Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 16
14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
UPPLÝSINGATÆKNI Á sama tíma og
fastlínutengingum í símkerfi lands-
ins fjölgar lítillega má merkja sam-
drátt í lengd símtala úr kerfinu.
Þetta kemur fram í nýrri samantekt
Póst- og fjarskiptastofnunarinnar
(PFS) á tölfræði fjarskiptamarkað-
arins á fyrri helmingi ársins 2009.
Þegar bornir eru saman fyrstu
sex mánuðir áranna 2007, 2008 og
2009 sést að talað hefur verið 13,9
prósentum skemur í gömlu fastlínu-
símana á þessu ári en gert var árið
2007, eða í 355,6 milljónir mínútna
í stað 413,2 mínútna. Samdráttur í
tímalengd símtala er 6,6 prósent frá
því í fyrra þegar talað var í 380,7
milljónir mínútna.
Enn meiri munur er í hringingum
til útlanda. Þar munar 17 prósentum
á þessu ári og því síðasta, og 31,2
prósentum frá 2007.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
PFS, segir erfitt að geta sér til um
hvað valdi þessum samdrætti. „Við
vitum ekki fyrir víst hvaða áhrif
nettæknin hefur,“ segir hann og
vísar til forrita á borð við spjallfor-
ritsins MSN Messenger og hringi-
forrita á borð við Skype. „Annar
hver maður hefur þetta opið á borð-
inu hjá sér og ljóst að áhrifin eru
einhver.“
Þá bendir Hrafnkell á að farsím-
inn hafi unnið mjög á á kostnað fast-
línukerfisins og þá hafi hér orðið
ákveðin breyting á mannfjöldasam-
setningu með brotthvarfi erlends
verkafólks eftir uppgangstíma.
Hrafnkell segir hins vegar sam-
antekt stofnunarinnar leiða ýmis-
legt markvert í ljós. Þannig hafi til
dæmis markaðshlutdeild Símans á
farsímamarkaði í fyrsta sinn farið
undir 50 prósent. Þá komi fram
merki um ákveðna mettun á far-
símamarkaði þar sem hægt hafi
á fjölgun farsímanotenda. Far-
símafyrirtækið Nova hafi hins
vegar aukið markaðshlutdeild sína
verulega frá því í fyrra, eða úr 4,2
prósentum í 13,9 prósent. Í tölunum
kemur fram að á fyrri helmingi síð-
asta árs hafi Síminn verið með 56,6
prósenta hlutdeild á farsímamark-
aði, en 48,1 prósent á þessu ári.
Farsímanetið segir Hrafnkell hins
vegar eiga mikið inni þegar horft er
til gagnaflutninga. „Nú er fartölvu-
eign orðin mjög útbreidd og jafnvel
hægt að fá fartölvur með innbyggðu
3G korti,“ segir hann og telur lík-
legt að enn eigi eftir að fjölga í þeim
hópi fólks sem komi til með að vilja
sækja sér gögn á netið hvar sem
það er statt. „Núna nota um 12 þús-
und manns svonefndan netpung og
kemur það þá í stað ADSL tengingar
fyrir marga,“ segir hann.
olikr@frettabladid.is
Minna hringt
til útlanda en
undanfarin ár
Gamli síminn (borðsíminn) er töluvert minna not-
aður en síðustu tvö ár samkvæmt nýbirtum tölum.
Vísbendingar eru um mettun farsímageirans.
Í SÍMAVERI REYKJAVÍKURBORGAR Forstjóri PFS bendir á að á fyrri helmingi þessa árs
hafi heildarvelta á fjarskiptamarkaði nánast verið sú sama og á sama tíma í fyrra,
fyrir hrun. Það bendi til þess að þessi fjarskiptageirinn komi betur undan efnahags-
fárviðrinu en margur annar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BREYTT SÍMANOTKUN
TÍMABIL MILLJÓNIR MÍNÚTNA
Fastanetið
Símtöl innanlands
Jan-jún 2008 271,6
Jan-jún 2009 260,5
Breyting: -4%
Símtöl til útlanda
Jan-jún 2008 18,8
Jan-jún 2009 15,6
Breyting: -17%
Símtöl í farsíma
Jan-jún 2008 88,9
Jan-jún 2009 68,3
Breyting: -30%
Símtöl á internetið
Jan-jún 2008 16,4
Jan-jún 2009 11,2
Breyting: -31,6%
Alls á fastanetinu
Jan-jún 2008 380,7
Jan-jún 2009 355,6
Breyting: -6,6%
Farsímanetið
Fjöldi mínútna úr GSM
Jan-jún 2008 265,9
Jan-jún 2009 338,2
Breyting: +27,2%
Heimild: PFS
Leikföng
Spil
DVD diskar
Gjafavörur
Jólavörur
MARKAÐUR
Fjarðar
...og margt fleira
á ótrúlega góðu verði
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Kópavogs
Setning:
Forvarnir í leikskóla:
„Kirkjan í Kópavogi, samfélag án samkeppni“:
„Það er of seint …“:
Frjáls félagasamtök - hlutverk þeirra í forvörnum:
„Saman í sátt“:
Rétt úr kútnum og tekinn léttur snúningur – Hlé
Forvarnir í heilsugæslunni:
Þátttaka foreldra:
„Á útivakt“
Forvarnarlegt gildi vinnuskóla:
„Ungmennahús – hvað er það?“ Forvarnir í starfi Molans:
„Víma er gríma“:
„Hvað er að gerast í fíkniefnamálum?“:
D
A
G
S
K
R
Á
FÉLAGSMÁL „Þetta er nokkurs konar afsökunar-
beiðni fyrir þá slæmu og ósanngjörnu umfjöll-
un sem birtist af hálfu MATVÍS nýlega um
veitingarekstur á Reykjanesi,“ segir Erna
Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferða-
þjónustunnar, um yfirlýsingu framkvæmda-
stjóra Matvæla- og veitingafélags Íslands sem
Fréttablaðið sagði frá í gær. „Því miður er oft
kvartað undan óheiðarlegri samkeppni í veit-
ingarekstri og á það við um öll landsvæði, ekki
bara Reykjanes. Það breytir því ekki að stærsti
hluti veitingastaða er heiðarleg fyrirtæki sem
eiga annað skilið en að verkalýðsleiðtogar birti
annan eins óhróður og þann sem birtist í grein-
inni „Siðferði“,“ segir Erna. - gar
Samtök ferðaþjónustunnar:
Nokkurs konar afsökun-
arbeiðni frá Matvís
ERNA HAUKSDÓTTIR