Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1989, Blaðsíða 39
þjónustusvið. Ennfremur
taldi nefndin að eðlilegt
væri að breyta nafni
samtakanna og lagði hún
fyrir sambandsstjórn
Landssambandsins tvær
hugmyndir í því efni með
því fororði að það nafnið,
sem sambandsstjórn veldi
yrði lagt fram sem tillaga á
aukaþinginu. Af tveimur
nöfnum:
a) Landssamband
meistara- og iðnfyrirtækja
og b) Landssamband
iðnfyrirtækja valdi
sambandsstjórn hið
síðarnefnda. Á
aukaiðnþinginu voru allar
tillögur nefndarinnar
samþykktar, nematillagan
um nafnabreytingu.
Samkomulag náðist um að
fresta ákvörðunum um
hana enn um sinn.
Auk beinna tillagna um
breytingu á lögum
Landssambandsins
samþykkti aukaiðnþingið
ályktun um skipulag og
starfssvið
Landssambandsins. í
ályktuninni segir, að
mikilvægt sé að efla
Landssamband
iðnaðarmanna sem
sameiginlegan málsvara
atvinnurekenda í iðnaði.
Ein áhrifaríkasta leiðin að
því markmiði væri sú, að
Landssambandinu yrði
skipt í deildir eftir
starfsgreinum, sem hefðu
á sinni könnu
stefnumörkun og málefni á
sérsviði viðkomandi
starfsgreinar. Ennfremur
að Ijóst sé, að
atvinnurekendasamtök á
borð við Landssambandið
yrðu sýnu öflugra en ella,
ef þau hefðu með höndum
vinnumarkaðs- og
kjaramál auk almennra
mála, sem snerta
starfsskilyrði
iðngreinanna. Þá lagði
þingið til, að starfsemi
Landssambandsins og
aðildarfélaganna verði
samræmd betur og starfið
gert markvissara en nú er
með því að koma skrifstofu
L.i. og félaganna í
sameiginlegt húsnæði.
Þar sem þingið taldi en
Starfsfólk Landssambands iðnadarmanna.
skorta nokkuð á að
aðildarfélögin væru
reiðubúin til að taka
endanlega afstöðu í þessu
efni, beindi það ákveðnum
spurningum til félaganna,
þannig að hægt væri að
leggja ákveðnar tillögur
fyrir næsta reglulega
Iðnþing.
Starfsfólk
Frá því að Iðnþing var
síðast haldið hefur sú eina
breyting orðið á starfsliði
Landssambandsins að
Ágústa Katrín
Guðmundsdóttir, ritari,
hefur látið af störfum og í
hennar stað hefur verið
ráðin María Gunnarsdóttir.
I september s.l. voru
starfsmenn
Landssambandsins, taldir
eftir starfsaldri þessir:
Hulda G. Mogensen,
gjaldkeri - bókari
Þórleifur Jónsson,
framkvæmdastjóri
Helga Hólmsteinsdóttir,
bókari - ritari
Guðlaugur Stefánsson,
hagfræðingur
Sigurbergur Björnsson,
tölvuverkfræðingur
Gunnar I. Hjartarson,
viðskiptafræðingur
Kristján Guðmundsson,
viðskiptafræðingur
Andrés Magnússon,
lögfræðingur
Guðmundur
Guðmundsson, véla- og
rekstrarverkfræðingur
Guðríður Vilhjálmsdóttir,
ritari
María Gunnarsdóttir, ritari
(frá sept. 1989).