Vikan - 29.05.1952, Síða 9
VIKAN, nr. 21, 1952
9
FRÉTTAMYNDIR
Pyrrverandi næturklúbbaeigandi, M. Roland, 44 ára, grætur, eftir
að hafa verið ákærður fyrir rétti í New York. Hann var ásakaður
um að hafa stungið son sinn, Miguel, tl ára gamlan, til dauða i
íbúð konu sinnar, sem var orðin honum fráhverf.
Nancy Callaghan stiklar í hollensk-
um búningi yfir túlípanabeð í blóma-
sýningargarði í New York. Sýningin
hét „Túlípanar í Hollandi." Sýndar
voru 5.000 tegundir. Sýningin var
haldin í tilefni af því að von var á,
Júlíönu Hollandsdrottningu til
Bandaríkjanna.
á William Womack og unnusta hans, Kathleen May taka við gift-
-ingarleyfi sínu i Síkagó. Ballet-dansmærin, sem missti sjónina fyrir
tveim árum, hitti Womack í veizlu fyrir fimm mánuðum og varð
ástfangin af barritonrödd hans. ,,Bronze“, hundur Kathleenar verður
við hlið hennar i kirkjunni meðan á giftingarathöfninni stendur.
Herflokkur í sundurskotinni götu í Ismailia í Egyptalandi, þar sem að minnsta kosti 46 Egyptar
voru drepnir og 72 særðir, í bardaga milli brezks herílokks og aðstoðarlögreglu hjá Ismailia. Þessi
atburður veikti mjög sambandið milli Stóra-Bretlands og Egyptalands. Brezk flotadeild fór frá
Malta til Suez-skui'ðarins, en í henni var flugvélamóðurskipið Ocean (efri myndin).