Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1978, Page 31
greinum eiga rétt til sérstakrar
kennslu við sitt hæfi. Kennsla
þessi getur farið fram við fram-
lialdsskóla eða í sérstofnunum.
Nánar skal kveðið á um
kennslu Jjessa í reglugerð.
f2. gr.
Menntamálaráðuneytið hefur
forgöngu um gerð áætlana um
umbætur í starfi skóla, rann-
sókna- og tilraunastarf í skólum,
námsskrárgerð, samningu náms-
efnis eftir því sem þörf krefur og
gerð leiðbeininga um námsmat.
Ennfremur skal komið á kennslu-
fræðilegu leiðbeiningastarfi. Ár-
leg framkvæmdaáætlun skal
fylgja tillögum til fjárveitinga í
fjárlögum.
13. gr.
Árlegur starfstími framhalds-
skóla skal að jafnaði vera 9 al-
manaksmánuðir. Setja skal í
reglugerð ákvæði um skiptingu
starfstíma í annir, virkar kennslu-
vikur og próftíma svo og um
fjölda og lengd kennslustunda.
V. Skólaskipan
14. gr.
Skipan námsbrauta á skóla-
stofnanir skal haga með tilliti til
aðstæðna, og koma eftirtaldir
kostir til greina: Mismunandi
brautir innan sömu stofnunar,
skipulagslega tengdar brautir í
aðskildunt stofnunum eða stakar
brautir í sérgreindum stofnun-
um. Þar sem nemendafjöldi og
önnur skilyrði leyfa, skal leitast
við að sameina mismunandi
námsbrautir í einni skólastofn-
un.
I hverjum landshluta skal vera
eins fjölbreytt val námsbrauta og
við verður komið.
15. gr.
Menntamálaráðuneytið ákveð-
ur hvar starfrækja skuli fram-
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
haldsskóla og til hvaða náms-
brauta liver skólastofnun taki,
hvort tveggja í samráði við hlut-
aðeigandi fræðsluráð sem skulu
leita álits skólanelnda og sveita-
stjórna eftir því sem við á, sbr.
19. gr.
16. gr.
Menntamálaráðuneytið lætur
gera áætlun til 5 ára um skipan
námsbrauta á framhaldsskóla-
stigi og framkvæmdir til að koma
þeirri skipan á. Skal áður afla til-
lagna fræðsluráða fyrir hvert
fræðsluumdæmi. Áætlunina skal
endurskoða á tveggja ára fresti
til næstu fimm ára. Árleg fram-
kvæmdaáætlun skal fylgja tillög-
um til fjárveitinga í I járlögum.
17. gT.
Heimilt er að gera samning við
stofnun eða fyrirtæki um að ann-
ast tiltekna þætti verklegrar
menntunar í samstarfi við fram-
haldsskóla. Annars vegar getur
verið um að ræða samning skóla
við fyrirtæki eða stofnun sem
samþykktur skal af rekstraraðil-
um skólans og hinsvegar samning
milli nenranda og meistara eða
fyrirtækis sem staðfestur skal af
menntamálaráðuneytinu eða að-
ila í umboði þess.
Nám senr fer franr utan skóla
samkvæmt þessari grein skal ætíð
háð eftirliti, skv. nánari ákvæð-
um í reglugerð.
VI. Stjórn
18. gr.
Menntamálaráðuneytið fer
nreð yfirstjórn þeirra málefna er
lög þessi taka til nenra öðruvísi
sé ákveðið í lögum um einstakar
námsstofnanir.
Ráðuneytinu til aðstoðar við
nrótun og samræmingu nregin-
stefnu í málefnum framhalds-
skóla og áætlanagerð skv. 12. og
16. gr. er framhaldsskólaráð, skip-
að fornrönnunr námssviðsnefnda,
sbr. 3. mgr. þessarar greinar, ein-
um fulltrúa fyrir grunnskóla og
öðrum fyrir háskóla, tveimur
fulltrúum tilnefndum af Alþýðu-
sanrbandi íslands, tveinrur til-
nefndum af Vinnuveitendasam-
bandi íslands, einunr tilnefndum
af Stéttarsarnbandi bænda, ein-
unr tilnefndum af Kvenfélaga-
sambandi Islands, tveimur til-
nefndum af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, einum tilnefndum
af Sambandi íslenskra samvinnu-
félaga, átta tilnefndum af nenr-
endum við framhaldsskóla,
tveimur tilnefndunr af samtök-
unr kennara á franrhaldsskóla-
stigi, einunr tilnefndum af sarrr-
tökum skólastjóra við framhalds-
skóla, einum tilnefndum af
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja, einum tilnefndum af
Bandalagi háskólamanna svo og
fulltrúa menntamálaráðuneytis-
ins og er hann formaður ráðsins.
Menntamálaráðherra skipar
framhaldsskólaráð til fjögurra
ára í senn. Varamenn skulu skip-
aðir nreð sama hætti.
Fyrir hvert nánrssvið skal skipa
ráðgefandi nefnd, námssviðs-
rrefnd. Menntamálaráðuneytið
skipar formann og ritara, senr
jafnframt er varaformaður, til
fjögurra ára í senn, en jafnframt
tilnefnir hver námsbrautarnefnd,
sbr. 4. mgr. þesarar greinar, á
viðkomandi námssviði tvo full-
trúa til setu í nefndinni. Vara-
menn skulu skipaðir með sanra
hætti og aðalmenn. Námssviðs-
nefndir samræma störf náms-
brautamefnda og eru ráðgjafar-
og tillöguaðilar um inntak og til-
högun nánrs, hver á sínu nánrs-
sviði.
Fyrir hverja námsbraut, eða
samstæðu skyldra riámsbrauta,
skal skipuð allt að 5 manna ráð-
gefandi nefnd, námsbrautar-
nefnd. Starfi aðeins ein nánrs-
brautarnefnd á tilteknu náms-
sviði fer hún einnig með verkefni
námsviðsnefndar. Menntamála-
ráðuneytið skipar námsbrautar-
nefndir til fjögurra ára í senn.
27