Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Side 22
Frestun tolla
lækkana
Bré£ F.í.i. til
forsætisráðherra
í fjárlagafrumvarpi, sem lagt
var fram á Alþingi í gær, segir
svo í athugasemdum:
„I frumvarpinu er gert ráð
fyrir lækkun aðflutningsgjalda í
samræmi við samning urn aðild
íslands að EFTA og samning við
EBE. I samstarfssamningi stjórn-
arflokkanna er gert ráð fyrir „að
samkeppnisstaða íslensks iðnað-
ar verði tekin til endurskoðunar
og spornað með opinberum að-
gerðum gegn óeðlilegri sam-
keppni erlends iðnaðar, m. a.
með frestun tollalækkana". Ekki
er fullráðið með hvaða hætti
þetta verður gert. Sérstök nefnd
þriggja ráðuneyta hefur málið til
athugunar."
Haft er eftir formanni eins
stjórnarflokkanna í málgagni
flokks hans í dag um fjárlaga-
frumvarpið m. a.:
„Loforð hefur hins vegar ver-
ið gefið um það, að við afgreiðslu
frumvarpsins verði tekinn upp
nýr tekjuliður, sem samsvarar
þessari tollalækkun og sem
myndi þjóna því að vernda ís-
lenskan iðnað í samkeppni við
innfluttar vörur“.
Að framanrituðu er Ijóst, að
málefnið hefur ekki enn verið
til lykta leitt innan ríkisstjórn-
arinnar og viljum vér í því sam-
bandi benda yður, herra forsæt-
isráðherra, sérstaklega á, að nú
eru einungis réttir tveir mánuð-
ir þar til tollar eiga næst að
hækka ,samkvæmt samningi við
EFTA og EBE, en samtals ein-
ungis 14 mánuðir eftir af aðlög-
unartímanum í heild. í þessu
sambandi viljum vér ennfremur
ítreka, að frestun tollalækkunar
er einungis önnur hlið þessa
máls, en hin hliðin eru raunhæf-
ar iðnþróunaraðgerðir til að
tryggja samkeppnisstöðu íslensks
iðnaðar og þar með lífsafkomu
þúsunda manna í þessu landi.
Vér gerum fastlega ráð fyrir
að bæði frestun tollalækkana og
ýmsar iðnþróunaraðgerðir komi
til kasta löggjafans og er því
raunverulega um enn skemmri
tíma að ræða en 2 mánuði, ef
einhverjar |>essara aðgerða eiga
að taka lagagildi um næstkom-
andi áramót.
Um athugun starfshóps
þriggja ráðuneytavar oss tilkynnt
12. október s.l. Var óskað eftir á-
bendingum vorum í því sam-
bandi og þær sendar iðnaðar-
ráðuneyti í bréfi 20. október s.l.
Fylgir það hjálagt í ljósriti. Frá
starfshópnum höfum vér ekkert
heyrt frekar. Virðist oss að málið
þoli ekki frekari bið eftir að at-
hugun starfshópsins ljúki, enda
er hér um að ræða málefni til
ákvarðanatöku hjá stjórnmála-
mönnum en ekki athuganir hjá
embættismönnum.
Þar sem hér er um að ræða
grundvallaratriði tilveru og þró-
unarmöguleika íslensks fram-
leiðsluiðnaðar, óskar stjórn Fé-
lags íslenskra iðnrekenda eftir
sérstökum fundi með yður og
öðrum ráðherrum úr ríkisstjórn-
inni, sem fjalla um málefni
tengd iðnaði, þar sem rætt verði
hvernig ríkisstjórnin hyggst
standa við það ákvæði samstarfs-
yfirlýsingar sinnar, sem vitnað
var í í upphafi bréfs þessa.
Félag íslenskra iðnrekenda er
málsvari þess liluta íslensks iðn-
aðar, sem þetta mál snertir, og
væntir því að þér getið orðið við
beiðni þess um sérstakan fund
fyrir lok næstkomandi viku.
Virðingarfyllst,
Félag íslenskra iðnrekenda
Davíð Sch. Thorsteinsson.
Um stefnu L.I.
varðandi frestun
fríverzlunar
Til áréttingar stefnu sinni og
viðhorfum varðandi þá hug-
mynd að fresta tollalækkunum
gagnvart EFTA og EBE og/eða
gera aðrar sambærilegar tíma-
bundnar ráðstafanir til þess að
búa iðnaðinn betur undir aukna
samkeppni vill stjórn Landssam-
bands iðnaðarmairna taka eftir-
farandi fram:
Þau heildarsamtök, sem eru
málsvarar þess hluta iðnaðarins
er þessi mál varðar eru tvö,
Landssamband iðnaðarmanna og
Félag íslenskra iðnrekenda.
Að dómi stjórnar Landssam-
bandsins eru þessi samtök að
mestu sammála um, að þær að-
gerðir, sem gera þarf til eflingar
iðnþróunar hér á landi, ættu að
vera sem almennastar. í þessu
felst að fyrst og fremst þurfi að
skapa öllum iðnaði hér á landi
viðunandi starfsskilyrði og ekki
síðri en keppinautarnir njóta
hver í sínu landi.
Gengisskráningin þarf að vera
á þann hátt, að fremur sé til
hagsbóta fyrir innlendan iðnað
en ekki hliðholl erlendri fram-
leiðslu eins og oft hefur verið
raunin. Aðgangur iðnaðarins að
lánsfé, bæði til rekstrar- og stofn-
lána, þarf að vera í samræmi við
þá möguleika, sem hann hefur
(oft fram yfir aðrar atvinnu-
greinat') til þess að ávaxta fjár-
magnið. Og önnur rekstrarskil-
yrði þurfa að vera með þeim
liætti, að sanngjarnt sé. Hins
vegar eru þetta allt atriði, sem
þurfa að vei'a í lagi og lagfæra
þarf hvort sem li'estað verður
EFTA aðild eða ekki.
Samtökin hafa bæði óskað eft-
18
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA