Fréttablaðið - 14.11.2009, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 14. nóvember 2009
UMRÆÐAN
Finnur Árnason
skrifar um málefni
Haga
Vegna umfjöllunar um málefni Haga
þar sem ítrekað hefur
verið farið rangt með
staðreyndir er rétt
að eftirfarandi komi
fram:
Engar skuldir hafa verið
afskrifaðar á Haga og ekki stend-
ur til að afskrifa neinar skuldir á
Haga. Hagar eru þvert á móti eina
fyrirtæki landsins sem hefur á sl.
18 mánuðum greitt upp að fullu
með vöxtum skráðan skuldabréfa-
flokk, sem var meginhluti skulda
félagsins. Hagar eru nú vel fjár-
magnað félag til langs tíma.
Nú er unnið að lausn á skuldum
eignarhaldsfélagsins 1998, eig-
anda Haga. Þar er meginmarkmið-
ið að ekki komi til neinna afskrifta
skulda, m.a. með því að erlendir
fjárfestar leggi fram verulega
fjármuni til félagsins í formi nýs
hlutafjár. Umfjöllun eða fullyrð-
ingar um annað eru einfaldlega
rangar.
Líta verður á umfangsmikla
umfjöl lun Morgunblaðsins
undanfarnar vikur sem einstaka
í sögu blaðamennsku. Sú umfjöll-
un verður ekki skilin öðruvísi
en sem aðför að Högum og því
starfsfólki sem þar starfar. Megin-
inntakið í málflutningi blaðsins
er að nauðsynlegt sé að Bónus
starfi í framtíðinni án
Jóhannesar í Bónus.
Blaðið heldur því fram
að hagsmunum félags-
ins sé best borgið með
brotthvarfi stofnand-
ans og frumkvöðulsins
Jóhannesar í Bónus.
Þessu er ég sem for-
stjóri Haga með öllu
ósammála og deili ég
þar skoðunum með
stjórnendum og starfs-
fólki Haga.
Enginn hefur unnið betra starf
í þágu landsmanna við að tryggja
lágt vöruverð á Íslandi en Jóhann-
es í Bónus. Hann hefur barist
fyrir lágu vöruverði og ekki síður
að sama verð sé boðið í verslun-
um hans um allt land. Hann hefur
verið frumkvöðull í hagræðingu,
sem hefur skilað sér í lægra vöru-
verði til íslenskra heimila.
Jóhannes vinnur nú að lausn
á málefnum eignarhaldsfélags-
ins með það að markmiði að
ekki komi til neinna afskrifta
skulda. Með því verður tryggt
að Bónus verði áfram í forystu
með að tryggja lágt vöruverð um
land allt. Það er staðföst skoð-
un stjórnenda og starfsfólks að
framangreindum markmiðum
verði ekki náð án Jóhannesar.
Hagsmunir félagsins, hagsmunir
viðskiptavina, hagsmunir 2.500
starfsmanna og hagsmunir lán-
veitenda eru sameiginlegir og
best tryggðir með þeirri lausn,
sem nú er unnið að.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Yfirlýsing frá Högum
FINNUR ÁRNASON
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni
á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum
miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni.
Sex vinir alveg óháð kerfi
Bestu vinir þínir eru bestu vinir þínir og Síminn elskar
alla jafnt. Í Sex vinir óháð kerfi hjá Símanum velurðu
þér sex vini hjá hvaða farsímafyrirtæki sem er og
sendir þeim SMS eða hringir í þá fyrir núll krónur.*
Skráðu þína sex vini á siminn.is, í næstu verslun
Símans eða í síma 800 7000.
800 7000 • siminn.is Það er
Sími
Internet
Sjónvarp
* Mánaðarverð 1.990 kr. og upphafsgjald 5,90 kr. Þú hringir og sendir SMS á vini þína fyrir 0 kr., 1.000 mín. / 500 SMS á mánuði.