Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 84

Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 84
56 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Eftir helgina kemur út plat- an Ern er vor sál, sem hefur að geyma söng- og danslög eftir Ernst Fridolf Back- man. Barnabarn Ernsts, söngvarinn Þorbjörn Björnsson, gekkst fyrir því á haustdögum að búa þessi lög til útgáfu og fékk hann vini sína og félaga úr tónlistarlífi Berlínarborgar til aðstoðar. Ernst, sem er við það að komast á tíræðisaldur, er mörgum kunnur sem íþrótta- og félagsmálafröm- uður en færri vita að hann er auk þess lipurt tónskáld. „Í mínum augum er afi minn, Ernst Back- man, tónlistarmaður með hjart- að á réttum stað,“ segir Þorbjörn sem hóaði í vini sína í Berlín til plötugerðarinnar. Um útsetningar sá þýski píanistinn Jan Czajkow- ski. Síðustu ár hefur hann starfað sem píanóleikari, tónlistarstjóri og útsetjari í mörgum af stærstu og virtustu leikhúsum Evrópu. Á plötunni eru 27 melódísk og dansvæn alþýðulög upp á gamla mátann. Ernst samdi lögin við texta eftir meðal annarra þá Ómar Ragnarsson, Gísla á Upp- sölum og Kristleif Jónsson, hinn afa Þorbjörns. Tónlistin hefur verið flutt á hljómleikum bæði í Berlín og á Seyðisfirði og í báðum tilfellum var ekki þurr hvarmur í salnum. Um dreifingu sjá 12 Tónar. - drg ALÞÝÐULÖG Á GAMLA MÁTANN ERN ER VOR SÁL Berlínarkvartettinn frá vinstri: Freyja Gunnlaugsdóttir, Þorbjörn Björnsson, Laura Rajanen og Jan Czajkowski. Nú er mikið fram undan hjá tríói rússneska harmóniku- leikarans Vadims Fyodorov. Um helgina heldur tríóið á Ísafjörð þar sem haldnir verða tónleikar í Hömrum í dag kl. 17. Á morgun fá svo Skagamenn að njóta tóna harmónikusnillingsins en tónleikarnir þar fara fram í sal tónlistarskólans og hefjast einnig kl 17. Tríóið er um þessar mundir í óðaönn að fylgja eftir plötu sinn Papillons Noirs, Svört fiðrildi, sem kom út fyrr á þessu ári. Harmónikusnill- ingurinn Vadim Fyodorov leiðir tríó sitt í efnisskrá þar sem sveiflunni eru gerð skil: frönsk musetta- og swing-tónlist, tangó frá Argentínu og rússnesk þjóðlög. Tónlistin er útsett af meðlimum tríósins og er harmónikan forgrunni. Þetta er önnur plata Vadims, en fyrsta plata hans með tríóinu sínu. Vadim hefur frá unga aldri leikið á harmóniku og unnið til fjölda verðlauna í keppnum erlendis m.a. fyrir wum þjóðlögum. Ásamt Vadim skipa tríóið ungir og upprennandi djassspilarar, þeir Gunnar Hilmarsson á gítar og Leif- ur Gunnarsson á kontra- bassa. Á þriðjudag kynna þeir tónlist sína í bókasafni Seltjarnarnes og 18. nóvember spila þeir í bókasafni Mosfellsbæjar. Svört fiðrildi flögra víða í skammdeginu > Ekki missa af Suðrænni/norrænni tónlistar- sprengju í Norræna húsinu í kvöld. Tónlistarmenn hvaða- næva að heimsækja Ísland á köldum nóvemberdögum og kynda undir með heitum tónum sem láta engan ósnort- inn. Takið dansskóna með! Meðal þeirra sem koma fram í kvöld á hátíðinni eru DJ Nad Jee (NO), Dida (GRL), Another World (DK), Skrå (Álands- eyjar). Veitingasala verður í húsinu og geta gestir gætt sér á framandi veitingum frá fjar- lægum löndum fyrir tónleika og milli atriða. kl. 14 í Þjóðminjasafninu. Leikminjasafn Íslands og Lista- háskóli Íslands efna til málstofu um íslenska leiklistarfræði í fundarsal Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu. Eftirtaldir fræðimenn flytja stutt erindi: Ólafur J. Engilbertsson leik- myndahönnuður, Ingibjörg Björns- dóttir listdanskennari, Magnús Þór Þorbergsson lektor, Jón Viðar Jóns- son forstöðumaður, Trausti Ólafsson leiklistarfræðingur. Björn G. Björns- son leikmyndahöfundur. J i m C a r r e y LAUGARDAG OG SUNNUDAG - TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA! M/ ísl. Tali (3D) M/ Ensku. Tali (3D) M/ ísl. Tali (3D) M/ Ensku. Tali (3D) M/ ísl. Tali M/ Ensku. Tali 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.