Vikan


Vikan - 24.01.1952, Síða 1

Vikan - 24.01.1952, Síða 1
16 síður Nr. 4, 24. janúar 1952 KVIKMYNDIN „EIMCORE“ sem gerð er eftir þrem smásögum W. Somersets Maughams, verður frumsýnd hér í bænum á næstunni Vikan birtir nú myndir úr kvikmynd þessari, og auk þess eina söguna „Gigolo og gigolette“ (sjá bls. 3). W. Somerset Maugham er efalítið vin- sælastur erlendra höfunda hér á landi. Margar bækur hans hafa verið þýddar, svo og ýmsar beztu smásögur hans, leik- rit hans hafa verið leikin í útvarp og sýnd á sviði, nú síðast „Hve gott og fag- urt“, í Þjóðleikhúsinu. Allar sögur hans eru spennandi aflestrar, atburðarásin tíðast hröð, en auk þess á hann til óvenjulega mannúðarkímni, sem ævinlega ljær sögum hans viðfelldinn, hugtækan þokka. Maugham er enskur að ætt, en fæddist í París 1874. Stundaði síðar lækn- isnám í Englandi, lauk prófi og starfaði nokkurn tíma í Sanktitómasarspítala á syðri bakka Temsár í London. Brátt varp- aði hann læknisfræðinni frá sér og gaf sig óskiptan að ritstörfum. Hann kallar sig sjálfgerðan rithöfund, ef til vill í spaugi: tíu ár beið hann viðurkenningar, en 1907 var leikið eftir hann leikrit, sem tryggði frægðina. Síðan hefur hann farið ört hækkandi á himni bókmenntanna, og náði ef til vill hápunkti með skáldsög- unni „Fjötrar“, sem þýdd var á íslenzku fyrir nokkrum árum. Maugham_ lætur í það skína í síðustu bók sinni „XJr fórum rithöfundar", að hann hafi ákveðið að hætta ritstörfum til þess að fá nægan tíma til að lesa leynilögreglusögur, en þrátt fyrir þessa ákvörðun hefur hann fylgzt af áhuga með kvikmyndun smá- sagna sinna. Þrjár slíkar kvikmyndir hafa verið gerðar: „Quartet", „Trio“ og nú að síðustu „Encore“. Antony Darn- borough hefur framleitt þær allar. Sögurnar þrjár, sem notaðar hafa ver- ið í „Encore“, eru: „Maurinn og engi- sprettan", „Vetrarferð" og „Gigolo og gigolette". Aðalfilmstjóri var Harold French. Helztu leikendur: Glynis Johns, Nigel Patrick, Kay Walsh, Roland Culv- er og Ronald 'Squire. 1 Glynis Johns leikur Stellu í „Gigolo og gigolette".

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.