Fréttablaðið - 14.11.2009, Qupperneq 103
LAUGARDAGUR 14. nóvember 2009 75
U-21 undankeppni EM 2011
San Marínó-Ísland 0-6
0-1 Kolbeinn Sigþórsson (8.), 0-2 Gylfi Þór
Sigurðsson (15), 0-3 Bjarni Þór Viðarsson (18.),
0-4 Gylfi Þór (31.), 0-5 Alfreð Finnbogason (60.),
0-6 Alfreð (82.).
Norður-Írland-Þýskaland 1-1
0-1 Choupo-Moting (89.), 1-1 Norwood (90.+4).
Iceland Express-deild karla
Keflavík-ÍR 107-81
Stigahæstir hjá Keflavík: Hörður Axel Vilhjálms-
son 22, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16, Þröstur
Leó Jóhannsson 14.
Stigahæstir hjá ÍR: Nemanja Sovic 24, Gunn-
laugur H. Elsuson 9.
Snæfell-FSu 107-74
Stigahæstir hjá Snæfelli: Pálmi Freyr Sigurgeirs-
son 19, Hlynur Bæringsson 16 (13 fráköst).
Stigahæstir hjá FSu: Brynjar Karl Sigurðsson 20,
Daminic Baker 18.
Fjölnir-KR 71-100
Stigahæstir hjá Fjölni: Christopher Smith 24.
Stigahæstir hjá KR: Semaj Inge 30, Tommy
Johnson 18.
ÚRSLIT
Opið: Mán.-lau. 11 til 18 - Sun. 12 til 18 • Sími 578 9400
KORPUTORGI
STÆRSTA OUTLET
LANDSINS
Dömufatnaður
Herrafatnaður
Barnafatnaður
Íþróttafatnaður
Sundfatnaður
Töskur
Skór
Jakkaföt
14.995 kr.
Dökkblá og svört
Stærðir 46-64
Fótboltabúningar
3.495 kr.
Fyrir börn
Ýmsar gerðir
Vertu vinur MerkjaOutlet á Facebook. Kíktu á myndirnar og skoðaðu vöruúrvalið!
Íþróttabuxur
4.995 kr.
Fyrir dömur
NÝ SENDINGAF ÍÞRÓTTAFATNAÐI!
Hannah Montana
1.595 kr.
T-bolir fyrir börn
T-bolir
695 kr.
Fyrir dömur
Strigaskór
4.995 kr.
Fyrir stráka (41-46)
Náttbuxur
995 kr.
Fyrir dömur
Flíspeysur
4.995 kr.
Mikið úrval
Inniskór
695 kr.
Fyrir börn (19-26)
Champion
3.995 kr.
Hettupeysur fyrir börn
NÝ SEN
DING
AF HER
RAFATN
AÐI!
FÓTBOLTI San Marínó var auðveld
bráð fyrir strákana í U-21 árs
landsliði Íslands í leik liðanna í
undankeppni EM 2011 í gærkvöldi
en niðurstaðan var 0-6 stórsig-
ur Íslands. Ísland vann fyrri leik
liðanna 8-0 á Laugardalsvelli en
íslenska liðið hefur nú unnið fjóra
af fyrstu fimm leikjum sínum í
undankeppninni.
Íslensku strákarnir tóku öll völd
á vellinum snemma leiks í gær-
kvöldi. Var Ísland komið í 0-4 þegar
um hálftími var liðinn af leiknum
en þannig var staðan þegar flautað
var til hálfleiks. Kolbeinn Sigþórs-
son kom Íslandi á bragðið en Gylfi
Þór Sigurðsson skoraði svo tvö
mörk og Bjarni Þór Viðarsson eitt
mark en íslenska liðið óð í færum í
fyrri hálfleiknum.
Varamaðurinn Alfreð Finnboga-
son bætti svo við tveimur mörkum
í síðari hálfleiknum og niðurstað-
an því sem segir öruggur 0-6 sigur
Íslands.
„Við áttum frábær upphlaup og
nokkra góða leikkafla og í heild-
ina litið var þetta mjög gott. Við
byrjuðum leikinn mjög vel og ég
var mjög ánægður hvað strákarn-
ir mættu einbeittir til leiks og tóku
leikinn strax í sínar hendur. Menn
voru bara ákveðnir að vinna leik-
inn og það er það sem við komum
til þess að gera og það er það sem
við gerðum,“ sagði landsliðsþjálfar-
inn Eyjólfur Sverrisson ánægður í
leikslok. Eyjólfur varð reyndar að
horfa á leikinn úr stúkunni þar sem
hann fékk að líta rauða spjaldið í
leik Íslands og Norður-Írlands um
miðjan október en aðstoðarþjálfar-
inn Tómas Ingi Tómasson stýrði
liðinu af hliðarlínunni í leiknum í
gærkvöldi.
Stærsta prófið fyrir íslenska liðið
kemur hins vegar í næstu þremur
leikjum þegar það mætir Þýska-
landi í tveimur leikjum heima og að
heiman og svo Tékklandi á útivelli.
- óþ
U-21 árs landslið Íslands vann San Marínó í undankeppni EM 2011 í gærkvöldi:
Menn mættu einbeittir til leiks
STÓRSIGUR Strákarnir í U-21 árs landsliði
Íslands fóru á kostum í stórsigri gegn
San Marínó í undankeppni EM 2011 í
gærkvöldi.
KÖRFUBOLTI Þrír leikir fóru fram
í Iceland Express-deild karla í
körfubolta í gærkvöldi þar sem
KR, Keflavík og Snæfell unnu
góða sigra.
KR unnu 71-100 sigur gegn
Fjölni í Grafarvoginum þar sem
Semaj Inge skoraði 30 stig fyrir
KR og Tommy Johnson skoraði
18 stig en Christopher Smith var
stigahæstur hjá heimamönnum
með 24 stig.
Keflavík hélt sigurgöngu sinni
áfram þegar ÍR kom í heimsókn
en lokatölur urðu 107-81 þar sem
Hörður Axel Vilhjálmsson var
stigahæstur með 22 stig en Nem-
anja Sovic skoraði 24 stig fyrir ÍR.
Þá áttu leikmenn FSu aldrei
möguleika gegn Snæfelli í Stykk-
ishólmi en staðan var 24-10 eftir
fyrsta leikhlutann og 49-27 í hálf-
leik.
Snæfellingar héldu uppteknum
hætti í þriðja og fjórða leikhluta
og unnu að lokum öruggan 107-
74 sigur. Pálmi Freyr Sigurgeirs-
son var stigahæstur hjá Snæfelli
með 19 stig en Hlynur Bærings-
son kom næstur með 16 stig og 13
fráköst. - óþ
Iceland Express-deild karla:
KR-ingar aftur
á sigurbraut
BARÁTTA KR-ingar unnu góðan sigur
gegn Fjölnismönnum í Grafarvogi í
gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM