Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 76
48 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
Hvers vegna heitir Hljómsveitin
Ourlives?
Af því að okkur fannst þetta
flott nafn.
Hvenær voruð þið hamingju-
samastir?
Við vorum klárlega hamingju-
samastir fimmtudaginn 12. nóv-
ember, Þá spiluðum við á útgáfu-
tónleikunum okkar og diskurinn
fór í búðir.
Hvað gerið þið annað en að vera
tónlistarmenn?
Við vinnum og vinnum og
lærum.
Hverjir eru áhrifavaldar ykkar
í tónlistinni?
Þeir eru margir, við hlustum
mikið á íslenska tónlist eins og:
Ensími, Leaves, Sigur rós, Bang
Gang, Dikta og nefnum við þetta
sem okkar helstu áhrifavalda.
Einna mest verðum við þó fyrir
áhrifum hver frá öðrum.
Af hverju er þessi plata tvö-
föld?
Hljómsveitin hefur breyst mikið
um árin og vildum við gefa fólki
tækifæri til að heyra nokkur af
þeim lögum sem rötuðu ekki á
plötuna. Þeir sem kaupa diskinn
geta sótt aukalögin á vef tonlist.is.
Eins geta þeir sem kaupa diskinn
beint á Netinu fengið aukalögin.
Hvernig kom til að þið fóruð
að vinna með David Bottrill og
hvernig var það ferli?
Leiðir okkar lágu saman í gegn-
um þáverandi umboðsskrifstofu
okkar og leist honum vel á það
sem við vorum að gera. Eftir
nokkur samtöl ákváðum við að
fara og taka nokkur lög saman
og sjá hvað kæmi út úr því.
Afraksturinn er að finna á b-hlið
plötunnar.
Nú hafið þið spilað mikið í Bret-
landi … hvernig gerðist það og
hver er sagan á bak við það?
Við einfaldlega bókuðum tón-
leikaferðalag sjálfir fyrir sirka
fjórum árum, og út frá því tón-
leikaferðalagi stóðum við uppi
með umboðsskrifstofu og lögfræð-
ing og þannig í raun hófst þetta
ævintýri okkar. Við spiluðum gríð-
arlega mikið af tónleikum í UK
á tveimur árum og fórum víða.
Þetta ferli var okkur mjög góður
skóli og höfum við tvímælalaust
mótast sem hljómsveit af þess-
ari reynslu. Við spiluðum suma
tónleikana fyrir framan tuttugu
manns og aðra fyrir framan 300
manns þannig að við upplifðum
mikið af há- og lágpunktum. En
að sjálfsögðu þá sjáum við ekki
eftir neinu.
Hvers vegna eruð þið
búnir að spila á fleiri
tónleikum erlendis en
á Íslandi ?
Það eiginlega bara
æxlaðist þannig, við
vorum með annan fót-
inn erlendis, í Bret-
landi og Kanada, og
því vildum við nota
tímann á Íslandi til
þess að hvíla okkur og
semja tónlist.
Af hverju var fyrsta
platan svona lengi í
smíðum?
Við höfum eytt mikl-
um tíma í að leita að
okkar rétta hljómi og
sáum við ekki tilgang
í því að gefa út plötu
sem er ekki heildstæð.
Þar sem við höfum
þróast mikið síðan við
byrjuðum hefði þetta
verið samsuða af alls
konar tilraunum sem
hefði ekki gengið upp
á heilli plötu.
Lögin ykkar hafa verið spiluð
á Xinu, FM, Bylgjunni og Rás 2
þannig að tónlist ykkar virðist
höfða til mismunandi hlustenda-
hópa, var það ætlunin?
Nei, við setjum okkur ekki fyr-
irfram ákveðnar stefnur og við
ákveðum aldrei hvernig lagið á
að hljóma fyrirfram. Hjá okkur
ræður lagið alltaf ferlinu, ef
lagið hljómar betur með eða án
ákveðins hljóðfæris þá ræður
lagið för, við gætum aldrei hengt
okkur í fyrirfram mótaðar hug-
myndir. Svo má einnig segja að
tónlistarsmekkur okkar innan
bandsins er mjög mismunandi
og þessar stöðvar sem þú nefnd-
ir eru stöðvar sem einhver okkar
hlustar á.
Nú fenguð þið mikla athygli frá
erlendum útgáfufyrirtækjum fyrir
stuttu. Hvernig var sú upplifun og
af hverju sögðuð þið nei
við tilboði frá Columbia
records?
Við fengum tilboð í
svokallaðan „product-
ion deal“ sem er þannig
að ákveðinn erlendur
upptökustjóri myndi
taka okkur að sér og sjá
um að þróa tónlistina
og gefa svo út í gegn-
um Columbia records.
Þetta var ekki það sem
við vorum að leita eftir
og sögðum við því nei.
Þetta var allt saman
sérstök reynsla en við
lærðum mikið á þessu.
Hver er sagan á bak
við nafnið We Lost The
Race?
Hún er mjög ein-
föld, við komum saman
og ræddum hvað nafn
myndi lýsa seinustu
árum í lífum okkar.
Þetta var svarið.
Hvar mynduð þið
vilja búa ef þið fengjuð
að ráða?
Í kastala eða á einhverjum heit-
um stað.
Hvaða áratugur höfðar mest til
ykkar tónlistarlega séð?
Allir áratugir hafa sína snilld-
ina en við höfum alltaf verið svo-
lítið mikið fyrir núið, það er alltaf
eitthvað nýtt og ferskt að gerast
sem maður vill ekki missa af.
Eigið þið ykkur einhverja
leynda nautn?
Já, og við skulum bara halda því
þannig.
Hvað er næst á dagskrá?
Við ætlum að kynna plötuna án
afláts. Hlökkum mikið til þess.
VORU MEÐ ANNAN FÓTINN ERLENDIS Ourlives hefur spilað á fjölda tónleika erlendis en notar tímann á Íslandi til að semja tónlist. MYND/LIZA ROSE
Hlustum mikið á íslenska tónlist
Hljómsveitin Ourlives hefur notið mikilla vinsælda í útvarpi undanfarið með útgáfu sinni af laginu Þúsund sinnum segðu já.
Nú um helgina gefur hljómsveitin út sína fyrstu plötu undir merkjum Kölska. Anna Margrét Björnsson fékk að vita meira.
Við komum
saman og
ræddum
hvað nafn á
plötu myndi
lýsa seinustu
árum í lífum
okkar. Þetta
var svarið.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki