Vikan - 12.06.1952, Síða 11
VIKAN, nr. 23, 1952
11
>•
.1 «? eiðum
SAKAMÁLASAGA
Framhaldssaga:
eftir MIGNON G. EBERHART
23
20. KAFLI.
Woody kom aftur með nýburstuð reiðstígvél í
hendinni. Hann var í góðú skapi. „Hvað finnst
þér, Sue?“
„En, Woody, hver skaut þá úr Furuskógi?"
Hann gekk út að glugganum og horfði niður
á stígvélin: „Einhver, sem var á veiðurn," sagði
liann, „það hefur verið óhappaskot og svo hefur
hann orðið hræddur og flúið.“
„Og Jeremy — hvernig skýrir þú það?“
„Sam Bronson hefur barið og hrætt hann.“
„1 gærkveldi og i fyrradag, á ég við.“
„Hann er enn hræddur og taugaóstyrkur.
Karólína frænka dekrar svo við hestana sína og
hundana, að þeir verða að dekurdýrum.“
Hélt hann í raun og veru nú, um hábjartan
daginn, að málið væri leyst ? Hún sá ekki framan
í hann. „En dr. Luddington hefði aldrei verndað
Sam Bronson svo að Jed yrði dæmdur sekur.“
„Þú getur ekkert vitað um, hvað hann hefði
gert eða ekki gert. Við skulum halda okkur að
staðreyndunum, sem eru þær, að Sam Bronson
skaut sig.“
„Hvernig útskýrir þú það sem kom fyrir í
gærkveldi — og reimina?"
Það dimmdi yfir svip Woodys. „Hamingjan
góða, Sue, vilt þú alls ekki trúa þessu ? Geturðu
ekki skilið, að það hjálpar þér? Og lögreglan
segir þetta líka, er það ekki ? Að minnsta kosti
andmælir hún því ekki. Heldurðu að Henley við-
urkenni þessa skýringu, ef hann tryði henni
ekki ? Eða lögreglustjórinn ? Þú ættir að vera
ánægð . . .“
„Hvað finnst Fitz?“
„Mér er alveg sama hvað Fitz finnst. En þú
verður of sein, ef þú ferð ekki að klæða þig.
Ég skal kom upp með morgunmatinn. Wat sendi
mér veiðihest. Það er skepna sem horfandi er á
— dökkjörp hryssa. Hvernig skyldi það ganga
með buxurnar mínar?“ Hann fór fram í eld-
liúsið.
Vantrú hennar hafði dregið úr kæti hans, og
röddin var biðjandi, þegar hann kom upp með
morgunmatinn. Hann barði að herbergisdyrum
liennar eftir að hún hafði farið í bað: „Hér er
morgunmaturinn þinn. Það hafa margir hringt
til þín, Sue. Þú ættir að heyra til þeirra. Þau
hafa öll lesið blöðin og fréttin hefur flogið urn
allt. Ég er svo fégin vegna þín og Jeds, sér-
staklega þín vegna. Vinir Karólínu, mín og þín
hafa hringt, og Sepson dómari líka. Hann sagði,
að nú væri þetta allt búið og hann óskaði okkur
til hamingju og — vertu nú skynsöm, Sue og
hættu að hugsa um — allt mögulegt. Láttu lög-
regluna um það.“
Það heyrðist glamur, þegar hann setti fíakk-
ann á gólfið fyrir utan dyrnar.
Hættu að hugsa um allt mögulegt, hugsaði Sue,
t. d. sjúklinginn, sem ekki var hægt að finna og
hringdi til hennar og Jeds og bað þau að
koma. Það gat vel hafa verið Sam Bronson, sem
vildi draga þau inn í málið. Svo var það samtal
dr. Luddingtons við einhvern. Hversvegna hafði
læknirinn þá sagt í símann, það sem Lissy . . .“
Rödd Woodys hélt áfram að vera biðjandi.
„Lissy gamla Jenkins. Hún bjó til þessa sögu
mörgum dögum eftir dauða dr. Luddingtons.
Hlustaðu nú á, Sue, segðu þetta ekki við nokk-
urn mann. Láttu alla trúa þessu. Ekki láta þau
fara að efast."
En hvernig gat Woody trúað þessu ? Eða vildi
liann aðeins trúa því ? Ráðlegging hans var ákaf-
lega skynsamleg. Og meira en það, þvi hún gat
ekkert annað gert en að fylgja henni.
„Það sagði Fitz lika,“ sagði hann.
„En þú sagðir að þér væri alveg sama um hvað
Fitz segði.“
„Ég átti ekki við það. Ég sagði það af því
þú hélzt áfram að mótmæla, Sue. Hann sagði, að
við skyldum hegða okkur eins og við tryðum
því. Það getur verið satt. Ef til vill er þetta
tilviljun — efia brjálaður maður sem —“ rödd
hans var óákveðin og hann hætti. „Vertu nú
góð og hættu að mótmæla nokkrum manni.“
„Já, það skal ég gera. Það skil ég. Þakka þér
fyrir morgunmatinn.“
Þegar hún var búin að borða kom Karólína inn
til hennar. Það var önnur Karólína, eðlileg, virðu-
leg, með glansandi svartan hatt, hárið vandlega
greitt og fallega bundinn hálsklút. Hún reið
alltaf í söðli. Pilsið hennar var þungt, slétt og
vel burstað og bláu augun glömpuðu. ,,Sue,“ sagði
hún og kyssti hana.
Karólína var heldur spör á blíðuatlot. Þessi
koss sagði allt, sem hún var of hrærð til að
segja með orðum. Sue horfði á hana og gat ekki
fengið af sér að segja við Karólínu það, sem hún
hafði sagt við Woody.
„Þetta hefur verið langur sprettur með mörgum
hindrunum, Sue. En nú er það búið. Allir hafa
hringt. Mér fannst það einkennilegt, að þau gerðu
það ekki fyrr, en nú skil ég hvers vegna. Þau
sýndu okkur samúð á þann hátt að láta okkur í
friði.“ Hún gekk að snyrtiborði Sue. „Ég bað
Krisy um að taka til fötin þin. Nú skal ég finna
hálsklút handa þér. Hefirðu gullnálina hennar
mömmu þinnar?“
Það var eina gullnálin, sem mamma hennar
hafði notað til að næla hálsklútinn sinn. Karó-
lina hafði gefið henni hann þegar hún var sextán
ára gömul.
„Greiddu þér vel, Sue,“ sagði hún, „vel greitt
hár og vel bundinn hálsklútur.“
„Já, elsku frænka.“
„Ég held að Jeremy sé oroinn nógu góður,
en vertu ekki hörð við hann við girðingarnar,
ef hann vill fara fram hjá þeim, hann er að verða
haltur aftur og þá færðu einhvern af veiðihestum
Wats.“
„Ég skal gæta þess.“
„Og mundu svo, Sue . . .“
Allt í einu var Sue gripin fögnuði eins og aðrir.
Glaðlega greip hún fram í fyrir Karólínu: „að
fara hratt yfir skurði og hægt í skógi. Ef girð-
ingar eru fyrir, þá að láta hann stökkva yfir.
Taktu ákvörðun og fylgdu henni. Haltu þér alltaf
írá hundunun»“
En Karólína brosti ekki — henni var alvara.
„Og ef þú ætlar niður á jörðina, þá hafðu hök-
una niður á bringu."
Það var algengt að tala þannig um að detta
af baki. Það fór hrollur um Sue. Hún yrði aldrei
eins dugleg og óhrædd á hestbaki og hún ætti að
vera, eftir að hafa lært hjá Karólínu. Hún hafði
oft dottið af baki — alltof oft, og það hafði alltaf
gerzt svo skyndilega, að hún aðeins hafði tíma til
að hugsa um að forða sér frá hófunum. En hún
vissi hvað Karólína átti við. Stífur háls gat
brotnað. Hún sagði léttilega: „Auðvitað, ég skal
muna það,“ en hún óskaði þess, að hún þyrfti
ekki að fara á veiðar.
Karólína dró úr hræðslu hennar með því að
segja glaðlega um leið og hún fór:
„Ég er svo ánægð, Sue, og svo þakklát. Nú
finnst mér það alveg rétt að hafa veiðidansleik-
inn svona fljótt eftir dauða dr. Luddingtons.
Finnst þér það ekki líka?“
„Jú, hann hafði viljað hafa þetta svona.“ Karó-
lína kinkaði kolli, þurrkaði augun með handa-
bakinu og fór niður.
Setjum svo, að Karólína hafi rétt fyrir sér.
Lögreglan hafði tekið skýringuna gilda, og lög-
reglan hafði venjulega rétt fyrir sér. Stundum
skildi maður ekki ástæðuna — en þeir höfðu
alltaf góða og gilda ástæðu. Setjum svo, að þeir
hefðu einhverja merkilega skýringu, sem gæfi
svar við spurningum hennar. Það hélt Woody.
Þau voru komin á bak, þegar hún kom niður.
Woody var ekki meðlimur i klúbbnum, af þvi
að hann var svo lítið heima, en hann var alltaf
velkominn þátttakandi, Hann var ekki í rauðum
jakka, en leit mjög vel út í svarta reiðjakkan-
um sínum og buxunum, sem Krisy hafði hreins-
að. Karólína, sem var á Geneva, var eins og
hluti af hestinum. Hún sat léttilega og örugg-
lega og Sue horfði undrandi á hve vel hún sat
í söðli — það gat hún ekki gert sjálf. Hún vildi
halda sér með fótunum — en það var líka dá-
lítið hættulegt, þvi Jeremy gamli tók það sem
bendingu um að stökkva. Það yrði hún að muna.
Jeremy horfði ánægður í áttina til hennar, Geneva
dansaði af gleði, Lij kom til að hjálpa henni á
bak og hún veifaði ánægð þar sem hún stóð við
bakdyrnar.
Þau veifuou öll aftur og riðu af stað.
Veðrið var gott. Dálítið kalt á þessum tíma árs
en lygnt. Allir áttu að hittast á malbornu torg-
inu fyrir framan hið fallega og stóra hús Ruby-
ar og Wats. Hún var ekki góð reiðkona og
langaði ekki til að vera það, en henni þótti gam-
an á hestbaki. Brakið í hnakknum, vindurinn
sem straukst um hár hennar og eftirvæntingin
höfðu góð áhrif á hana. Ánægjan hafði sléttað
áhyggjuhrukkurnar á andliti Karólínu og hún
beygði sig fram og klappaði Geneva blíðlega á
hálsinn. Woody gat varla stillt sig um að reyna
hvað lánshesturinn gæti farið hratt. Hann sagði
Sue, að þetta væri yndisleg skepna og bætti
einhverju við um að hestar væru eins og skip.
Það er líklega rétt, hugsaði Sue. Ef til vill
finnur maður á hestbaki til einhverrar meiri sælu
en líkamlegrar vellíðunnar og ánægjunnar af að
hreyfa sig. Það er ef til vill gleði yfir að vera
svo nálægt jörðinni og skapara hennar. Hún sagði
þetta ekki við Woody, sem hefði áreiðanlega
sprett úr spori og skammazt sín fyrir, að hún
skyldi geta látið svona rugl út úr sér. Þau riðu
inn á landareign Luddingtons.
En hvað ég hefi saknað alls þessa, hugsaði
Sue. Þetta er landið mitt og vinir mínir. Rauð-
og svartklæddu reiðmennirnir, og hestarnir, sem
voru ánægðir og eftirvæntingarfullir og vissu
hvað var í vændum — voru allir í einni bendu
i rykinu sem þyrlaðist upp. Karólina renndi aug-
unum yfir hundahópinn, því hún hafði valið þá
og æft þá að nokkru leyti. Þeir biðu nú með
eftirvæntingu eftir merki frá henni.
Dobberley-veiðarnar voru ekki aðalveiðarnar,
svo ekki tóku aðrir gestir en Woody þátt í þeim,
en allir meðlimirnir voru þarna og þeir sögð-
ust allir hafa sömu skoðun um þær og Karó-
lína. Þeir söfnuðust ailir kringum Karólínu,
Woody og Sue. Bob Hallock kom og tók þegj-
andi í höndina á henni. Jed var að tala við for-
ingja veiðanna. Hann veifaði og kom í áttina
til þeirra, en einhver stöðvaði hann, auðsjáanlega