Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 97

Fréttablaðið - 14.11.2009, Page 97
LAUGARDAGUR 14. nóvember 2009 69 „Það er verið að finna leið til að ná hugmyndum frá 1.500 manns. Þú labbar ekki út í búð og kaupir tölvukerfi til að taka við þeim gögnum og birta þau á skjá á meðan á fundinum stend- ur og hafa niðurstöðu í lok fund- ar,“ segir tölvunarfræðingurinn Finnur Pálmi Magnússon. Þjóðfundur hefst í Laugar- dalshöll í dag. Þar hittast 1.500 manns, fólk valið af handa- hófi úr þjóðskrá, ásamt ýmsum embættismönnum. Finnur er í forsvari fyrir hóp tölvusnillinga sem hönnuðu kerfi til að taka við hugmyndun- um sem koma fram á fundinum og setja þær fram á skiljanleg- an hátt. Verkefnið er gríðarlega umfangsmikið og Finnur játar að það sé upplýsingastórvirki. Finnur auglýsti meðal annars eftir sjálfboðaliðum í verkefn- ið á vefsíðunni Twitter. Hópur- inn hittist svo og hannaði kerfið sem Finnur forritaði. „Við hitt- umst sex eðalnördar í upphafi og hönnuðum skjámyndir og annað,“ segir hann. „Það er nýsköpun í þessu, við vorum meðal ann- ars að búa til viðmót sem leyfir hlaupurum í salnum að stimpla inn upplýsingar sem koma fram á auðveldan hátt.“ Hlaupararnir sem Finnur talar um taka við miðum frá þátttak- endum Þjóðfundarins. 162 borð verða í salnum og níu manns við hvert borð. Þeir fara svo með miðana upp að tölvum, sem staðsettar verða í salnum, slá inn númer á mið- anum og upplýsingarnar sem hann geymir. Gögnin safnast svo saman og verður svo varpað upp á vegg og birtast í rauntíma á vefsíðunni www.thjodfund- ur2009.is. Þannig getur þjóðin fylgst með. - afb Upplýsingastórvirki á Þjóðfundi TÖLVUSNILLINGUR Finnur og félagar hafa hannað gríðarlega umfangsmikið tölvukerfi sem vinnur úr upplýsingunum á Þjóðfundi í Laugardalshöll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Chuck Berry er af fyrstu kynslóð rokkara og hefur haft gríðarleg áhrif á rokksöguna. Hann er fyrir löngu búinn að stinga alla samtímamenn af, þeir eru flest- ir dánir eða sestir í helgan stein. Chuck, sem orðinn er 83 ára, er hins vegar enn í fullu fjöri. Hann spilar mánaðarlega á Blueberry Hill í St. Louis auk þess að fara í langa túra. Um þessar mundir er hann á tónleikaferðalagi um Bretland og er víðast að verða uppselt. Chuck er með hljómsveit með sér. Í því eru tvö barna hans; Ingrid Berry sem syngur og blæs í munnhörpu og Charles E. Berry Jr., sem spilar á gítar. Chuck tekur enn „andasporið“ (duck walk) þegar vel liggur á honum. Chuck Berry enn á fullu GOÐSÖGN Chuck gamli Berry er enn í fullu fjöri eins og myndin sýnir. Rokkekkjan Courtney Love er oft í fréttum og þá mest fyrir eitt- hvað annað en tónlist. Hún var síðast á ferðinni með sólóplötuna America‘s Sweetheart árið 2004 og gekk sú plata ekki vel. Um nokkurt skeið hafa borist fréttir af nýrri sólóplötu, Nobody‘s Daughter. Courtney hefur nú ákveðið að platan komi út undir hljómsveitarnafninu Hole, þótt enginn annar úr þeirri hljómsveit sé viðriðinn nýja efnið. Kannski ákvað Courtney þetta vegna þess að síðast gekk henni vel í músík- inni með síðustu Hole-plötu, Cele- brity Skin, árið 1998. Nýja platan á að koma út snemma á næsta ári. Vill frekar vera Hola NÝ PLATA EFTIR ÁRAMÓT Courtney Love er Hole. Áhugaverðir fyrirlestrar og önnur fræðsla fyrir alla áhugamenn um snjósleða Eftirtalin fyrirtæki verða á staðnum og kynna vörur sínar: Sjóvá AMG Aukaraf Garmin Ísland Össur Spenna í loftinu ... ... á sleðamessu í Sporthúsinu sunnudaginn 15. nóvember, Dalsmára 9–11, Kópavogi DAGSKRÁ: Kl. 10:30 Húsið opnar Kl. 11:00 Snjóflóðaleit og félagabjörgun Snjóflóðasérfræðingurinn Árni Jónsson, félagi í Hjálparsveit Skáta Kópavogi Kl. 12:00–13:00 Hádegishlé Myndasýning á skjávarpa Fyrirlestraröð eftir hádegi: Ofkæling á fjöllum Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaðurinn Guðmundur Guðjónsson, félagi í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík Fyrirlestur frá Sjóvá Forvarnahúsi Einar Guðmundsson Er sleðinn í lagi fyrir ferðina? Vélsleðakappinn Halldór Jóhannesson Sprungur og svelgir á jöklum Þór Kjartansson, Sleðaflokki Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík Kynningu lokið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.