Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Page 26
Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var stofnað
11. nóvember 1928 og er sagt í fundargerðabók
þannig frá:
„í októbermánuði síðastliðnum komu saman
nokkrir iðnaðarmenn hafnfirskir í litla fundar-
salnum í samkomuhúsi Hafnarfjarðar. Þar var
rætt um hver nauðsyn bæri til þess að stofnað
yrði til iðnaðarmannafélags í Hafnarfirði, og
voru allir viðstaddir á einu máli um það, að kos-
in yrði þriggja manna nefnd til að undirbúa
málið. í nefndina voru kosnir þeir Davíð Krist-
jánsson bæjarfulltrúi, Bror Westerlund vélfræð-
ingur og Ernil Jónsson verkfræðingur. Hinn 11,
nóvember 1928 boðaði nefnd þessi til fundar, og
voru þar mættir 24 menn.
Nefndin lagði eindregið til, að félagið yrði
stofnað, og lagði fyrir fundinn uppkast að lögum
fyrir félagið og fundarsköpum. Lög þessi og fund-
arsköp voru sniðin eftir lögurn og fundarsköp-
um Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík og voru
samþykkt með minni háttar breytingum. í fyrstu
stjórn félagsins voru kosnir: Emil Jónsson for-
maður, Davíð Kristjánsson ritari og Ásgeir G.
Stefánsson gjaldkeri. Á næsta fundi gengu 5 nýir
f'élagar inn og eru stofnendur taldir 29.
I ávarpi á 40 ára afmæli félagsins segir Emil
Jónsson svo frá um stofnun félagsins:
„Lögin um iðju og iðnað voru samþykkt á Al-
þingi 1927. Þessi lög marka tímamót um stöðu
iðnaðarmanna í þjóðfélaginu. Þó að þessum lög-
um hafi nokkrum sinnum verið breytt, hefur
meginefni þeirra staðið óhaggað síðan, en það er
að eingöngu meistarar og sveinar og iðnnemar
hafi rétt til að stunda iðnaðarvinnu. Þetta var
svo mikil réttarbót, að ekki gat hjá því farið, að
iðnaðarmenn víðss vegar um landið stofnuðu til
samtaka um það að standa vörð um Jressi réttindi
sín og tryggja, að lögin yrðu ekki sniðgengin. Og
mundi ég segja, að þetta hefði verið megintilefni
Jress, að Iðnaðarmannafélagið í Hafnarfirði var
stofnað rúmlega ári síðar, eða 1 I. nóvember 1928.
Þó að iðnráð, fyrir frumkvæði Iðnaðarmannafé-
lagsins og iðnaðarmanna, tæki að sér nánari út-
færslu laganna og ákvörðun um réttindi manna,
sem þá fóru nokkuð á milli mála, var það þó iðn-
aðarmannafélagið sem átti frumkvæðið.
Annað atriði, sem einnig átti nokkurn Joátt í
stofnun félagsins, var það, að tveim árum áður
hafði verið stofnaður einkaskóli, kvöldskóli, fyrir
iðnaðarmenn í Hafnarfirði, en Jjar hafði áður
enginn slíkur skóli verið til, en áhugi varð fljót-
lega fyrir hendi um, að þessum skóla yrði komið
í fast og varanlegt form. Engum stóð Joað þá nær
en iðnaðarmönnum sjálfum að koma því máli á
nokkurn spöl. Því var Jrað, að í fyrstu lögunr fé-
Iðnaðarmanna-
félagið í Hafnarfirði
50 ára 11. nóv. 1978
lagsins var ákveðið, að Jrað skyldi taka að sér
rekstur skólans og ábyrgjast kostnaðinn, ef til
kæmi að á Jrví þyrfti að lialda. Til þess kom þó
að vísu aldrei, að til Jressarar ábyrgðar þyrfti að
grípa, allan Jrann tíma, sem skólinn var rekinn á
vegum félagsins, þangað til ríkissjóður tók að sér
reksturinn .En segja má, að skólinn hafi verið
annað tilefnið til Jress, að félagið var stofnað.
Mér er Jrað mikil ánægja að hafa verið nokkuð
viðriðinn stofnun skólans og rekstur lians í nærri
tvo áratugi, og eins við stofnun félagsins, af Jreim
ástæðum, sem hér hafa verið greindar.
Ég vildi óska hafnfirskum iðnaðarmönnum til
hamingju með félagsstofnun sína og rekstur fé-
lagsins alla stund síðan og með rekstur iðnskól-
ans, Jrangað til ríkissjóður tók við. Aðall iðnaðar-
mannsins er að hafa lært til verka, og er Jrað
fyrst og fremst ástæðan til Jress, að iðnaðarmenn
hafa fengið þau forréttindi, sem Jreim hafa verið
gefin með lögunum um iðju og iðnað.
Ósk mín til hafnfirskra iðnaðarmanna á fert-
ugsafmæli félagsins er sú, að Jreir haldi menntun
stéttarinnar í heiðri og noti forréttindi sín, sem
Jreim eru veitt með lögunum um iðju og iðnað,
hófsamlega.“
Félagið var stofnaðili að Landssambandi iðn-
aaðrmanna og hefur alla tíð verið virkur aðili í
starfi Jress.
Það hefur haldið uppi öflugn félagsstarfi í
Hafnarfirði í eigin húsakynnum og verið í for-
ystu unr margvísleg mál er iðnað og atvinnumál
snertir.
Félagið gekkst fyrir stofnun Félags byggingar-
manna í Hafnarfirði, sem er sveinafélag og Meist-
arafélag iðnaðarmanna í byggingariðnaði.
Þá hafði félagið frunrkvæði að Jrví að eigin-
TÍMARIT IBNAÐARMANNA
22