Vikan - 15.05.1952, Side 10
10
VIKAN, nr. 19, 1952
HEIMILIÐ
með
Grænmetisréttur
brauðsnúðum:
2 yz bolli hveiti, 3% tsk. lyfti-
duft, % tsk. salt, % bolli steik-
arfeiti, 1 bolli mjólk, 1% bolli
niðurrifirm ostur, 3 bollar græn-
meti (baunir, gulrætur, kart-
öflur).
Blandið lyftiduftinu og saltinu í
hveitið og hrærið það saman við
steikarfeitina. Hellið mjólkinni i,
allri í einu og hrærið þar til það er
vel blandað saman. Þetta er hnoðað,
flatt út og ostinum dreift yfir. Deig-
inu er nú rúllað upp og því skipt í
sex hluta. Hver hluti er örlítið flatt-
ur út og þeir lagðir á smurða plötu.
Bakað í heitum ofni. Borið fram á
fati, þannig að grænmetið sé í miðj-
unni, tómatsósa í hring utan um og
brauðsnúðarnir lagðir þar ofan á.
Tómatsósan:
3 msk. feiti, 4 msk. hveiti, 2 tsk.
salt, 2 tsk. sykur, % tsk. pipar,
3V2 bolli tómatar, (kreistir
tómatar).
Feiti, hveiti og kryddi blandað
saman. Tómötunum bætt í og hrært
vel í á meðan. Soðið yfir hægum eldi
þar til það er þykkt og mjúkt.
HÚSRÁÐ
Ef yður virðist gólfið ekki lengur
eins fallegt og þér viljið hafa það,
er bezt að taka gamla lakkið af áður
eh þér lakkið það aftur. Ágætt er aS
leýsa % kg. af sóda upp í 1 líter af
áfum. Gólfið er síðan þakið með jöfnu
lagi af þessari blöndu og hún látin
liggja á yfir nóttina. Auðvelt er þá að
ná af gamla lakkinu, sem nú er upp-
leyst, með því að þvo gólfið nokkr-
um sinnum úr volgu vatni. Þessi að-
ferð er mikið ódýrari og hættuminni
en efni sem keypt eru í verzlunum
og sprengihætta stafar af.
Nýjung í fataframleiðslu.
Saumastofa Gefjunar í Reykjavík
hóf fyrir skömmu saumun ódýrra
sumarfata. Er hér um að ræða sport-
jakka og stakar buxur. Jakkarnir
eru úr tvítefnum og kosta frá 473
krónum, buxurnar kosta frá 257
krónum. Slikar flíkur eru mjög í
móð í Bandaríkjunum um þessar
mundir, hafa reyndar lengi tíðkazt
meira og minna og þykja hentugar,
vegna þess, að kaupa má tvennar
buxur við sama jakka.
Ungur klæðskeri fór til Banda-
ríkjanna að kynna sér fatafram-
leiðslu. Hann hefur yfirumsjón með
verkinu og eru fötin saumuð eftir
sérstöku kerfi númera, sem gerir
öllum mönnum kleyft að finna föt
við sitt hæfi, enda eru jakkarnir t.
d. i fjörutiu stærðum og úr yfir
tuttugu mismunandi efnum.
Fötunum hefur verið gefið nafnið
Sólíd.
Heimilissýningin í París.
Á hverjum vetri er haldin heim-
ilissýning í Grande Palais í París.
Hún er miðuð við að gefa almenningi
kost á að kynnast nýjungum í öllu
því, sem lýtur að húsum, innanhús-
skreytingu, heimilisvélum og matar-
gerð.
Utan við höllina er komið fyrir
litlum húsum, sem sýna hentuga
herbergjaskipun. Á sýningunni, sem
haldin var síðastliðinn vetur, voru
þar einnig húsaþök úr þykku gleri,
þannig að sólarljósið skín óhindrað
inn á efstu hæðina. Sum þeirra voru
bylgjuð eins og bárujárn, svo ekki
þarf að óttast, að vatn safnist fyrir
og valdi leka. Arkitektar okkar ættu
að athuga, hvernig þessi þök reynast,
því ekki veitir okkur Islendingum af
sólarljósinu. Það væri t. d. ekki ama-
legt að útbúa leikherbergi barnanna
uppi á háalofti, þar sem hver sólar-
geisli næði til þeirra allan veturinn.
Við innganginn var svo komið fyr-
ir líkönum af byggingum og lóðum.
Mest bar þar á húsum, þar sem
neðsta hæðin er á stöplum, svo um-
ferðin geti óhindruð legið undir hús-
inu.
Þegar inn er komið snúum við
okkur fyrst að húsgagnadeildinni.
Fyrst kemur röð herbergja, útbúin í
einhverjum gömlum stil. Þar höfum
við t. d. stofur Lúðvíkanna þriggja,
14., 15. og 16.
Ef skreyta á herbergi þarf auð-
vitað að byrja á að velja veggfóður,
svo fyrsta herbergi nútíma deildar-
innar er helgað því. Ræmur af vegg-
fóðri hanga hlið við hlið niður vegg-
inn. Á hverri þeirra er komið fyrir
litlum glugga. Ef maður litur í hann,
sést fyrst gamalt, drungalegt her-
bergi eða jafnvel ruslakompa á háa-
lofti, en eftir augnablik breytist
myndin og sýnir nú annað herbergi
með sömu húsgögnum, öðruvísi fyrir-
komið og með nýja veggfóðrinu, ann-
að hvort yfir allt herbergið eða
ásamt öðrum lit.
Þá tekur við gangur með her-
bergjum til beggja handa skreyttum
af beztu innanhússkreyturum Frakk-
lands, og þar eru líka nokkur her-
bergi af öðru þjóðerni. Mest áherzla
virðist lögð á að koma húsgögnunum
haganlega fyrir eða sameina þau.
I einu barnaherbergi fyrir tvö börn,
er annað rúmið lækkað og ýtt undir
hitt, sem er legubekkur á daginn.
Þar eru tvö skrifborð, sem má
hækka, þegar börnin stækka og bóka-
hillum er komið fyrir í göflum rúm-
anna.
Eitt svefnherbergið vekur sérstaka
athygli. Hjónarúmið er úr körfu, sem
er í laginu eins og stór kúskel. Manni
kemur ósjálfrátt í hug að hjónunum
þurfi að koma mjög vel saman því
þau muni annars velta saman í miðri
skelinni, en botninn hlýtur að vera
jafnaður með dýnunni. Ábreiðan er
úr brún- og hvítskjöldóttu kúskinni
og ekki látin ná út fyrir brúnirnar.
Annað herbergi var líka útbúið
körfuhúsgögnum. Það var ætlað fyr-
ir unga stúlku. Rúmið var aflöng
karfa á fótum, með himni úr rósóttu
efni. Borðfóturinn var úr körfu,
mjóstur um miðjuna og' platan úr
gleri. Venjulegur körfustóll fylgdi.
Standlampinn var úr einum körfubút
og sveigðist þannig að nota mætti
hann fyrir borðlampa eða náttlampa,
með því aðeins að færa hann að borð-
inu eða rúminu.
Aftur á móti var herbergi fyrir
karlmenn útbúið húsgögnum i ein-
földum línum og úr fallegum ljósum
viði. Áklæðið var úr skozku ullar-
efni.
Á þessari sýningu var mikið um
bókahillur, og þær voru allar þannig
útbúnar, að bilið milli hillanna mætti
stækka og minnka eftir stærð bók-
anna. Eitt herbergið hafði t. d. heii-
an vegg þakinn hillum. Málmlistar
lágu með jöfnum millibilum niður
eftir veggnum. Á þessum listum voru
nokkuð þétt göt, sem hillurnar voru
hengdar í, þannig að þær stóðust ekki
á. Hillurnar voru aðeins borð með
tveim krókum á. I sumar var raðað
bókum og skrautmunum í aðrar.
Yfir lágum skáp í einni borðstof-
unni og yfir sófa í setustofu var kom-
ið fyrir nútímamálverkum. Þau voru
ekki máluð á striga, heldur nokkurs-
konar plastefni, sem hafði sérkenni-
lega lögun og sveigju. Ljós var bak
við myndirnar.
1 stórum sal vár komið fyrir borð-
búnaði. Þar voru fjögur veizluborð,
skreytt sitt með hverju móti. Með
veggjunum voru hillur fullar af dýr-
indis silfri, postulíni og kristal. Eitt
Framhald á bls. 13.
Tízkumynd
Trefill, belti,
hanzkar og skór
úr skozku ullar-
taui. Það má nota
allt saman t.
d. við einfalda
dragt eða hvert
fyrir sig. Treflin-
um má vefja um
hálsinn, eins og
sýnt er á mynd-
inni, eða hafa
hann yfir herðun-
um, svo vasarnir
séu báðir að fram-
an. Beltið er
skreytt giltum
hnöppum.
Flugfélag íslands h.f.
FLUGÁÆTLUN
fyrir maí 1952
Innanlandsflug.
REYKJAVÍK :
Sunnudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
Mánudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Seyðisfjarðar
— Neskaupsstaðar
— Isafjarðar
— Vatneyrar
— Kirkjubæjarklaust-
urs
— Fagurhólsmýrar
— Hornafjarðar
— Siglufjarðar.
Þriöjudaga:
‘ Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Blönduóss
— Sauðárkróks
— Bíldudals
— Þingeyrar
— Flateyrar.
MiöviTcudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Isafjarðar
— Hólmav. (Djúpav.)
— Hellisands
— Siglufjarðar.
Fimmtudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Blönduóss
— Sauðárkróks .
— Reyðarfjarðar
— Fáskrúðsfjarðar.
Föstudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Kirkjubæjarklaust-
urs
— Fagurhólsipiýrar
— Homafjarðar
— Vatneyrar
— ísafjarðar.
Laugardaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Blönduóss
— Sauðárkróks
— Isafjarðar
— Siglufjarðar.
Flugferðir til Kópaskers
og Egilsstaða verða aug-
lýstar síðar.
Flugfélag íslands h.f.