Vikan - 22.05.1952, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 20, 1952
FRÍMERKJASKIPTI
Sendið mér 100 islenzk fri-
m.erki. Ég sendi yður um hæl
200 erlend frímerki.
Gunnar H. Steingrímsson
Nölíkvavogi 25 — Heykjavík
1. Geturðu gefið mér upplýsingar
um meðferð á Híulitum. Hvernig á
að blanda Linolíu og terpentinolíu
saman við litinn.
2. Eiga litirnir að vera þunnir eða
þykkir þegar búið er að hræra þá
út.
3. Má ekki mála með olíulitum á
góðan pappír.
Með fyrirfram þakklæti.
Einn úr hópnum.
Svar: 1. Engar reglur eru um
magn terpentínolíunnar,. sem blanda
þarf í litinn. Það verður að vera eft-
ir þörfum. Linolía mun vera í litn-
um og óþarfi að blanda henni í. Þó
má setja örlítið á pensilinn um leið
og málað er.
2. Bezt er að hafa litinn þunnan
til að byrja með, en þykkari, þegar
byrjað er að mála yfir.
3. Það er ekki hægt að mála með
olíulitum á pappír, nema hann sé lím-
borinn. ____
Kæra Vika!
Þú sem hefur veitt okkur svo
marga skemmtilega miðvikudags-
eftirmiðdaga. Okkur langar til að
biðja þig að svara nokkrum spurn-
ingum fyrir okkur.
1. Er A1 Jolson á lífi. Ef svo er
viltu þá segja okkur eitthvað um
hann, t. d. hvar heima, hvað gamall?
2. Er hann mjög líkur Larry
Parks ?
3. Er óhollt að baða sig úr mjög
heitu vatni?
Tímaritið SAMTÍÐIN
Flytur snjallar sögur, fróðlegar
greinar, bráðsmellnar skopsögur,
iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl.
10 hefti árlega fyrir aðeins 35 kr.
Ritstjóri: Sig. Skúlason magister.
Áskriftarsími 2526. Pósthólf 75.
4. Hvað er hægt að gera við bláa
og bólótta handleggi til að fá þá
hvíta og slétta?
5. Hvað eigum við að vera þungar?
önnur er 17 ára og 156 cm. t bæð,
en hin er 16 ára og 160 cm. á hæð.
Með fyrirfram þakklæti og von
eftir svari sem fyrst.
Tvær heimasætur.
Svar: 1. A1 Jolson er dáinn. Hann
dó i fyrra í Kóreu, þar sem hann
söng fyrir hermennina.
2. Eftir myndum að dæma hefur
hann ekki verið mjög likur Larry
Parks í útliti.
3. „Heit böð eiga að jafnaði ekki
að vera heitari en 32—36°“, segir
Fegurð og snyrting. „Þegar kalt er
í veðri, má vatnið vera 2° heitara".
4. Gætið þess vel að fara ekki út
í kuldann með bera handleggi. Gott
er að bursta handleggina með gróf-
um bursta og bera síðan krem á þá,
til að halda þeim mjúkum. Ef um
ljótar bólur er að ræða ættuð þið að
leita læknis.
5. Sú sem er 17 ára ætti að vega
50.8 kg. Sú 16 ára ætti að vega 53.5
kg. ____
Kæra Vika!
Viltu vera s\ - góð og svara fyrir
mig eftirfarandi spurningum.
1. Hver er talin vera hámarksald-
ur álftar, arnar og hrafns?
2. Hvað er randafluga?
3. Er jötunuxinn lirfa kaupmanns-
fiðrildisins ?
Með' fyrirfram þökk.
Steini Stormur.
Svar: 1. Það er ekki hægt að vita
um hámarksaldur fugla. — 2. Það er
ekki sama flugan, sem kölluð er
randafluga í ýmsum landshlutum, og
því get ég ekki svarað þessu, nema
vita hvaðan þú ert og við hvaða
ílugu þú átt. — 3. Jötunuxinn er sér-
stök bjöllutegund.
Kæra Vika!
Ég ætla að biðja þig að gefa mér
nokkrar upplýsingar um mín vanda-
mál. En svo er mál með vexti að mig
langar að fara á námskeið í hússtjórn
og svoleiðis en get ekki tekið heilan
vetur og langar nú mig að biðja þig
að svara eftirfarandi spurningum
fyrir mig.
1. Eru ekki haldin námskeið í Rvík
og hvert á maður að senda umsókn ?
2. Hvað tekur námskeiðið langan
tíma og hver kostnaður er áætlaður
við það ? Annars ef þú getur ekki
leyst úr þessu þá bið ég þig að vísa
mér á annan stað.
Með þakklæti fyrir ómakið,
þin Didda Stina.
Svar: Húsmæðraskóli Reykjavíkur,
Sólvallagötu 12, hefur 2 námskeið
yfir veturinn, annað frá miðjum
september til 1. febrúar og hitt frá
1. febrúar. Skólatíminn er frá 8.15
til 4.30. og er skipt milli matreiðslu-
starfa og hannyrða.
Við kostnaðinn kemur þrennt til
greina: skólagjald, fæðiskostnaður
og efni, og mun þetta vera nokkuð
breytilegt.
BUÉFASAMBÖND
Birting á nafni, aldri og heimilis-
fangi kostar 5 krónur.
Stefán Halldórsson (við ungt fólk 14
—16 ára, mynd fylgi), Gili, Gler-
árþorpi, Akureyri.
Jenný Marteinsdóttir (við ungt fólk
15— 17 ára, mynd fylgi) og
Kolbrún Viggósdóttir (við ungt fólk
16— 18 ára, mynd fylgi), báðar í
Stykkishólmi.
Guðrún Eggertsdóttir (við ungt fólk
PÓSTURINN
6. bekkur Barnaskóla Reykjavíkur vorið 1902.
Góða Vika,
Viltu segja okkur eitthvað um
Lionel Barrymore og helzt birta mynd
af honum. Hann leikur í kvikmynd-
inni Down to the Sea in Ships, sem
Nýja Bíó sýndi um daginn.
Abba og Laba.
Lionel Barrymore er fæddur í
Philadelphia 28. apríl 1878. Hann
var, ásamt syst-
kinum sínum, John
og Ethel, alinn upp
til að verða leik-
15—25 ára), Útibleiksstöðum, Mið-
firði, V.-Hún.
Ólafía Bjarney Ólafsdóttir (við ungt
fólk 14—16 ára), Króksfjarðar-
nesi, A.-Earl.
Maður þessi á hundinum líf að
launa. Eldur kom upp í húsi hans í
Minneapólis, og hundurjnn vakti
hann i tíma með því að sleikja and-
lit hans. 17 menn fórust í eldsvoða
þessum. Maðurinn er nýkominn af
sjúkrahúsi þegar myndin var tekin.
ari. Hann lék fyrst
á leiksviði, og síð-
an 1909 hefur hann
leikið í fjölda
kvikmynda. Hann
hefur þjáðzt af
gigtveiki í mörg
ár, svo að hann
verður oft að leika
Efsta röð frá vinstri: Guðríður Guðmundsdóttir, Guðlaug Magnúsdóttir frú, Elísabet Halldórsdóttir Egilson
frú, Guðrún Þorkelsdóttir verzlunarstjóri, Ragnheiður Bertelsen húsgagnasm. — Efri miðröð: Sigurjón Pét-
ursson, Álafossi, Jón Halldórsson skrifst.stj. Lb„ Haraldur Viggo Björnsson, bankastjóri, Jón Sívertsen verzl-
unarskólastjóri, Ólafur Coghie, Halldór Kristinsson, héraðslæknir, Geir Thorsteinsson útgerðarmaður, Sigríður
Blöndal Fjelsteð — Neðri miðröð: Guðríður Einarsd. frú, Helga Jónasdóttir, Sigríður Zoega, ljósmyndari, Svava
Þórhallsdóttir frú, Sigríður Jóhannesdóttir frú, Martha Indriðad. Kalman, frú, Steinunn Gísladóttir. — Neðsta
röð: Bjarni Snæbjörnsson, læknir, Ásmundur Guðmundsson, prófessor, Sigtryggur Eiríksson Kaldan, læknir,
Kornelíus Sigmundsson, múrarameistari, Ólafur Einarsson frá Háholti.
Lionel Barrymore
í hjólastól, en það
stöðvar hann ekki.
Lionel Barry-
more er 6 fet á hæð, hefur blá augu
og grátt hár.
Kæra Vika.
Ég hef aldrei skrifað þér áður, en
vonast samt eftir að fá svar.
Otgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Tjamargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.