Vikan - 24.01.1952, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 4, 1952
PÓSTURINN "
Jane Wyman fœddist í Missúrí í
Bandaríkjunum 1. janúar 1914.
Hún hóf feril sinn upphaflega sem
dægurlagasöng-
kona, komst fyrst
í kvikmynd 1936
og lék í fjölda
léttvægra gaman-
mynda, en vakti
enga eftirtekt fyrr
en árið 1944 er
hún lék í Glataðri
kelgi stúlkuna sem
lagði sig í líma til
að frelsa Ray
Milland frá of-
drykkju. Þó höndl-
aði hún ekki fulla
v'iðurkenningu fyrr
en í Belindu, sem tekin var 1948.
Síðan hefur hún meðal annars leik-
ið í Glerdýragarðinum, kvikmynd
gerðri eftir leikriti Tenesee Williams,
en það var leikið í útvarpinu ekki
alls fyrir löngu.
Svar til „Ástsjúkrar“.
Það er erfitt að gefa ráð í máli
eins og þessu. Af lýsingu þinni á
manninum verða ekki dregin önnur
ályktun en að hann sé ístöðulaus og
fram úr hófi veikgeðja, og auk þess
vafalaust að honum þyki nokkurn
skapaðan hlut vænt um þig. Vafa-
laust yrði farsælast fyrir þig ef þú
gætir siitið öllu sambandi við hann,
en slíkt ráð er hægara en halda. Á
hitt er þó einnig að líta, að þú ert
ekki ung lengur og tilfinningar þínar
í hans garð þvi sjálfsagt ekki hverf-
ull ungæðisskapur. En farir þú að
ráðum vinar hans, þá verðurðu að
gera þér Ijóst, að þá tekurðu ákvörð-
un fyrir ykkur bæði og munt að öll-
um líkindum þurfa að taka á þínar
herðar einar þær byrðar, sem annars
eru að jafnaði tveim manneskjum
ætlaðar. — Annað af þessu tvennu
verðurðu að gera, en ákvörðun um
það hvorn kostinn þú velur getur þú
ein tekið.
Kæra Vika min!
Þetta er nú í fyrsta skipti sem
ég skrifa þér og vona ég, að þú svar-
ir spurningum mínum.
1. Ég er með frekar þunnt og lítið
hár, hvað á ég að gera til þess að
það vaxi og þykkni?
2. Ég er 15 ára og er 161 cm. á
hæð. Er ég of lítil eftir aldri? Hvað
á ég að vera þung?
3. Þarf að hafa gott gagnfræða-
próf til að komast í Iþróttakennara-
Skólann á Laugarvatni?
4. Og seinast, hvemig er skriftin?
Þin Dadda.
ywMiimiiiiuiii........................i^
Tímaritið SAMTIÐIN |
Fiytur snjallar sögur, fróðlegar |
greinar, bráðsmellnar skopsögur, í
iðnaðar-. og tækniþátt o. m. fl. =
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr. j
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. =
Askriftarsími 2526. Pósthólf 75. :
MIIIMIIIMMMMIIMMMIMIIIIIIIIIMIMMMMIIIMIMMIMOtl
Svar: 1. Ekki kunnum við annað
ráð við þvi en góða hirðingu á hár-
inu, sé hún gagnslaus, ættuð þér að
snúa yður til hárgreiðslukonu, hún
gæti ef til vill gefið yður gott ráð.
Framhald á bls. 10.
BKÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Jóhanna Þorvarðardóttir (við pilt
eða stúlku 17—20 ára), Hallorms-
stað, S.-Múlasýslu.
Anna Skarphéðinsdóttir (við pilt eða
stúlku 20—22 ára), Hallormsstað,
S.-Múlasýslu.
Patricia Lange, 292 Gladstone Road,
Gisborne, Poverty Bay, NEW
ZEALAND — óskar eftir bréfa-
sambandi við pilt eða stúlku hér
á Islandi. Haim er 16 ára og skrif-
ar aðeins ensku.
Lína Björnsdóttir (pilta 17—23 ára,
mynd fylgi),
Ásta Jónsdóttir (17—23 ára, mynd
fylgi), báðar í húsmæðraskólanum
að Varmalandi, Borgarfirði.
Sigurður Guðmundsson (pilta eða
stúlkur 19—23 ára, mynd fylgi),
Jón Ólafsson (19—23 ára, mynd
fylgi), báðir að Garði, Vestmanna-
eyjum.
Birna Jóhannsdóttir (pilt eða stúlku
14—16 ára), Brákarbraut 3, Borg-
arnesi.
Sjöfn Ásbjörnsdóttir (pilt eða stúlku
14—16 ára), Gunnlaugsgötu 13,
Borgarnesi.
Sonja Ásbjörnsdóttir (pilt eða stúlku
14—16 ára), Gunnlaugsgötu 13,
Borgarnesi.
Hrönn Sævars,
Ósk Óskars,
Helena Gunnars,
Lajla Hjálmars,
Olga Hafberg og
Anna María Sigurðar óska að kom-
ast í bréfasamband við fjöruga
pilta á aldrinum 18—25 ára. Allar
í Húsmæðraskóla Suðurlands,
Laugarvatni, Árnessýslu.
Erna Halldórsdóttir (við pilt eða
stúlku 15—17 ára), Suðurgötu 118,
Akranesi.
Benedikt Guðmundsson (við stúlkur
18—28 ára), Stíganda HtJ 9, Sand-
gerði.
Ragna Sólberg,
Sigriður Bjamadóttir (við pilta 17
—20 ára), báðar áj Suðureyri, Súg-
andafirði.
Guðrún Þorvaldsdóttir við (pilt eða
stúlku 16—19 ára), Brekkugötu 7,
Ólafsfirði.
Guðrún Sigurðardóttir (við pilta 16
—19 ára), Strandgötu 9, Ólafsfirði.
Guðrún Gísladóttir (við pilta 17—19
ára), Strandgötu 21, Ólafsfirði.
Anna Jónasdóttir (við pilta 17-—20
ára), Aðalgötu 22, Ólafsfirði.
Kristin Ólafsdóttir (við pilta 16—19
ára), Ólafsveg 2, Ólafsfirði.
Sigurbjörg Ólafsdóttir (við pilta 17
—19 ára), Ólafsveg 10, Ólafsfirði.
Guðlaug Gísladóttir (við pilta 14—
16 ára), Strandgötu 21, Ólafsfirði.
María Lillý Ragnarsdóttir (við pilta
16—18 ára) og
Inga Rún Vigfúsdóttir (við pilta 15
—18 ára), báðar í Reykholtsskóla,
Borgarfirði.
Jane Wyman
Þjóðleikhúsið sýnir Önnu Christie.
eftir EUGENE O’NEILL.
Eugene O’Neill er ekki jafnkunnur
liérlendis og hann verðskuldar. Óefað
telst hann í hópi fremstu og frumleg-
ustu leikhöfunda samtímans. Leikrit
hans eru mörg hver tilraun þess hvað
bjóða má leiksviðinu (Loðni apinn,
The Emperor Jones, Marco Millions)
og ætti því að vera þroskandi fyrir
leikhús lítt reynt á tæknilegum svið-
um að spreyta sig á þeim. önnur
leikrit hans eru stórfelldir harmleik-
ir, og þó kannski magnþrungið líf
fyrst og fre.mst eins og Anna Christie
sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu
15. janúar síðastliðinn. Það leikrit
er hvorki öflugt að boðskap né djúp-
tækt í harmrænum skilningi og þó
má eygja í því ákafa tilraun til að
skilja hið sanna frá því ósanna í lífs-
viðhorfum, kemur það einkum fram
í ást föðurins, Chris, og elskhug-
ans, á stúlkunni Önnu. Hún verður
þeim nokkurs konar helgitákn sem
skal friðþægja fyrir sorafullt líf
þeirra á sjónum: í henni sjá þeir lífs-
þrá sína klædda holdi. Sagan er sú
að farmaður (Chris) sendir dóttur
sína bráðunga upp í sveit til að forða
henni frá örlögum sjálfs sins. Leik-
ritið hefst fimmtán árum síðar. Þá
er Chris orðinn skipstjóri á kola-
pramma og fær nú bréf frá dóttur
sinni þar sem hún boðar komu sína.
Síðar kemur stúlkan og segir bein-
um orðum í samtali við Mörtu, við-
hald Chris, að hún hafi undanfarið
skeið verið í hóruhúsi ? Hún flytzt
út á prammann til föður síns og svo
bregður við að sjórinn hefur svo
sterk áhrif á hana að hún endurfæð-
ist, ef svo má segja. Hún kemst í
kynni við írskan sjómann, faðirinn
fylhst afbrýðisemi, það verða marg-
vísleg samhlaup, en að lokum endar
sagan í lukku og kossi.
Vandamál hinnar afvegaleiddu
stúlku er ekki krufið til mergjar í
leikriti þessu, heldur aðeins notað
til yddingar hins harmræna brodds.
Orsökina er að vísu reynt að segja
í þessum háamerískum orðum: ,,ég
var svo einmana", en ég held það
sé bara spaug.
Enginn getur frýð Indriða Waage
ágætis sem leikstjóra, en oft hefur-
honum tekizt betur. Ég nefni til
dæmis annan þátt: þar þótti mér
vanta sjóstemninguna.
Sýningin var haldin í tilefni fimm-
tíu ára afmælis hins snjalla leikara.
Vals Gíslasonar (því miður er ekki
rúm til að minnast hans nánar hér.)
Hann lék Chris af mikilli festu og
næmum skilningi svo að hvergi
skeikaoi. Rúrik Haraldsson lék Mat.
Honum tókst bezt að sýna kæruleysi
Mats, geipið varð sannfærandi í
munni hans og sömuleiðis tókst hon-
um vel að túlka hjátrúarhneigðina,
en þegar á skyldi herða, þegar hin
viðkvæma lund þessa hrjóstuga
manns var særð brugðust Rúrik hug-
artökin: bæði hryggð og reiði reynd-
ust honum ofjarlar. Inga Þórðar-
dóttir lék Mörtu Owen, viðhald Chris.
Ég held frú Ingu hafi aldrei tekizt
að skapa jafn heilsteypta, persónu
sem Mörtu. Herdís Þorvaldsdóttir lék
Önnu. Hún lék prýðilega í fyrsta
þætti, en síöar, þegar straumhvörf-
in verða örari, þegar rás atburðanna
skírskota til þroska hennar og skap-
hita kvoðnar persónan í höndum
hennar: þá verður Anna að mann-
eskju sem hefur alls ekki endurfæðzt
og veit ef til vill enn síður hvað er
að vera í lióruhúsi. önnur hlutverk
voru minni, en öll prýðisvel mót-
uð: Séra Jónki Róberts Arnfinnsson-
ar, Larry Baldvins Halldórssonar og
bréfberi Klemensar Jónssonar. Svo
eru hafnarverkamenn og hásetar.
Leiktjöld málaði Lárus Ingólfsson.
Þýðingu a.nnaðist Sverrir Thoroddsen.
Málfar Mats og Chris hefði mátt vera
sneyddara bóklegum orðum og meir
lífi gætt, t. d. fannst mér forsetn-
ingin ,,vegna“ fara heldur illa I
munni Mats: „vegna krafts míns.“
Einnig er leiðinlegt að heyra uppi
á leiksviði: ,,að koma á legg“, i
stað ,,að komast á legg“, „fínnrar“
í stað fínnar o. fl. Mikiö er af bölvi.
og ragni og ekki hélt ég blótsyrði
nytu jafn mikilla vinsælda og raun
bar vitni.
E. E. H.
Mat Burke (Rúrik Haraldsson), Anna
Christie (Herdís Þorvaldsdóttir).
Séra Jónki (Róbert Amfinnsson),
Larry þjónn ' (Baldvin Halldórsson),
Chris (Valur Gíslason).
(
Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.