Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 93
LAUGARDAGUR 14. nóvember 2009 65
Kynbomban Megan Fox prýddi forsíðu tímaritsins New York Times
Magazine í vikunni. Í viðtali við blaðamann blaðsins sagði Fox meðal
annars að kvikmyndir hennar höfði ekki til kvenna vegna þess að
þeim væri illa við hana. „Konur rífa hverja aðra niður. Stelpur halda
að ég sé lauslát, ég hef verið með sama manninum frá því ég var átján
ára. Málið er að ef þú ert aðlaðandi þá ertu sögð heimsk, lauslát eða
lauslátur heimskingi. Það er í eðli kvenna að ráðast á hverja aðra.“
Í viðtalinu líkir Fox því að vera frægur við að vera lamb á fórnarstalli.
Hún segist jafnframt hafa brynjað sig fyrir árásum fólks á persónu
hennar með því að skapa nýja persónu sem hún leikur fyrir opnum
tjöldum. „Fólk dýrkar þig fyrst en svo byrjar það að rífa þig niður.
Maður verður eins og lamb sem á að fórna í nafni frægðarinnar. Ég
skapaði persónu sem fólk getur fórnað. Ég er ekki tilbúin til að láta
fórna sjálfri mér. Sannleikurinn er sá að hin sanna ég er falin mitt í
allri geðveikinni. Enginn getur fundið mig.“
Segir stelpur halda að hún sé lauslát
FALIN PERSÓNULEIKI Megan Fox segir að hin
raunverulega Megan hafi ekki birst fólki enn.
Leikkonan Angelina Jolie prýddi
forsíður sex mest lesnu slúður-
blaða Bandaríkjanna í vikunni.
Fyrirsagnirnar voru ólíkar en
flestar heldur neikvæðar í garð
Jolie. Tímaritið Life & Style segir
Brad Pitt vera óánægðan með það
að Jolie hafi ákveðið að taka að
sér hlutverk í kvikmyndinni The
Tourist. Þrisvar sinnum á nokkuð
stuttum tíma hefur Jolie látið þau
orð falla að hún ætli sér að taka
hlé frá kvikmyndaleik svo hún
geti betur sinnt börnunum sínum
sex. „Angelina leikur hlutverk
hinnar umhyggjusömu móður og
fyrirmyndarmaka einstaklega
vel, en sannleikurinn er
flóknari en það. Hún
er háð frægðinni
og þykist ekki lesa
slúðurblöð eða njóta
liðsinnis talsmanns.
En sannleikurinn
er sá að hún les víst
slúðurblöð og í stað
talsmanns er hún
með einn
færasta
umboðs-
mann
Hollywood
í vinnu hjá
sér,“ sagði
heimild-
armaður í
viðtali við
tímaritið.
Háð frægð-
arsólinni
The Flaming lips sýnir allsbert
hippalegt fólk úti í skógi í nýjasta
myndbandi sínu, ekki ósvipað og
Sigur Rós gerði í fyrra. Mynd-
bandið er við lagið „Watching The
Planets“ sem er á hinni framúr-
stefnulegu nýju plötu hljómsveit-
arinnar, Embryonic. Í mynd-
bandinu hamast nakið fólkið
lengi vel á gegnsærri plastkúlu
sem söngvarinn Wayne Coyne
hefst við í klæddur í grá jakkaföt.
Kúlan gefur sig loksins og hinir
beru rífa söngvarann úr fötunum.
í lok myndbandsins er hann kom-
inn úr öllu líka og allir dansa
naktir og glaðir inn í nóttina. Nú
er bara spurning: hvaða poppari
berar sig næst?
Wayne á
sprellanum
WAYNE COYNE Í öllum fötunum á
þessari mynd.
SÖNN ÍMYND?
Sumir vilja meina
að Angelina Jolie
sjálf og ímynd
hennar sé
tvennt ólíkt.
Átta myndlistarmenn eiga verk
á nýrri myndlistarsýningu sem
verður opnuð í Gallerí Havarí í
Austurstræti í dag klukkan 15.
Sýningin stendur yfir til 3. desem-
ber. „Þetta er önnur sýningin sem
við höldum og þetta gallerí hefur
komið mjög vel út,“ segir Svavar
Pétur Eysteinsson í Havarí.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru: Hildigunnur Birg-
isdóttir, Einar Örn Benediktsson,
Magnús Helgason, Lilja Birgis-
dóttir, Sara Riel, Ingvar Högni
Ragnarsson, Inga María Brynjars-
dóttir og Gylfi Sigurðsson. Einar
Örn mun sýna teikningar sínar en
hann hefur í gegnum árin teikn-
að á flestar kápur utan um bækur
Braga Ólafssonar, félaga síns úr
Sykurmolunum. - fb
Átta sýna í Havarí
EINAR ÖRN BENEDIKTSSON Einar Örn
á verk á nýrri myndlistarsýningu sem
verður opnuð í dag í Gallerí Havarí.