Alþýðublaðið - 03.02.1923, Síða 1
Orðsending til húsmæðra.
í rúmlega fjögur ár hafið þér notað íslenzka smjörlíkið frá
H.f. Smjörlíkisgerðínni, og yður er kunnugt um, að framleiðsla vor
hefir ekki einungis lækkað smjörlíki mikið í verði, heldur líka yfir#
leitt bætt gæði þess að miklum mun.
Vér þykjumst því mega treysta því að þér látið oss ávalt ganga
fyrir viðskiptum yðar, ekki sízt sökum þess, að vér höfum nú end*
urbætt verksmiðju vora eins og unt er, og höfum auk þess fengið
smjörlíkisgerðarmann, sem um fjöldamörg ár hefir unnið að smjörlikí
isgerð í Hollandi, Englandi og Danmörku.
En nú þegar allír bjóða smjörlíki, viljum vér mælast til þess
að þér berið hið góðkunna »Smáraísmjörliki« vort saman við annað
smjörlíki, sem er á boðstólum, þwí að vjer1 wátaiin að smjöriíki
vort þolir aBlan samanburð.
En hvei*sve|ita þolii* pSmára-smjilrlílcið1
allan samanburð.
1. Af því að það er gert úr beztu jurtafeiti sem fáanleg er.
2. Við framleiðsluna er lærður og leikinn sérfræðingur og verk#
smiðjan er nú að öllum útbúnaði eins og fyrsta flokks verkí
smiðjur erlendis.
3. Til tryggingar efnisgæðum smjörlíkisins er öll jurtafeiti
og olía rannsökuð efnafræðislega áður en hún er notuð.
Allar hygnar húsmæðar ættu þvi ávalt að muna eftir því, að
biðja um »Smáraísmjörlikið«; það mun reynast bragðbezt, notadrýgst
og ódýrast.
Húsmæður, dæmið nú sjálfar um gæðin.
Virðingarfylst,
H.f. Smjörlíkisgerðin.
Þannig líta »Smáraísmjörlikis« skökurnur út:
mjeRLixi 1 , Í
rH4Smjörlíkisgetéiní Eíykjavílcl | L J
Prentsmiðja Ágústs SigurSssonar