Vikan - 27.03.1952, Page 9
VIKAN, nr. 13, 1952
9
Frétta,-
IVIVNDIR
Litla stúlkan á myndinni er frá
Chicago í Bandaríkjunum. Hún er
aðeins iy2 árs gömul, en hefur tvisv-
ar þurft að leggjast á skurðarborðið.
Þegar hún fæddist var hún óeðlilega
blá, og var það vegna truflunar á
blóðrásinni. Hún var 6 mánaða í
fyrra skiptið, sem hún var skorin
upp, en þá gátu skurðlæknar að-
eins hjálpað henni um stundarsakir
vegna þess, hve ung hún var. Eftir
seinni uppskurðinn, fórust móður
hennar þannig orð: „Þegar hún kom
úr skurðstofunni hafði hún fallegan,
bleikrauðan litarhátt í staðinn fyrir
bláan eins og áður.“
Myndin til vinstri er af kvikmyndaleikaranum George Sanders, sem hlaut verðlaun fyrir bezt leikna
karlmannshlutverkið árið 1950, var það i kvikmyndinni „All about Eve“, sem var úrskurðuð bezta
mynd þess sama árs. Til hægri er mynd af Josephine Hull, en hún fékk verðlaun fyrir bezt leikna
kvenhlutverkið árið 1950. Sjá má að hún er geislandi glöð yfir sigrinum.
■ .'Á
,
Efri myndin er frá réttarhöldunum í sambandi við prófsvikin, sem nýlega komst upp um í West
Point-herskólanum.
Neðri myndin er af nemendum West Point á leið til knattspyrnuæfingar.
Frank Sedgman heitir þessi ungi
maður, hann er frá Sidney, höfuð-
borg Ástralíu. Hann tók þátt í tenn-
isleik í Bandaríkjunum, og vegna
frábærrar frammistöðu hans vann
Ástralía Davisbikarinn annað árið í
röð. Eftir leik þennan, sem stóð yfir
i þrjá daga, tekur Frank Sedgman
öllum leikmönnum í tennisíþróttinni
fram. Hann er nú að íhuga ýmis til-
boð, sem honum hafa verið gerð um
að verða atvinnuleikari.