Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 66
MENNING 8
Þ
egar svokallað Hafsteins-
hús á Bakkaflöt í Garða-
bæ var í byggingu var
það orðið svo þekkt að
orðspori á höfuðborgar-
svæðinu að forvitnir gerðu sér ferð
inn í húsbygginguna til að skoða
hvernig arkitektinn hafði komið
fyrir hlutum þar. Högna Sigurð-
ardóttir hafði þá starfað í Frakk-
landi allt frá því að hún lauk námi
og hafði yfir sér ljóma þeirra landa
okkar sem höfðu haslað sér völl í
hörðum samkeppnisbransa erlend-
is. Það skyggði ekki á frægð henn-
ar þegar við þá staðreynd var bætt
eftirminnilegri athugasemd: Hún
er úr Vestmannaeyjum.
Högna fæddist inn í kreppuna á
Íslandi, þessa stóru sem við héld-
um lengi að væri eina kreppan sem
gæti yfir okkur gengið þótt raunin
hafi orðið önnur; þær voru marg-
ar. Kynslóðin sem fæddist um 1930
leit á fyrstu tveim áratugum ævi
sinnar einhverja mestu umbreyt-
ingar sem nokkur kynslóð hafði
upplifað hér á landi utan þær sem
fæddust inn í harðindaár og plág-
ur fyrri alda. Hin pólitísku rök í
manngildisstefnu arkitektúrs voru
tekin að sýna sig hér víða í nýrri
byggingum, þótt slakur fagur-
fræðilegur og formlegur smekkur
seinkaði þeirri þróun látlítið. Tíma-
bilið 1929 til 1949 var stór og mikil-
væg þungamiðja í nútímavæðingu
Íslands. Og kynslóðin sem gekk
til mennta inn í kalda stríð beggja
vegna Atlandsála var hin fyrsta
sem smíðaði bræðslu úr nýju og
gömlu, eins og verk Högnu mörg og
Manfreðs Vilhjálmssonar sýna.
Sýningin á Kjarvalsstöðum er
takmörkuð að því leyti að hún sýnir
einvörðungu verk Högnu á Íslandi,
bæði byggð og óbyggð. Þegar reik-
að er um hana og teikningar og ljós-
myndir eru skoðaðar þar kemur
fyrst upp í hugann eftirsjá hinna
glötuðu tækifæra sem gáfust en
voru ekki nýtt. Þar kom margt til:
óvenjubundnar hugmyndir lista-
mannsins, íhaldssemi njótenda og
framkvæmdaraðila sem best verð-
ur skýrð með menntunarskorti
og fylgifiskum hans, smekkleysi
og fáfræði. Þau hús Högnu sem
standa eru djásn íslenskrar bygg-
ingarsögu og í samanburði þeirra
Manfreðs og hennar verður fljótt
ljóst að fjarvera hennar á erlendri
grund og nærvera hans hér heima
gaf honum forskot sem hefur gefið
okkar fjölda glæsilegra húsa sem
honum gafst tækifæri til að sjá rísa
eftir sínu höfði.
Högna var menntuð í Frakklandi,
það er í sjálfu sér undur að hún
komst þar áfram í námi, málakunn-
átta hennar var ekki upp á marga
fiska þegar hún kom út og sam-
keppnin var hörð um sæti í Þjóð-
arskóla hinna æðri lista í París.
Lokaverkefni hennar var unnið
fyrir heimaslóðir – garðyrkjubýli
í Hveragerði – en fyrir það fékk
hún margháttaðar viðurkenningar
í Frakklandi þar sem hún bjó sér
ból og eignaðist fjölskyldu, þó að
báðar dætur hennar hafi ætíð sótt
heim og hvor á sinn hátt rétt eins og
móðir þeirra auðgað mannlíf hér.
Stærstu verkin sem Högna
kláraði til fulls á Íslandi eru nokk-
ur einbýlishús eins og þau kölluð-
ust þá, öll risu þau í nýrri hverfum
sunnan við möndul borgarinnar frá
vestri til austurs. Öll eru þau vitn-
isburður um snjalla gáfu, þekk-
ingu á íslenskum högum, ljósi og
verðáttu. Þau eru öll sprottin úr
íslenskri jörð en auðguð af mennt-
un höfundarins og listnæmi. Það
er því skyldumæting á þessa sýn-
ingu svo mönnum verði ljós hlut-
ur Högnu í merkilegum íslenskum
arkitektúr.
Það kemur nokkuð á óvart hversu
margar af byggingartillögum
Högnu hafa verið laskaðar í tímans
rás. Þar er skömm Kópavogsbæjar
hvað ríkust og ber forráðamönnum
bæjarfélagsins sú ábyrgð; þannig
var tillaga hennar að sundlaugum
og almenningsgarði á Rútstúni sem
þau hjón Finnbogi Rútur Valdi-
marsson og Hulda Jakobsdóttir
gáfu bænum og bæjarbúum á
sínum tíma ekki unnin nema að
litlu leyti. Annar áfangi þessa
mannvirkis var líka unninn eftir
hennar forsögn en í þriðja áfang-
anum var vikið frá hugmyndum
hennar og eins og segir í sýning-
arskránni „með ámælisverðum
hætti“.
Ýmsar tillögur hennar aðrar eru
á sýningunni sem ekki hafa litið
dagsins ljós á fyrirhuguðum stöð-
um. Sumarhúsabyggð Landsbank-
ans við Álftavatn, kapella í Vest-
mannaeyjum. Hugmynd hennar
að endurbyggingu Vestmannaeyja-
bæjar kom ekki til álita sem verð-
launatillaga, enda kusu yfirvöld í
Vestmannaeyjum að hundsa allar
tillögur um þá endurbyggingu.
Högnu hefur hlotnast fjöldi
alþjóðlegra viðurkenninga fyrir
verk sín, og tók meðal annars sæti
í hinni virtu Frönsku byggingar-
listarakademíu árið 1992, auk
innlendra viðurkenninga svo sem
menningarverðlauna DV í bygging-
arlist 1994 og heiðursorðu Sjónlista-
verðlauna Listasafns Akureyrar
2007. Íbúðarhús sem hún teikn-
aði að Bakkaflöt í Garðabæ hefur
verið valið ein af 100 merkustu
byggingum 20. aldarinnar í Evrópu
og er nú til skoðunar ásamt Brynj-
ólfshúsi að Sunnubraut í Kópavogi
sem dæmi um húsbyggingu frá
síðari hluta tuttugustu aldar sem
beri að friða. Árið 2008 var Högna
Sigurðardóttir kosin heiðursfélagi
Arkitektafélags Íslands.
Högna ánafnaði Listasafni
Reykjavíkur nýlega öllu teikn-
ingasafni sínu. Í tilefni af þeirri
rausnarlegu gjöf er sýningin sett
upp nú með áherslu á íslensk verk,
byggð sem óbyggð. Sýningarstjóri
er Guja Dögg Hauksdóttir, deild-
arstjóri byggingarlistardeildar
Listasafns Reykjavíkur, og sam-
starfshópur er skipaður þeim Önnu
Sóleyju Þorsteinsdóttur, Laufeyju
Agnarsdóttur, Magnúsi Jenssyni
og Sigríði Maack, arkitektum. Sýn-
ingin er unnin í náinni samvinnu
við Arkitektafélag Íslands og í
sérstöku samstarfi við Þjóðminja-
safn Íslands, með tilstyrk fjölda
aðila: Minningarsjóður Dr. Phil.
Guðjóns Samúelssonar, mennta-
og menningarmálaráðuneyti
Íslands, Húsafriðunarnefnd, Bær
listasetur, Myndhöfundasjóður
Íslands, Íbúðalánasjóður Íslands
og Franska sendiráðið á Íslandi
eru þeirra á meðal en upptalning-
in er lengri og þar kemur síðastur
Vestmannaeyjabær.
Í tengslum við sýninguna verð-
ur gefin út sýningarskrá um verk
Högnu í ritstjórn Guju Daggar. Er
það fyrsta og eina ritverkið sem
henni er helgað sem komið hefur
út hér á landi.
Högnu til heiðurs er málþing
í dag á Kjarvalsstöðum um feril
hennar og hefst það kl. 14. Þar
verða þátttakendur með erindi í
pallborði þau Steinþór Kári Kára-
son, Jes Einar Þorsteinsson og
Margrét Harðardóttir arkitektar
og Þóra Sigurðardóttir listamað-
ur. Sýningin á verkum Högnu á
Kjarvalsstöðum stendur til loka
janúar.
HÚS EFTIR Högnu Sigurðardóttur
Högna Sigurðardóttir arkitekt. MYND/ LISTASAFN REYKJAVÍKUR
Um þessar mundir er kastljósinu beint að störfum og
verkum tveggja arkitekta sem eiga það sameiginlegt
að hafa skilað nokkrum perlum í steypu, stáli og
gleri; tveimur lýsandi vitum á strönd íslenskrar
byggingarlistar: Högnu Sigurðardóttur og Manfreð
Vilhjálmssyni. Það er ár á milli þeirra og þau eru nú
komin að endalokum ferils síns og eru þá heiðruð;
hún með sýningu á Kjarvalsstöðum, hann með
veglegri bók, þar sem ferill þeirra er rakinn.
BYGGINGARLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17
Fallegar gjafir
á góðu verði
Safnbúð Þjóðminjasafnsins
Jólaservéttur
Hekla 750 kr.
Eldspýtustokkur
Hekla 590 kr.
Sérpakkað súkkulaði
Safnbúðin 590 kr.
Laufabrauð 2009
Heima 2.900 kr.
Sælusápur
margar gerðir 690 kr.
kerti, 2 stk. 390 kr.
Spil, Safnbúðin 990 kr.
Jólakort, Safnbúðin
10 stk. í pakka 1.990 kr.
Skuggaspil kertastjaki
Heima 1.900 kr.
Dagbók Guðbrandsbiblía
Safnbúðin 1.490 kr.