Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1992, Blaðsíða 28
Andrés Magnússon, lögfraðingur L.i.:
Islensk iönlöggjöf
og Evrópska
efnahagssvæðið
Búast má við að á næstu
árum eigi sér stað um-
ræða hér á landi um það
hvort halda beri iðnlög-
gjöfinni óbreyttri.
Inngangur
Samningurinn um Evrópskt efnahags-
svæði liggur nú fyrir Alþingi til staðfest-
ingar. Augljóst er að fyrirhuguð þátttaka
okkar þar mun hafa- margvísleg áhrif á
íslenskan iðnað og telur Landssamband
iðnaðarmanna að þegar á heildina er lit-
ið verði þau áhrif til góðs. Eitt af mörg-
um atriðum sem samtökin hafa kannað í
þessu sambandi, er hver áhrif þátttaka
okkar muni hafa á íslensk iðnaðarlög,
einkum að því er lýtur að hinum lög-
giltu iðngreinum. (Hér á eftir verður
orðið „handiðnaður“ notað jöfnum
höndum fyrir „löggiltar iðngreinar“). Er
því tilefni til að fjalla á þessum vettvangi
nokkuð um hvaða áhrif þátttaka í Evr-
ópsku efnahagssvæði muni hafa á iðnað-
arlögin. Einnig verður gerð nokkur
grein fyrir iðnlöggjöf Þýskalands og hún
borin saman við þá íslensku.
Reglup um rekstur á sviðl handiðnað-
ar í Evrópulöndum
Eins og kunnugt er fela íslensk iðnaðar-
lög það í sér að til þess að reka at-
vinnustarfsemi á sviði löggiltra iðngreina
þurfi menn að hafa meistarabréf. Jafn-
framt fela lögin í sér lögverndun á starfs-
réttindum sveina og meistara. Þessum
lagaákvæðum tengist síðan það fyrir-
komulag, sem gilt hefur um iðnfræðslu
hér á landi, áður skv. iðnfræðslulögum
og nú framhaldsskólalögum. Fyrirkomu-
lag þessara mála er með ýmsu móti í
Evrópulöndum.
Sums staðar, einkum í Suður-Evrópu-
löndum, gilda engin sérstök lög um
þetta efni, og er jafnvel engin formleg
iðnmenntun fyrir hendi. Ollum er því
frjálst að vinna við hvers konar iðnaðar-
störf og standa fyrir rekstri, sambærileg-
um og hjá iðnmeisturum hér á landi. í
sumum þessara landa eru þó til staðar
óformlegar hindranir, sem felast í áhrifa-
mætti rótgróinna samtaka.
í öðrum löndum, svo sem Noregi og
Danmörku, eru starfsheiti iðnmeistara
og/eða iðnaðarmanna lögvernduð, en
hins vegar ekki atvinna þeirra. í þessu