Fréttablaðið - 14.11.2009, Side 104
76 14. nóvember 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Íslenska karlalandslið-
ið er komið til Lúxemborgar þar
sem það mætir heimamönnum í
vináttulandsleik í dag.
Talsverðar breytingar eru á
hópnum frá því í leiknum gegn
Íran um síðustu helgi. Tíu nýir
leikmenn eru komnir í hópinn og
eru allir sterkustu leikmenn lands-
ins í hópnum að þessu sinni fyrir
utan Hermann Hreiðarsson, sem
er meiddur.
„Það er ansi mikil breyting á
hópnum en það er mjög gott að
fá alla þá leikmenn sem við sótt-
umst eftir,“ segir Ólafur Jóhann-
esson landsliðsþjálfari. Hann vill
ekki gera mikið úr því að lið Lúx-
emborgar sé lið sem Ísland eigi að
vinna.
„Við eigum náttúrlega ekki að
vinna neitt frekar en önnur lið.
Við getum aftur á móti sagt að ef
við spilum okkur besta leik og þeir
sinn besta eigum við að vinna. Það
þarf að hafa fyrir öllum hlutum en
að sjálfsögðu förum við í leikinn til
þess að vinna.“
Ólafur nýtir þessa vináttuleiki
til þess að halda áfram að vinna í
þeim hlutum sem hann lagði upp
með er hann tók við liðinu.
„Því fleiri leiki sem við spil-
um, þeim mun betri verðum við.
Þess vegna erum við að spila og
nauðsynlegt er að nýta alla daga
til þess að spila. Það verður ekk-
ert óvænt í kortunum hjá okkur í
þessum leik,“ segir Ólafur.
Allir leikmenn skiluðu sér heil-
ir til Lúxemborgar og Ólafur segir
að eina áhyggjuefnið sé Gunnleif-
ur Gunnleifsson markvörður, sem
glími við meiðsli í ökkla. Ólafur
segir samt ekkert vera öruggt um
hvort Gunnleifur eða Árni Gaut-
ur Arason muni standa á milli
stanganna í leiknum.
„Við erum að fara yfir það
hvernig þeir spila en eflaust reyni
ég á einhverjum tímapunkti að
fara upp með liðið og setja pressu
á þá. Það fer allt eftir því hvern-
ig leikurinn þróast,“ segir Ólafur
Jóhannesson en hann náði tveim
æfingum með liðið fyrir leikinn.
henry@frettabladid.is
Eigum að vinna þennan
leik ef við spilum vel
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari vill ekki vera með neinar hástemmdar
yfirlýsingar fyrir vináttulandsleikinn gegn Lúxemborg í dag. Miklar breytingar
eru á hópnum frá því í Teheran en tíu nýir leikmenn koma inn í hópinn.
Á FERÐ OG FLUGI Ólafur Jóhannesson og lærisveinar hans eru í Lúxemborg og mæta
heimamönnum í vináttulandsleik í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Meiðsli Franks Lamp-
ard, leikmanns Chelsea og enska
landsliðsins, reyndust minni en í
fyrstu var óttast. Hann meiddist
á læri á æfingu með enska lands-
liðinu og flaug heim frá Katar í
gær.
Upphaflega var óttast að hann
yrði frá í allt að átta vikur en nú
er ljóst að hann þarf aðeins að
hvíla í þrjár.
„Þetta á ekki að taka lengri
tíma,“ sagði Fabio Capello, lands-
liðsþjálfari Englands, sem hefur
misst marga menn úr hópnum
fyrir leikinn gegn Brasilíu á
morgun.
Fregnir herma að rekja megi
meiðsli Lampards til slæmrar
aðstöðu í flugvélinni sem fór með
liðið til Katar. Margir leikmenn
ku hafa kvartað yfir verkjum í
vöðvum þegar liðið lenti.
Enska landsliðið leigði vél sem
er ætluð fyrir styttri flug og
þægindin voru því ekki þau sömu.
Capello var samt ekki að kvarta.
„Ég skil ekki vandamálið. Við
flugum með þessari vél til Tríni-
dad, sem og til Kasakstans. Þá
meiddist enginn og við unnum
báða leiki,“ sagði Capello. - hbg
Meiðsli Englendinga:
Lampard frá
í þrjár vikur
FRANK LAMPARD Missir af næstu leikj-
um Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Flestir voru á því að
Portúgalinn Nani hefði skotið sig
hraustlega í fótinn með ummæl-
um sínum um Sir Alex Ferguson
fyrr í vikunni. Þá sagði Nani frá
reiðiköstum stjórans og gagn-
rýndi hann fyrir að hamla þróun
sinni sem knattspyrnumaður.
Menn hafa áður sagt minna um
stjórann skapstóra og fengið að
kenna á því.
„Ég ræði oft við stjórann um
frammistöðu mína. Ég virði
ákvarðanir Fergusons en ég
vil samt fá að spila meira,“
sagði Nani og reyndi að klóra í
bakkann.
„Það sem gerist í fótbolta á
heima í búningsklefanum. Þegar
Cristiano fór bjóst ég við því að
spila meira. Ég vildi fá stærra
hlutverk en þjálfarinn velur liðið.
Ég vildi fá tækifæri gegn Chel-
sea en það kom ekki. Maður verð-
ur að taka á mótlætinu og ég á
ekki í neinum vandræðum með
þjálfarann.”
Ítalskir fjölmiðlar greindu svo
frá því í gær að bæði Juventus og
AC Milan biðu spennt eftir fram-
haldi þessa máls en bæði eru
talin vilja fá hann í sínar raðir í
janúarglugganum. - hbg
Portúgalinn Nani:
Orðaður við
Juve og Milan
NANI Gæti lent í frystikistu Fergusons.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir:Styrkir
til að efla rannsóknir á sviði
umhverfis- og orkumála
Landsvirkjun er orkufyrirtæki sem leggur grunn að nútíma lífsgæðum.
Fyrirtækið stefnir að því að verða öflugt á alþjóðavettvangi og starfar af
ábyrgð í anda sjálfbærrar þróunar.
Landsvirkjun er helsti raforkuframleiðandi á Íslandi og í forystu fyrir
byggingu orkuvera sem hafa verið meðal stærstu framkvæmda á landinu.
Landsvirkjun styðst við fjölbreytt rannsóknarstarf á sviði náttúruvísinda,
verkfræði og orkumála, og rekur umfangsmikla fjármálastarfsemi á
alþjóðamarkaði.
Hjá Landsvirkjun og dótturfélögum starfa rúmlega 200 manns með fjöl-
breytta menntun. Landsvirkjun vill vera í fararbroddi í framsækinni
stjórnun og leggur áherslu á jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar.
Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna og rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.
Styrkveitingar sjóðsins miða að því að gera fjárframlög Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir
sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar.
Auglýst er eftir umsóknum um námsstyrki og verkefnastyrki.
Styrkir til nemenda í meistara- eða doktors-
námi:
Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða stunda meistara- eða
doktorsnám á sviði umhverfis- eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og
orkumála:
Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis- og orkumála. Styrkir
eru veittir til hluta þess kostnaðar sem hlýst af vinnu sérfræðinga,
þátttöku meistara- og doktorsnema, og öðrum útgjöldum.
Að þessu sinni eru í heild allt að 50 m.kr. til ráðstöfunar, allt að
40 m.kr. til rannsóknarverkefna á sviði umhverfis- og orkumála, og
allt að 10 m.kr. til styrkja fyrir 10–15 nemendur í meistara- og
doktorsnámi.
Umsækjendur þurfa að leggja fram lýsingu á rannsóknarverkefni
sínu, og rökstuðning fyrir því að verkefnið tengist markmiðum
sjóðsins. Tengingar við umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um þau gögn sem fylgja eiga umsókn er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Umsóknum ásamt fylgigögnum
skal skila rafrænt á netfang
sjóðsins:
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Fyrirspurnir má senda á netfangið
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar
2010. Öllum umsóknum verður
svarað og farið með þær sem trún-
aðarmál.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
9
19
87