Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 49
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ætli ég vakni ekki frekar
snemma á laugardaginn og fái
mér hafragraut í morgunmat.
Síðan hugsa ég að ég hiti aðeins
upp áður en ég fer á kóræfingu
klukkan 11 með Fríkirkjukórn-
um,“ segir Finnur Karlsson, nemi
í baritónhornleik, og bætir við að
hann kunni ekki við að skrópa á
æfingu þrátt fyrir það stóra verk-
efni sem bíði hans seinna um dag-
inn. Finnur mun þreyta lokapróf
á hljóðfæri sitt með tónleikum á
Engjateigi 1 klukkan 17. Auk þess
að leika eigin tónsmíð, en hann
er í tónsmíðanámi í Listaháskóla
Íslands, mun hann flytja verk
eftir Bach, Horovitz, Jakob og
Rachmaninoff. Með honum leika
Helga K. Guðmundsdóttir á harm-
oniku og píanóleikararnir Ingi-
björg Þorsteinsdóttir og Júlíana
Rún Indriðadóttir.
„Eftir prófið ætla ég með fjöl-
skyldunni eitthvað fínt út að borða
til að halda upp á áfangann,“ segir
Finnur en getur lítið sagt hvert
skuli halda, það sé í höndum for-
eldranna. „Ég hef aðallega áhyggj-
ur af því að æfa mig,“ segir hann
og getur vart hugsað lengra fram
í tímann. Hann veit því lítið hvað
verður á dagskránni á sunnudag en
telur þó að lærdómurinn verði þar
efstur á blaði enda skólanum ekki
lokið þó að þetta próf sé afstaðið.
Finnur stundar nú nám á fyrsta
ári á tónsmíðabraut við Lista-
háskóla Íslands og er því rétt að
byrja. Hvað við tekur eftir það er
ekki á hreinu. „Ég hugsa námið
sem sterkan leik, hvað svo sem ég
muni hafast fyrir í framtíðinni.
Hvort sem ég verð tónlistarkenn-
ari, tónskáld eða starfsmaður á
bensínstöð,“ segir hann glaðlega.
Finnur byrjaði eins og svo marg-
ir að læra á blokkflautu þegar
hann var lítill en skipti yfir á barit-
ónhornið þegar hann var níu ára.
„Mig langaði að vera með í skóla-
hljómsveitinni og var spurður hvað
ég vildi spila á og ég sagði: „Bara
eitthvað.“ Þá var það bara ákveð-
ið fyrir mig,“ segir hann og hlær.
Baritónhorn þekkja ekki marg-
ir, en Finnur segir það koma úr
sömu hljóðfærafjölskyldu og túba
og líta út eins og lítil túba. „Það er
þó einstakt hljóðfæri og myndar
mjög fallegan tón. Það hefur hins
vegar orðið undir í tónlistarheim-
inum, sérstaklega vegna þess að
það hefur ekki fastan sess í sin-
fóníuhljómsveitinni,“ segir Finn-
ur. Hann telur líklegt að hann sé
sá fyrsti sem taki lokapróf á hljóð-
færið hér á landi og er sáttur við
þá sérstöðu. solveig@frettabladid.is
Þeytir baritónhorn
Finnur Karlsson heldur í dag framhaldsprófstónleika á baritónhorn. Hljóðfærið er fremur sjaldgæft og
Finnur telur að hann sé eini maðurinn sem lokið hafi prófi á það hér á landi.
Finnur Karlsson heldur framhaldsprófstónleika á baritónhorn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEIMSPEKIKAFFIÐ Heilabrot og huggulegheit verður haldið á
Bláu könnunni á Akureyri á sunnudaginn. Hug- og félagsvísindadeild
Háskólans á Akureyri, í samvinnu við Félag áhugafólks um heimspeki,
stendur fyrir uppákomunni, sem stendur frá 11 til 12.
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220
www.lindesign.is
M eirapró f
U p p lýsin gar o g in n ritun
í s ím a 5670300
NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 18. NÓVEMBER
pplýsingar og innritun í
síma 567 0300 / 894-2737