Fréttablaðið - 14.11.2009, Síða 88
60 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Anna Margrét Björnsson
> POP-UP BÚÐ Í BANKASTRÆTI
Níu hönnuðir munu selja vörur sínar í pop-up
verslun í Bankastræti 14 í dag milli klukkan
11 og 20. Meðal hönnuða eru Sunna Dögg
Ásgeirsdóttir, Aaron Charles, Elva Dögg Árna-
dóttir og Eygló Margrét Lárusdóttir.
Nýjasta ilminn frá Dolce &
Gabbana sem heitir Rose the
one. Dásamlegur og kvenlegur.
Plötuna Imidiwan frá
hljómsveitinni Tinariwen
sem eru af Toureg-þjóðinni í
norðurhluta Afríku. Var valin
besta hljómplata ársins af
tímaritinu Uncut.
Ilmandi og frísk-
legan handáburð
fyrir þurrar vetr-
arhendur frá
L‘Occitane.
OKKUR
LANGAR Í
…
Bandaríkin frá:
14.900 kr.
24.900 kr.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Evrópa frá:
Bókað
u
núna!
með ánægju
Allt frá byrjun hefur Iceland Express veitt stöðuga samkeppni og
haldið öðrum á markaðnum við efnið. Við sýnum aðhald í rekstri en
gætum þess alltaf að halda þjónustustiginu háu.
Þetta er ekkert ofboðslega flókið: Við hjá Iceland Express bjóðum
öllum viðskiptavinum okkar, hér á landi sem annars staðar,
samkeppnishæft verð og góða þjónustu.
Bókaðu flug til Evrópu eða Bandaríkjanna á www.icelandexpress.is
Rödd skynseminnar
Það er rétt sem sumir segja,
maður á alltaf að gera samanburð!
www.icelandexpress.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
1
2
0
5
Um daginn opnaði ég tískutímarit og lenti á fallegri opnu með vöðva-
stæltum karlmanni í rakspíraauglýsingu. Það sem hefði kannski átt að
vekja einhvers konar aðdáun vakti frekar ómælda furðu mína því þessi
myndarlegi Adonis hélt öðrum handleggnum fyrir aftan höfuð svo ber-
lega skein í hárlausan handarkrikann. Að sjálfsögðu var heldur ekki eitt
einasta hár á bringu hans. Nú veit ég ekki hvort þessi tíska á að tákna
einhvers konar afturhvarf til fornra rómverskra og grískra styttna eða
hvort hún á að höfða meira til samkynhneigðra karlmanna en gagnkyn-
hneigðra kvenna. Það eina sem ég veit er að hárlaus handarkriki karl-
manns vekur frekar upp fliss hjá mér heldur en einhverjar kynferðis-
legar hvatir. Ég hélt einhvern veginn að þessi tíska metrómannanna og
vaxtarræktartröllanna um engin líkamshár hefði fæðst og dáið árið
2005 en ég hafði greinilega rangt fyrir mér. Þetta er auðvitað allt saman
smekksatriði hvers og eins og svo sem ekki nýtt undir sólinni að karl-
menn fjarlægi líkamshár en slíkt tíðkaðist meðal annars á tímum Forn-
Egypta. Það er ekkert að því að vera snyrtilegur, en eitthvað finnst mér
þó gerilsneytt við karlmennskuna þegar að húðin er orðin jafnslétt og
felld og hárlaus og okkar kvenfólksins. Megi testósterónið lifa áfram
góðu lífi í handarkrikahárunum.
Metrómaðurinn lifir enn
Það er alltaf gaman að gæða fataskápinn nýju lífi að vetrarlagi með
því að fá sér nýja yfirhöfn. Hlýjar og góðar kápur eða loðfeldir eru
líka bráðnauðsynlegar flíkur núna þegar vetrarkuldinn færist yfir
landið. Verslanir borgarinnar eru með óvenju skemmtilegt úrval af
vetrarkápum um þessar mundir og þess má einnig geta að hægt er að
finna fallegar kápur, sjöl og loðfeldi í svokölluðum „vintage“ búðum
bæjarins. Hér gefur að líta helstu straumana í yfirhöfnum erlendis frá.
-amb
YFIRHAFNIR Í ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM:
FALLEGAR VETRARFLÍKUR
STELPULEGT
Gullfalleg
svört, víð kápa
með pallíett-
um frá Soniu
Rykiel.
SNJÓHVÍTT
Dásamlega
fögur vetrar-
hvít kápa frá
Soniu Rykiel.
HLÉBARÐA-
MYNSTUR
Hlébarða-
mynstur hafa
notið mikilla
vinsælda
undanfarin
ár. Þessi
kápa er frá
Blumarine.
FRUM-
LEG SNIÐ
Skemmtileg grá
kápa frá hönn-
uðinum Stefano
Pilati fyrir Yves Saint
Laurent.
LOÐIÐ Umfangs-
mikill gervifeldur
frá náttúruvernd-
arsinnanum Stellu
McCartney.
SVART
OG HVÍTT
Klassískt
„hundstann-
ar“-mynstur
frá Preen.