Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 65
7 MENNING
Styrktartónleikar Caritas með Kristjáni Jóhannssyni tenór og
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran verða á morgun í Kristskirkju í
Landakoti og hefjast kl. 16. Er það í sextánda sinn sem tónleikar
fyrir styrktarsjóðinn Caritas eru haldnir. Þeir hafa hljómað hafa
reglulega í Kristskirkju við Landakot frá árinu 1994.
Í ár mun allur ágóði tónleikanna renna til Mæðrastyrksnefndar.
Margir af helstu listamönnum þjóðarinnar leggja þessu þarfa
málefni lið. Efnisskrá tónleikanna er glæsileg og fluttar verða
skærustu perlur tónbókmenntanna ásamt einsöngvurum,
strengjasveit og kórum. Caritas-tónleikarnir marka upphaf
aðventunnar fyrir marga og fjölmargir gestir koma ár eftir ár
á þessa eftirsóttu tónleika, njóta fagurra lista og
leggja góðu málefni lið. Kristján Jóhannsson og
Diddú færa okkur aðventuna ásamt Rúnari Guð-
mundssyni, tenór, fiðlungunum Guðnýju Guð-
mundsdóttur, Ara Þór Vilhjálmssyni og Helgu
Þórarinsdóttur, Gunnari Kvaran, selló, Hávarði
Tryggvasyni, kontrabassa, Einari Jóhannessyni,
klarinetta, Eiríki Erni Pálssyni, trompet, Hilmari
Erni Agnarssyni, orgel, Vox Feminae og stúlknakór
Reykjavíkur undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur.
Miðasala er á midi.is og við innganginn.
Styrktartónleikar Caritas á morgun
Kristján Jóhannsson
er tekinn að syngja
mikið hér eftir
heimkomu í haust.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
verður helsta kvenröddin í
Landakotskirkju á morgun.
Gerður Gunnarsdóttur fiðluleik-
ari og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari halda tónleika
í Salnum á morgun í Tíbrárröð-
inni. Á efnisskrá eru sónötur eftir
Mozart, Beethoven og Brahms.
Gerður stundaði tónlistarnám við
Tónskóla Sigursveins og fram-
haldsnám í Köln og Amsterdam.
Hún lauk „Konzertexamen“ frá
Tónlistarháskólanum í Köln árið
1991 og hefur frá 1992 starfað
sem 3. konsertmeistari í Sinfóníu-
og óperuhljómsveit Kölnarborgar.
Anna brautskráðist frá
Tónlistar skólanum og stundaði
nám við Guildhall í London. Sam-
starf hennar og Sigrúnar Hjálm-
týsdóttur hefur staðið síðan á
námsárunum í London. Hún var
tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna 2004 sem flytjandi
ársins og fékk þau 2009 fyrir
flutning á „Tuttugu tillit til Jesú-
barnsins“ eftir Olivier Messiaen
í fyrra en hljóðritun þess kom út
í vor.
Gerður og
Anna spila
Gerður og Anna Guðný.
Anna Jónsdóttir sópran og Sophie
Schoonjans hörpuleikari.
Á morgun verða tónleikar
í Laugarneskirkju þar sem
Anna Jónsdóttir sópran, Sophie
Schoonjas hörpuleikari og selló-
leikarinn Örnólfur Kristjánsson
flytja tónlist eftir þennan sautj-
ándu aldar meistara.
Henry Purcell fæddist 1659
og lést 1695. Á fáum árum
afkastaði hann óhemju magni
tónverka, sönglaga og kórverka,
auk óperu og leikhústónlistar.
Þremenningarnair hafa sett
saman dagskrá af sönglögum
hans til minningar um þennan
afkastamikla en skammlífa
snilling. Tónleikarnir hefjast
kl. 16 og er aðgangur ókeypis en
frjáls framlög þegin.
Henry Purcell
í 350 ár
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N