Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 40
40 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Sko, mér finnst að ég og vinur minn Davíð Oddsson ættum að stjórna þessu landi!
Við munum búa á Bessastöðum eftir að búið er að reka forsetann og þar munum við
halda fínar nautnaveislur og trúarsamkomur! Sértrúarsöfnuðurinn minn verður þar
alltaf mættur og allir aðrir velkomnir til Bessastaða sem dýrka mig! Munið bara þeir
sem dýrka mig! Hinir þ.e.a.s. allur sá fjöldi sem öfundar mig og vogar sér þess vegna
að tala ílla um mig, þeir eru þroskaheftir, geðveikir, lesblindir og sjónlausir! Sérstak-
lega sjónlausir! Ég vil taka það fram að á trúarsamkomunum á Bessastöðum svo og
nautnaveislunum verður bara lesið upp úr bókinni minni Hermikrákuheimur, hverja
einustu mínútu á milli þess sem fólkið fær að snæða en í öll mál verður bara boðið
upp á Gunnars majones og Gunnars sósur. Aðdáendur mínir verið velkomnir og kjósið
mig sem næsta forseta! Ég mun koma ykkur út úr kreppunni, ekki málið!
(Athugasemd sem Kleopatra Kristbjörg setti í gríni við blogg Svarthöfða á dv.is)
K
leopatra er í sumar-
bústað svo við tölum
saman í síma. Nancy frá
Gunnars majonesi hafði
hringt í mig og sagt mér
að ég yrði að hitta Kleo-
pötru augliti til auglitis til að fá sem
allra sönnustu myndina af henni. Að
það væri dásamleg upplifun.
Ég verð bara að eiga það inni.
Ég spyr Kleopötru fyrst út í hinar mjög
svo óhefðbundnu auglýsingar sem fóru
að birtast hér í blaðinu í vor.
„Hermikrákuheimur fór hægt af
stað,“ segir Kleopatra í símanum úr
bústaðnum, „en svo allt í einu byrjaði
hún að vekja athygli og umtal. Það var
núna í sumar sem ég varð virkilega vör
við það að bókin hefði slegið í gegn.
Hvert sem ég fór kom fólk til mín og
faðmaði mig og þakkaði fyrir bókina.
Margir sögðu að hún hefði breytt lífi
sínu til batnaðar og sumir sögðu að hún
hefði hreinlega bjargað lífi þeirra. Ég
vinn á skrifstofu úti í bæ, en fólk veit
það ekki, svo það var mikið hringt í
Gunnars majones verksmiðjuna í Hafn-
arfirði. Helen Gunnarsdóttir, einn af
eigendunum, varð fyrir svörum. Fólk-
ið sem hringdi er aðdáendur bókarinn-
ar og vildi borga undir auglýsingarn-
ar. Það vildi hafa auglýsingarnar með
sínum hætti. Svo fóru vinir mínir að
spyrja mig spurninga. Mér var sagt að
það yrði birt úr svörunum í auglýsing-
unum og ég svaraði þeim bara.“
Veist þú þá ekkert hvaða fólk þetta
er sem var að kosta auglýsingarnar?
„Þessir aðdáendur? Nei. Ég kynnt-
ist reyndar einum manni. Bara einum
af þessum stóra hópi. En auglýsingarn-
ar vöktu mikla athygli. Síminn stopp-
aði ekki. Og allir voru mjög jákvæðir.
Ég bjóst alltaf við einhverjum skömm-
um en ég fékk bara hrós. Þetta var
allt ókunnugt fólk. Sumir voru reynd-
ar að vara mig við. Voru að segja að
ég skyldi alls ekki fara niður í bæ um
helgar þegar það er fyllirí og svona – að
það yrði bara ráðist á mig. En ég fór nú
bara samt og var ekkert hrædd. Lenti
svo ekki í neinu nema bara einhverju
jákvæðu. Eftir að þessar auglýsingar
birtust fór bókin fyrst að vekja gífur-
lega mikla athygli. Fólk var alls staðar
að þakka mér fyrir. Þar sem mér finnst
heimurinn svo sjúkur og samfélagið
svo sjúkt þótti mér rosalega vænt um
að fá að kynnast því hvað það er samt
til mikið af fallegu, góðu og heilbrigðu
fólki.“
Neyslufyllirí og nautnasýki
Kleopatra hefur skrifað tvær bækur
um fyrri líf, eina barnabók og sjálfs-
hjálparbókina Hermikrákuheim.
„Það var alveg logn á bæjunum
þegar hinar bækurnar komu út og það
er Hermikrákuheimur sem hefur vald-
ið öllum þessum usla,“ segir hún.
Hvað er það í bókinni sem er svona
rosalegt?
„Hefurðu ekki lesið bókina?“
Nei, ég verð að viðurkenna það …
„Þú verður að drífa þig í því!“
Já, ég lofa!
„Það sem er skelfilegt í bókinni …
Pakkar ekki orð-
unum í silkipappír
Kleopatra Kristbjörg Stefánsdóttir er forstjóri Gunnars majones
og hefur skrifað nokkrar bækur. Vægast sagt frumlegar auglýsingar
vöktu svo gríðarlega athygli á bókinni Hermikrákuheimi og Kleopötru
og hafa ýmsar vafasamar tilgátur verið uppi um majonesforstýruna.
Til að fá botn í málið sló Dr. Gunni á þráðinn til Kleopötru.
KLEOPATRA KRISTBJÖRG „Allt mun skjálfa og nötra þegar ég skrifa bókina um ástarmál mín!“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Mér finnst það náttúrlega ekki neitt.
Ég er bara að segja sannleikann. Það
er mín skoðun. Ég er að segja frá því
hvernig heimurinn er. Hvernig samfé-
lagið er. Þetta er bara allt sjúkt. Og ég
er ekkert að pakka orðunum inn í silki-
pappír. Það er einhverjir reiðir út af
bókinni. En það eru ekki margir. Það
eru miklu fleiri sem dást að þessari
bók og þvílíkt þakka mér fyrir hana.“
Myndir þú segja að bókin hafi
verið eins konar viðvörun við banka-
hruninu?
þú ert alkóhólisti þá ertu sjálfselskur
og óheiðarlegur, siðblindur og alveg
rosalega mikill vargur eins og óarga-
dýr. Þú ert nautnasjúkur, hömlulaus og
skítug hóra.“
„Það varð allt brjálað út af þessu,“
segir Kleopatra. „En þetta er náttúr-
lega sannleikur. Ég hef aldrei skilið af
hverju alkóhólistar eru brjálaðir út af
þessu þar sem þeir gera nú ekki annað
á AA-fundum en að líta yfir farinn veg
og velta sér upp úr eigin skít. Til að
minna sig á að þeir gerðu út af við alla.
Alkóhólistar eru ferlega þreytandi fólk
sem þreytir mann í hel og þeir vita það
sjálfir. En það er nú samt ekki sann-
gjarnt að dæma alla alkóhólista eins.
Ég held að það séu til alkóhólistar sem
eru ekki að kafna úr sjálfselsku og
þar af leiðandi nautnasýki, en þeir eru
samt dæmdir eins og hinir. Alveg eins
og það eru kannski til miðlar sem eru
ekta. Svo spretta upp alls konar svika-
miðlar og spákonur sem eru bara að
bulla til að fá peninga. Þá eru hinir,
sem geta eitthvað, dæmdir eins og allir
settir undir sama hatt. Þannig er þetta
víða og getur lagt líf fólks í rúst.“
Með bein í nefinu
Gunnars majones var stofnað af Gunn-
ari Jónssyni árið 1960. Vörur fyrir-
tækisins eru gamalgrónar á heimilum
landsmanna.
Hvernig kom það til að þú varðst for-
stjóri Gunnars majones?
„Ég var ráðin mjög snögglega. Ég vil
ekki tala illa um fólk svo ég vil ekki
fara í smáatriðum út í það. En það
þurfti bara að taka til.“
Ertu mikið inni í vöruþróun og
slíku?
„Ekki neitt. Málið var að það var
komið í strand og átti að fara að skutla
þeim út á ýmsum stöðum. Eigendurnir
gerðu sér grein fyrir því að það þurfti
einhvern þarna inn með bein í nefinu
og töldu mig færa um það verkefni.
Fannst ég hæf í mannlegum samskipt-
um og ákveðin.“
Borðar þú mikið majones sjálf?
„Já, Gunnars majones. Hef alltaf
gert það. Þetta er besta majonesið og
sósurnar líka. Eigendurnir, mæðgurn-
ar þrjár, eru yndislegar konur. Svo var
mér kennt um ídýfurnar (Kleopötru
ídýfurnar) – að ég væri að skíra þær
í höfuðið á mér – en það var reyndar
Helen sem gerði það upp á eigin spýt-
ur. Ég kom ekkert nálægt því. En mér
var kennt um það.“
Allt mun skjálfa og nötra
Við Kleopatra dveljum ekki lengi við
kjaftasögurnar um að í kringum hana
sé eins konar majones-sértrúarsöfn-
uður – „Þetta er allt saman bara bull.
Ég er náttúrlega í klíku eins og allir,
þannig séð, ég á hóp af vinum. En það
er talað um að það sé einhver sértrúar-
söfnuður í kringum mig. Algjört rugl!
Ég hef aldrei verið í sértrúarsöfnuði.“
Staðreyndin er hins vegar sú að það
er mikið fram undan hjá Kleopötru á
hinu listræna sviði.
„Ég var byrjuð á annarri heimspeki-
legri ádeilubók, en svo er bara búið að
vera svo mikið að ég gera að ég kemst
líklega ekki í að klára hana fyrr en á
næsta ári,“ segir hún. „Svo er vinur
minn Eiríkur Hauksson búinn að semja
lag við eitt ljóða minna úr Hermikráku-
heimi – og ætlar jafnvel að semja fleiri
– og sá diskur kemur út á næsta ári.“
Kleopatra segir að fólk hvetji hana í
sífellu til að skrifa ævisögu sína. „Það
getur vel komið til greina, en ég myndi
þá bara taka fyrir brot úr ævi minni
– ekki alla ævina. Sérstaklega er ég
að spá í að taka fyrir ástarmálin. Þar
koma við sögu margir af toppunum í
þjóðfélaginu. Ég get ekki sagt meira
eins og er, nema að það mun allt skjálfa
og nötra þegar þessi bók kemur út!“
„Það er
talað um
að það sé
einhver
sértrúar-
söfnuður
í kringum
mig. Al-
gjört rugl!
Ég hef
aldrei verið
í sértrúar-
söfnuði.“
„Ég tala náttúrlega um fylliríið.
Þetta neyslufyllirí og þessa nautna-
sýki. Þetta hlaut að enda með ósköp-
um. Ég get þó ekki sagt að ég hafi séð
bankahrunið fyrir. Ætli ég hafi ekki
frekar álitið að það kæmi bara heims-
endir. Ég held að kreppan sé að mörgu
leyti til góðs. Hún hreinsar til og stöðv-
ar að einhverju leyti fylliríið. Það er
verið að berja fólk á botninn. Það er nú
bara þannig að fólk fer ekki að hugsa
fyrr en það liggur í blóði sínu á botn-
inum. Hermikrákuheimur, auglýsing-
arnar í Fréttablaðinu og svo kreppan
hefur orðið til þess að fólk er farið að
leita meira inn á við og spá og spekúl-
era í Guði. Þetta er bara barátta og hún
er þroskandi og kennir manni.“
Sannleikurinn um alkóhólista
Kleopatra segir að það sem mest hafi
farið fyrir brjóstið á fólki í auglýs-
ingunum sé lýsing hennar á alkóhól-
isma. Kannski ekki að furða þegar
textinn var svona: „Dómgreindar-
leysi er algengt einkenni alkóhólista
enda innifalið í orðinu allur mesti við-
bjóður veraldar, það þýðir geðveiki,
ógeðslegt, sóðalegt og sjúkt líferni. Ef
SKILABOÐ TIL ÞJÓÐARINNAR!