Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Side 26

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Side 26
Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var stofnað 11. nóvember 1928 og er sagt í fundargerðabók þannig frá: „í októbermánuði síðastliðnum komu saman nokkrir iðnaðarmenn hafnfirskir í litla fundar- salnum í samkomuhúsi Hafnarfjarðar. Þar var rætt um hver nauðsyn bæri til þess að stofnað yrði til iðnaðarmannafélags í Hafnarfirði, og voru allir viðstaddir á einu máli um það, að kos- in yrði þriggja manna nefnd til að undirbúa málið. í nefndina voru kosnir þeir Davíð Krist- jánsson bæjarfulltrúi, Bror Westerlund vélfræð- ingur og Ernil Jónsson verkfræðingur. Hinn 11, nóvember 1928 boðaði nefnd þessi til fundar, og voru þar mættir 24 menn. Nefndin lagði eindregið til, að félagið yrði stofnað, og lagði fyrir fundinn uppkast að lögum fyrir félagið og fundarsköpum. Lög þessi og fund- arsköp voru sniðin eftir lögurn og fundarsköp- um Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík og voru samþykkt með minni háttar breytingum. í fyrstu stjórn félagsins voru kosnir: Emil Jónsson for- maður, Davíð Kristjánsson ritari og Ásgeir G. Stefánsson gjaldkeri. Á næsta fundi gengu 5 nýir f'élagar inn og eru stofnendur taldir 29. I ávarpi á 40 ára afmæli félagsins segir Emil Jónsson svo frá um stofnun félagsins: „Lögin um iðju og iðnað voru samþykkt á Al- þingi 1927. Þessi lög marka tímamót um stöðu iðnaðarmanna í þjóðfélaginu. Þó að þessum lög- um hafi nokkrum sinnum verið breytt, hefur meginefni þeirra staðið óhaggað síðan, en það er að eingöngu meistarar og sveinar og iðnnemar hafi rétt til að stunda iðnaðarvinnu. Þetta var svo mikil réttarbót, að ekki gat hjá því farið, að iðnaðarmenn víðss vegar um landið stofnuðu til samtaka um það að standa vörð um Jressi réttindi sín og tryggja, að lögin yrðu ekki sniðgengin. Og mundi ég segja, að þetta hefði verið megintilefni Jress, að Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var stofnað rúmlega ári síðar, eða 1 I. nóvember 1928. Þó að iðnráð, fyrir frumkvæði Iðnaðarmannafé- lagsins og iðnaðarmanna, tæki að sér nánari út- færslu laganna og ákvörðun um réttindi manna, sem þá fóru nokkuð á milli mála, var það þó iðn- aðarmannafélagið sem átti frumkvæðið. Annað atriði, sem einnig átti nokkurn Joátt í stofnun félagsins, var það, að tveim árum áður hafði verið stofnaður einkaskóli, kvöldskóli, fyrir iðnaðarmenn í Hafnarfirði, en Jjar hafði áður enginn slíkur skóli verið til, en áhugi varð fljót- lega fyrir hendi um, að þessum skóla yrði komið í fast og varanlegt form. Engum stóð Joað þá nær en iðnaðarmönnum sjálfum að koma því máli á nokkurn spöl. Því var Jrað, að í fyrstu lögunr fé- Iðnaðarmanna- félagið í Hafnarfirði 50 ára 11. nóv. 1978 lagsins var ákveðið, að Jrað skyldi taka að sér rekstur skólans og ábyrgjast kostnaðinn, ef til kæmi að á Jrví þyrfti að lialda. Til þess kom þó að vísu aldrei, að til Jressarar ábyrgðar þyrfti að grípa, allan Jrann tíma, sem skólinn var rekinn á vegum félagsins, þangað til ríkissjóður tók að sér reksturinn .En segja má, að skólinn hafi verið annað tilefnið til Jress, að félagið var stofnað. Mér er Jrað mikil ánægja að hafa verið nokkuð viðriðinn stofnun skólans og rekstur lians í nærri tvo áratugi, og eins við stofnun félagsins, af Jreim ástæðum, sem hér hafa verið greindar. Ég vildi óska hafnfirskum iðnaðarmönnum til hamingju með félagsstofnun sína og rekstur fé- lagsins alla stund síðan og með rekstur iðnskól- ans, Jrangað til ríkissjóður tók við. Aðall iðnaðar- mannsins er að hafa lært til verka, og er Jrað fyrst og fremst ástæðan til Jress, að iðnaðarmenn hafa fengið þau forréttindi, sem Jreim hafa verið gefin með lögunum um iðju og iðnað. Ósk mín til hafnfirskra iðnaðarmanna á fert- ugsafmæli félagsins er sú, að Jreir haldi menntun stéttarinnar í heiðri og noti forréttindi sín, sem Jreim eru veitt með lögunum um iðju og iðnað, hófsamlega.“ Félagið var stofnaðili að Landssambandi iðn- aaðrmanna og hefur alla tíð verið virkur aðili í starfi Jress. Það hefur haldið uppi öflugn félagsstarfi í Hafnarfirði í eigin húsakynnum og verið í for- ystu unr margvísleg mál er iðnað og atvinnumál snertir. Félagið gekkst fyrir stofnun Félags byggingar- manna í Hafnarfirði, sem er sveinafélag og Meist- arafélag iðnaðarmanna í byggingariðnaði. Þá hafði félagið frunrkvæði að Jrví að eigin- TÍMARIT IBNAÐARMANNA 22

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.