Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Qupperneq 17
Línurit 7 Vinnuslys 1970-1977
Mannlegar orsakir
Yfirsjón í starfi
Ónógur búnaður
Linurit 7 sýnir mannlegar orsakir vinnuslysa á árunum 1970—1977■ Niðurstöðutölur eru mjög svipaðar og fram koma i vinnu-
slysaskýrslum annarra Norðurlandaþjóða.
ríkisins mögulegt“, að verkamaðurinn ,,haíi við
slíka hrösun, sem hann hefur lýst, komist í snert-
ingu við skurðarhjól á vél þeirri, er hann stóð
við“. IJess má geta, að ekkert var athugavert við
útbúnað llökunarvélarinnar að mati starfsmanns
öryggiseftirlitsins. Meirihluti réttarins komst
þannig að þeirri niðurstöðu, að einhver starfs-
maður frystihússins hafi af gáleysi valdið því, að
verkamaðurinn varð fyrir slysinu. Beri frystihús-
ið því eitt ábyrgð á slysinu. Einn dómenda hæsta-
réttar skilaði sératkvæði og kom þar fram, að
vélin, sem verkamaðurinn slasaðist í, hafi verið
búin lögmæltum hlífum. Einnig, að þrjú vitni,
er í salnum voru, þar af tvö, sem unnu við sömu
vél og hinn slasaði, hafi ekki orðið sjónarvottar
að slysinu. Þá segir í sératkvæðinu ,að liinn slas-
aði hafi eigi sagt til um, hverjir unnu við hina
flcikunarvélina, og eigi liafi verið gerður reki að
því að leiða það í ljós með vitnaleiðslu. Með til-
liti til þessara málavaxta sé því ósannað, að slysið
hafi borið að hendi með nokkrum þeim hætti,
sem frystihúsið skuli bera ábyrgð á að lögum.
Hér gefur að líta nokkrar töflur og línurit
varðandi vinnuslys á árunum 1970-1977, ásamt
viðeigandi skýringum, sem þeim fylgdu, en töfl-
urnar og línuritin birtust í áðurgreindri skýrslu
um starfsemi Oryggiseftirlits ríkisins. Þess skal að
lokum getið, að Oryggiseftirlit ríkisins er til húsa
að Síðumúla 13 í Reykjavík, en núverandi örygg-
ismálastjóri er Friðgeir Grímsson.
Sendum iðnaðarmönnum um land allt
beztu jóla- og nýárskveðjur
Hárgreiðslumeistarafélag íslands
Félag löggiltra rafverktaka í Reykjavík
Málarameistarafélg Reykjavíkur
Meistarafélag byggingamanna Norðurlandi
vestra
Meistarafélag húsasmiða
Félag pípulagningamanna
Meistrafélag byggingamanna Norðurlandi,
Akureyri
Meistarafélag byggingamanna
Vestmannaeyjum
Meistarafélag iðnaðarmanna Hafnarfirði
Samband málm- og skipasmiða
Félag blikksmiðjueigenda
Félag dráttarbrauta og skipasmiðja
Bílgreinasambandið
Meistarafélag húsgagnabólstrara
Félag húsgagna og innr. framleiðenda
Landssamband bakarameistara
Meistarafélag hárskera
Úrsmíðafélag íslands
Iðnaðarmannafélagið Hafnarfirði
Iðnaðarmannafélag Suðurnesja
Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík
Trésmiðjan Reynir sf.
Netagerðin Ingólfur
Ofnasmiðjan hf.
Stilling hf.
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
13