Fréttablaðið - 14.11.2009, Qupperneq 8
8 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
STJÓRNLAGAÞING. Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra segir
koma til álita að stjórnlagaþing,
taki ekki til starfa í júní á næsta
ári heldur ekki fyrr en á árinu 2011,
„þannig að störf stjórnlagaþingsins
og umfjöllun Alþingis í kjölfarið á
frumvarpi til nýrra stjórnarskipun-
arlaga fari betur saman við kosn-
ingar til Alþingis sem ætla má að
verði vorið 2013,“ eins og forsæt-
isráðherra sagði í framsöguræðu
sinni.
Í stjórnarfrumvarpi um þjóð-
kjörið stjórnlagaþing, sem Jóhanna
mælti fyrir í gær, er gert ráð fyrir
að kosið verði til þingsins samhliða
sveitarstjórnarkosningum 29. maí
næsta vor og að það hefji störf 17.
júní 2010.
Jóhanna sagði að eftir að stjórn-
lagaþing samþykkir frumvarp til
nýrrar stjórnarskrár sé Alþingi
ætlað að taka það til áframhaldandi
meðferðar; það sé skylt samkvæmt
núgildandi stjórnarskrá. Samþykki
Alþingi stjórnarskrárfrumvarpið
sé skylt að rjúfa þing og láta fara
fram almennar þingkosningar. Ný
stjórnarskrá taki fyrst gildi að loknu
samþykki nýs Alþingis.
Þrátt fyrir að niðurstaða stjórn-
lagaþingsins verði ekki bindandi
vegna ákvæða núgildandi stjórnar-
skrár vísaði Jóhanna til þess að ætla
megi að „stjórnmálalegt vægi frum-
varpsins gagnvart Alþingi verði
meira eftir því sem breiðari sam-
staða næst um frumvarpið meðal
þjóðkjörinna fulltrúa stjórnlaga-
þingsins.“ - pg
Forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi um stjórnlagaþing á Alþingi:
Stjórnlagaþing frestist til 2011
FORSÆTISRÁÐHERRA Jóhanna mælti
fyrir frumvarpinu en sagði að til greina
kæmi að fresta þinginu fram til 2011.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
B
R
IN
K
vinningshafar í strika-
merkjaleik knorr
www.knorr.is
Strikamerkjaleik Knorr er lokið og þátttakan var frábær.
Yfir 3100 manns tóku þátt og fyrir hvert innsent umslag
með 10 strikamerkjum gaf Ásbjörn Ólafsson ehf. eina
matvöru til Mæðrastyrksnefndar. Ásbjörn Ólafsson þakkar
kærlega fyrir þátttökuna og óskar vinningshöfum til
hamingju með 100.000 króna verslunarferð í Kringlunni.
Þetta eru heppnu vinningshafarnir:
Bryndís Bára Bragadóttir, Hvolsvelli
Dagmar Sigurðardóttir, Garðabæ
Ingimar Þ. Vigfússon, Reykjavík
Margrét R. Kjartansdóttir, Kópavogi
Mjöll Kristjánsdóttir, Vestmannaeyjum
Þessir versla í Kringlunni
fyrir heilar 100.000 krónur
FÉLAGSMÁL „Fjármálamarkaðir eru
flóknir og stýrast af pólitískum og
efnahagslegum þáttum. Með evr-
unni fækkar óvissuþáttunum og
stöðugleiki eykst. Til lengri tíma
litið er evran því góð fyrir vinnu-
markaðinn,“ segir Vladimír Spidla,
framkvæmdastjóri Evrópusam-
bandsins (ESB) í atvinnu-, félags-
og jafnréttismálum. „Ákvörðunina
um framtíðarskipan gjaldeyris-
mála er ykkar að taka, en ég get
svarað því til að evra hefði góð
áhrif á vinnumarkaðinn.“
Spidla fundaði hér með norræn-
um vinnumálaráðherrum í síðustu
viku og flutti erindi á hádegisfundi
Alþjóðamálastofnunar Háskólans
og fastanefndar framkvæmda-
stjórnar ESB gagnvart Noregi og
Íslandi um aðgerðir til að bregð-
ast við atvinnuleysi. Þar á bæ segir
Spidla í fyrsta sinn hafa verið setta
upp áætlun til að koma jafnvægi á
fjármálamarkaði og það hafi áhrif
á atvinnulífið. „Þetta hefur tek-
ist vel og landsframleiðsla auk-
ist um 4,5 prósent og atvinnuleysi
ekki aukist nema um tvö prósent.“
Þá segir hann líka hafa verið
gerðar breytingar á ráðgjöf ESB
í atvinnumálum sem geri hana
mjög sveigjanlega og margvísleg-
um sjóðum beitt til að efla atvinnu-
stig í aðildarríkjum sambandsins.
Ísland nýtur hins vegar ekki góðs
af aðgerðunum fyrr en inn í sam-
bandið er komið. „Öll þessi vinna
er unnin á þessum grunni Evrópu-
sambandslandanna, en með aðild
yrði Ísland hluti af öllum aðgerðum
sem snerta vinnumarkaðinn og
hefði aðgang að sjóðum sem gagn-
ast landinu,“ segir Spidla.
Þá segir hann mikla óvissu í
spám um atvinnuleysi, en segir
enn búist við auknu atvinnuleysi
innan ESB.
„Við náum svo jafnvægi í þeim
málum á miðju næsta ári eða svo
og förum upp úr þeim tíma að
vinna á atvinnuleysinu.“ Spidla
segir markmiðið að allir hafi
aðgang að vinnu, en litið er á að
svo sé þegar atvinnuleysi er undir
3,0 prósentum. Hann segir horft
til Íslands í þessum efnum, enda
atvinnuleysi mjög lítið hér allt
fram að hruninu í fyrra. „Þið hafið
sýnt okkur að þetta er raunhæft
markmið.“
Meðalatvinnuleysi í ESB er nú
um 9,5 prósent, en Spidla leggur
áherslu á að töluverðu muni þar
meðal þjóða sambandsins. Þannig
sé ástandið einna verst á Spáni þar
sem atvinnuleysi sé um 20 prósent,
en best í löndum á borð við Hol-
land, Austurríki og Danmörku þar
sem atvinnuleysi sé á bilinu 3,0 til
4,5 prósent. olikr@frettabladid.is
Evran betri en krón-
an fyrir atvinnulífið
Vladimír Spidla, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í atvinnu, félags- og
jafnréttismálum, segir stöðugleika stærri myntar betri fyrir atvinnulíf og þar með
atvinnustig. Markvisst er unnið gegn atvinnuleysi innan landa sambandsins.
Í HEIMSÓKN Á LANDINU Vladimír Spidla segir Lissabon-sáttmálann jaðra við byltingu
í réttarfarslegum áhrifum. Félagslegur réttur verði að almennum rétti. „Það þýðir að
öll löndin þurfa að starfa innan þess ramma,“ segir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERSLUN Veltuaukning varð í dagvöruverslun í
október miðað við sama mánuð í fyrra. 3,9 pró-
senta samdráttur varð hins vegar á dagvöruversl-
un á svokölluðu föstu verðlagi, en þá hafa áhrif
verðlagsbreytinga verið tekin út.
Velta minnkaði bæði í húsgagnasölu og raf-
tækjasölu og varð því samdráttur á föstu verðlagi
mikill, 24 prósent í húsgagnasölu og 28 prósent í
raftækjasölu. Fast verðlag gefur mjög góða vís-
bendingu um magnið sem selt er og því ljóst að
Íslendingar kaupa mun minna af húsgögnum og
raftækjum en í fyrra.
Um fjórðungs minni sala varð á áfengi á föstu
verðlagi miðað við sama tíma í fyrra en jókst
lítillega sé horft á krónutölu. Samkvæmt upplýs-
ingum Rannsóknarseturs verslunarinnar sem
tekur þessar tölur saman er október í fyrra þó alls
ekki góður til samanburðar, óvenjumikið magn af
áfengi seldist þá vegna fregna af fyrirhuguðum
hækkunum á áfengi.
Sala á fötum og skóm dregst einnig saman milli
ára, 12 prósent minna selst af fötum og 19 prósent
minna af skóm á föstu verðlagi en í fyrra. Veltan
eykst lítillega í krónum talið.
Bent er á það af Rannsóknarsetrinu að sam-
dráttarskeið í smásölu sem hófst vorið 2008
standi enn. Þess má geta að á síðastliðnum tólf
mánuðum hækkaði verð á dagvöru um 14 prósent,
verð á húsgögnum um 12 prósent, á áfengi um 34
prósent, á fötum um 19 prósent og á skóm um 26
prósent. Kaupmáttur lækkaði um átta prósent að
meðaltali á tímabilinu.
- sbt
Áframhaldandi samdráttur í smávöruverslun miðað við sama tíma í fyrra:
Miklu minna selst af húsgögnum
FÓLK Á HLAUPUM Þrátt fyrir samdrátt í smávöruverslun voru
margir á ferð í Kringlunni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL Launalækkun þing-
manna, ráðherra og embættis-
manna frá því í ársbyrjun verður
fest í sessi til loka næsta árs með
lögum. Frumvarp þess efnis hefur
verið lagt fram á Alþingi.
Í því er kveðið á um að óheim-
ilt verði að endurskoða úrskurði
kjararáðs til hækkunar. Er það
gert til að draga úr útgjöldum rík-
issjóðs á næsta ári til að mæta
stórfelldum tekjusamdrætti ríkis-
sjóðs vegna efnahagskreppunnar,
eins og segir í athugasemdum.
Forsetinn er undanskilinn lög-
unum enda mælir stjórnarskráin
gegn því að laun hans lækki á
kjörtímabili hans. - bþs
Frumvarp um kjararáð:
Festa launa-
lækkun í sessi
VERSLUN „Skaðinn er skeður á
þessu ári,“ segir Pétur Már Ólafs-
son í bókaútgáfunni Veröld sem
kveðst hafa sent samkeppnisyfir-
völdum ábendingu varðandi útgáfu
á sérstökum
bókatíðindum
Forlagsins.
Smærri útgef-
endur hafa
kvartað yfir því
að bókatíðindi
Forlagsins, sem
þau telja sem
markaðsráð-
andi aðila, grafi
undan árleg-
um bókatíðind-
um Félags íslenskra bókaútgefanda
þar sem allir útgefendur hafa getað
kynnt bækur sínar. Stjórn Félags
íslenskra bókaútgefenda hefur því
ákveðið að leggja aukna áherslu á
að kynna sín bókatíðindi. - gar
Bókatíðindi Forlagsins:
Ábending um
samkeppnisbrot
PÉTUR MÁR
ÓLAFSSON
BANDARÍKIN, AP Sarah Palin, fyrr-
verandi varaforsetaefni repúblik-
ana í Bandaríkjunum, staðfestir
í nýútkominni ævisögu sinni að
harðar deilur hafi verið milli
stuðningsmanna sinna og stuðn-
ingsmanna forsetaefnisins Johns
McCain.
Hún viðurkennir að sér hafi
verið meinað að halda ræðu á
kosninganóttinni í nóvember þegar
ljóst var að þau McCain hefðu
tapað fyrir Barack Obama. Hún
sagði einnig að liðsmenn McCains
hafi haldið henni frá fjölmiðlum.
Hún gagnrýnir einnig fréttakon-
una Katie Couric, sem tók frægt
viðtal við Palin sem birtist á sjón-
varpsstöðinni CBS. Palin segist
hafa haft mikið álit á Couric og
þess vegna boðið henni viðtal, en
Couric hafi misnotað það og sleppt
innihaldsríkustu orðunum úr
viðtalinu. - gb
Palin skrifar bók:
Ósátt við ráð-
gjafa McCains
1. Hvað borðaði Guðrún Dögg
Rúnarsdóttir, Ungfrú Ísland, á
sjö stjörnu hóteli í Abú Dabí?
2. Hvaða viðburður er haldinn
í Laugardalshöll í dag?
3. Hvaða rithöfundur sendi frá
sér bókina Gæsku fyrir þessu
jól?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 82
VEISTU SVARIÐ?