuð störf hjá samtökunum. Að Jressu loknu voru kallaðir til sviðs Finn Gulbransen, blikksmíðameistari og forseti Nor- ges Handverkerforbund, Eivind Halle, fram- kvæmdastjóri sömu samtaka, Sigurður Kristins- son, forseti Landssambands iðnaðarmanna og Matti Niemi, formaður finnsku samtakanna og voru Jreir allir sæmdir gullorðu Sveriges Hant- verks og Industriorganisation. Síðar um kvöldið var svo hátíðaveisla sem stóð með miklum glæsibrag fram á nótt. Daginn eftir var Jringi fram haldið við af- gTeiðslu og umræður mála, m. a. kom þá Tor- björn Felldin, forsætisráðherra til Jrings og flutti erindi og skýrði frá helstu hugmyndum og að- gerðum stjórnvalda varðandi iðnað. Þinginu lauk síðdegis Jrennan dag með stjórnarkoningu. Nýr formaður var kjörinn einróma Sven Ola Tráff, en hann hefur verið formaður Familje- företagen og verið Jrar mikilvirkur í forystu. Hann hefur verið í forystu bílgreinamanna og vel þekktur meðal stéttarbræðra sinna hér lieima, auk Jressa er Tráff Jringmaður og hefur Jrar beitt sér fyrir umbótum sænskum iðnaði til hagsbóta. Unr leið og við kveðjum og Jrökkum Stig fyrir störfin á liðnum árum, bjóðum við Ola Tráff hjartanlega velkominn til samstarfs og þykjumst fullvissir um að Jrekking hans og dugnaður að Jressum málum muni verða norrænu samstarfi iðnaðarmanna lyftistöng í framtíðinni. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 8

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.