Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 71
LAUGARDAGUR 14. nóvember 2009 43
Anna Þórdís Sigurðardóttir og
Sigríður Ólafsdóttir (1918)
Þjóðminjasafn Íslands
Sigríður Zoëga rak stofu í
Reykjavík á árunum 1914 til
1955. Hún myndaði sjaldan fyrir
utan stúdíóið en er einn fremsti
fulltrúi portrettsins hér á landi. Stíl
Sigríðar mætti lýsa sem einföldum
en klassískum, módernískum og
hrífandi. Hún kunni þá list öðrum
betur að stilla fólki upp fyrir
myndatöku, hvort sem um tvo
eða heilt íþróttalið var að ræða.
Sjáið fínlega snertingu þessarra
vinkvenna, hvernig þær styðja
öxlum saman og horfa til okkar
– og ljósmyndarans, blíðum svip,
fullar trúnaðartrausts.
Skúlagata í Reykjavík (október
2008)
Eign ljósmyndarans.
Þetta er ljósmynd af hruninu. Af
táknmyndum þess. Augnablikið fryst
á stóra blaðmyndavél og á stóru
prentinu getur fólk skoðað öll smáat-
riði þessa frysta heims við Skúlagötu
eftir bankahrunið í fyrra. Skógur úr
turnum og krönum hefur breyst í
minnisvarða – ljósmyndin sýnir okkur
blákaldan veruleikann.
Guðmundur er einn fremsti heim-
ildaljósmyndari þjóðarinnar, og hefur
verið það um langt árabil. Menntaður
hjá hinum kunna ljósmyndara og
kennimanni Otto Steinert í Þýska-
landi og hefur allar götur síðan
unnið að persónulegri og formrænni
heimildaskráningu, utan sem innan
borgarmarkanna.“
Finnur Jónsson listmálari.
Þjóðminjasafn Íslands.
„Ljósmyndir þurfa ekki að vera flóknar
í formi til að hrífa. Þessi mynd af Finni
Jónssyni er eitthvert glæsilegasta
og áhrifaríkasta portrett íslenskrar
ljósmyndasögu; einfalt en dramatískt.
Þetta er maðurinn sem kynntist óhlut-
bundnum heimi abstraktsins suður
í Evrópu og flutti þá hugsun hingað
heim.
Jón Kaldal rak um langt árabil
ljósmyndastofu á Laugavegi 11 og
er minnst sem eins helsta meistara
stúdíóportrettsins. Segja má að þessi
mynd af Finni sé dæmigerð fyrir stíl-
brögðin í hans bestu myndum, sem
oftar en ekki eru af listamönnum eða
ábúðarmiklum skeggjuðum körlum;
þær eru einfaldar en dramatískar í
lýsingu, og áhersla lögð á að túlka karakter fyrirsætunnar.“
MAGNÚS ÓLAFSSON
(1862-1937)
Systkini. Myndin er tekin á milli
1910 og 1920.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
„Magnús var sannkallaður ljós-
myndari Reykjavíkur, en enginn
samtímaljósmyndari hans mun
heldur hafa myndað jafn víða
um landið. Hann hafði ástríðu-
fullan áhuga á miðlinum, hafði
ótvíræðan listrænan streng, og
var iðulega mættur til að mynda
þegar eitthvað forvitnilegt var á
seyði í borginni. Frá árinu 1901
rak Magnús ljósmyndastofu í
Templarasundi 3.
Þessi ljósmynd af ónafngreind-
um systkinum hefur lengi kallað
á mig. Umgjörðin er sérstök;
svart klæði strengt á bárujárn og
þar er börnunum stillt upp. Sjáið
sparifötin, skóbúnaðinn.
SIGRÍÐUR ZOËGA
(1889-1968)
JÓN KALDAL (1896-1981) GUÐMUNDUR INGÓLFSSON (FÆDDUR 1946)
e s t a b l i s h e d 1 9 3 4
60%-70%
afsláttur
outlet, vintage & one off, Laugavegur 86-94, sími 552 6067
...erum alltaf að bæta við nýjum vörum
Nýtt kortatímabil