Vikan


Vikan - 06.03.1952, Síða 1

Vikan - 06.03.1952, Síða 1
LÍFIÐ í BRISBANE Eftir EDITH GUÐMUNDSSON. I blöðxmum nr. 26, 27, 28, 33 og 34 birt- ist ferðasaga konu Eggerts Guðmimds- sonar listmálara, en þau hjónin lögðu af stað héðan til Ást- ralíu í ársbyrjun 1951 og með {teim imgur sonur þeirra, Thor. 1 blaði nr. 34 lauk frásögn frúarinnar af hinni löngu ferð fjölskyldiumar. Nýlega barst grein frá henni, þar sem hún segir frá dvöl sinni í Brisbane, höfuð- borg Kvínslands. ISAMA mund og ráðhúsklukkan slær tólf högg, heyrist annarlegt hljóð, „kú —holu—haha“ Það þrýstir á hljóðhimn- una eins og ónotalegur smellur, og því lýkur með hæðnislegum hlátri. Hvern dag um hádegisbilið rekur Kooka- burra upp sitt undarlega hljóð. Ennþá hefur engum tekizt að líkja eftir þessu hljóði, sem er svo einkennandi fyrir vin- sælasta fugl Ástralíu, hláturfuglinn, eins og hann er kallaður auk fleiri nafna. Hann situr uppi í ljósastaumum fyrir framan húsið okkar. Ég bregð mér inn eft- ir kjötbita, fleygi honum því næst út á götuna. Kobbi fylgist með hverri hreyf- ingu minni af athygli ofan frá bækistöð sinni. Hann er mjög aðgætinn og einkar hirðusamur. I einni svipan rennir hann sér til jarðar, grípur kjötið og hefur aft- ur komið sér fyrir á staurnum. Það úir og grúir af smá ferfætlingum í garðinum. Það er urmull af skriðdýrum, miklu stærri en við höfum vanizt á norðlægari breidd- argráðum, og öllum hugsanlegum skor- dýrum, sem maður hefur aldrei séð áður. Við komum til Brisbane í marzlok. Það var afar heitt og fyrstu vikurnar höfð- um við engan frið fyrir moskitóflugum. Hið norræna blóð okkar var þeim hið mesta nýnæmi og eftir lystinni að dæma hefur þeim þótt það hreinasta lostæti. Fyrsta mánuðinn vorum við bólgin á hand- leggjum og fótum og þjáðumst af stöð- Frh. á bls. 3. Thor með kengúruunga í fanginu.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.