Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Blaðsíða 15
UTANRÍ KISVIÐ SKIPTI
ISLANDS 1988
EFTA 22% AÐRIR 26%
INNFLUTNINGUR
ÚTFLUTNINGUR
Heimild: Hagtiöindi Hagstofu Islands
fyrirtækja kallar á meiri
möguleika minni
fyrirtækja. Það er heldur
engin tilviljun að nú færist í
vöxt aö stór-
fyrirtækjum sé skipt
upp í minni
sjálfstæðar einingar.
í Bandaríkjunum, Ítalíu og
Vestur-Þýskalandi hefur
sýnt sig að miklir
möguleikar liggja í
samvinnu fyrirtækja með
nettengingum milli
fyrirtækja og geti þau þess
vegna í vaxandi mæli
unnið sem undirverktakar
stærri fyrirtækja. í
Vestur-Þýskalandi hafa t.d.
fjöldi smáfyrirtækja í
rafiðnaði sameinast um
undirverktakastarfsemi
fyrir BMW
bílaverksmiðjurnar. Og á
Norður-Ítalíu færist mjög í
vöxt að fyrirtæki vinni
saman aðframleiðslu hluta
fyrir bílaverksmiðjurnar
þar. Með slíku samstarfi
getaeinstökfyrirtæki
framleitt mismunandi hluta
af sömu framleiðslu
og/eða sameinast um
stjórnun, tölvumál, nýtingu
framleiðslutækja og
tækniþróun.
Með þessum hætti geta
smáfyrirtækin nýtt sér
eiginleika, sem
stórfyrirtækin búa yfir, þ.e.
þau geta tekið að sér
stærri verkefni með því að
vinna saman og jafnframt
haldið þeim eiginleikum
sínum að vera
sveigjanlegri, t.d.
minni
undirbúningstími
fyrir verk, minni
yfirstjórn og styttri
boðleiðir innan
fyrirtækis. Fyrirtækin
geta líka með stuttum
fyrirvara komið inn í slíkt
samstarf og farið úr því, allt
eftir þörfum og aðstæðum
á hverjum tíma.
Slík fyrirtækjanetkerfi
geta auðvitað náð út fyrir
landamæri einstakra ríkja.
Danir eru farnir að líta mjög
til Þýskalands og annarra
Norðurlanda um svona
samstarf. Reynslan hefur
kennt Dönum að það eru
ekki síst fyrirtæki á
Norðurlöndum sem hafa
áhuga á að vinna með
dönskum fyrirtækjum og
hafa þá í huga að komast
með annan fótinn inn á
EB- markað. Nýir
tæknilegir möguleikar
með notkun
tölvutækninnar gera það
ennfremur auðveldara að
koma á fyrirtækjasamstarfi.
Samstarf fyrirtækja þarf þó
ekki endilega að vera
miðað við sölu á
EB-markaði. Kosturvið
slíkt samstarf yfir
landamæri getur verið að
auka þekkingu á sölu- og
markaðsstarfi á erlendum
mörkuðum. Sérstakt
hagræði að samstarfi
fyrirtækja yfir landamæri
inn á EB-markaði er að þá
er auðveldara að öðlast
hlutdeild í rannsóknar- og
þróunarstarfi. Einnig er
hægt að hugsa sér
samstarf þar sem
sérstaklega er um að ræða
starfsemi fyrir opinbera
aðila, ýmist innanlands
eða í öðrum EB-löndum
eða í Þriðja heims löndum.
Fyrir lönd innan EB og
reyndar að vissu leyti fyrir
þriðjulönd gildir að skylda
er að bjóða út opinber
innkaup umfram tiltekna
upphæð í opinberu útboði
Opinberar stofnanir skulu,
samkvæmt nýjustu reglum
EB hér að lútandi, tilkynna
öll áformuð stærri innkaup.
Lokaorð
Ljóst er að fleiri ríki fá ekki
aðild að EB á næstu árum,
a.m.k. ekki fram til 1992 en
reikna má með að sú
afstaða verði endurskoðuð
þegar reynsla er komin á
sameiginlegan innri
markað. Þaðliggurþvífyrir
að ísland mun ekki verða
aðili að sameiginlegum
innri markaði
Efnahagsbandalagsins á
næstu árum. Engu að
síður er mikilvægt að
stjórnvöld og samtök
atvinnulífsins, ekki bara
fylgist með því sem er að
gerast í bandalaginu,
heldurfari þegar að
undirbúa íslenskt
atvinnulíf undir stóraukna
samkeppni. Af
framansögðu má ráða að
liður í því hlýtur að vera
breytt hugarfar
gagnvart
smáfyrirtækjarekstri
og styrking
íslenskrar
smáfyrirtækjastefnu,
sem Landssamband
iðnaðarmanna hefur m.a.
boðað í bráðum 60 ár.