Vikan


Vikan - 14.08.1952, Side 2

Vikan - 14.08.1952, Side 2
2 VIKAN, nr. 31, 1952 pósturinn- Kæra Vika mín! Ég ætla að biðja þig að svara nokkrum spurningum fyrir mig. Viltu segja mér eitthvað um June Haver og helst að birta mynd af henni. Getur þú svo iíka sagt mér hvar hún á heima í Hoilywood. Aðdáandi. Svar: Ég er þér alveg sammála þegar þú dáist að June Haver. Hún er mjög litil, kven- leg og ein af þeim fáu kvikmynda- leikkonum, sem er eðlileg í framkomu og ekki áberandi máluð, ef maður sér hana í dags- ljósi. June er líka mjög ung, aðeins 26 ára gömul fædd i Rock Island í Illinois. Hún hefur blá augu og ljóst hár. June spilaði opinberlega á píanó, þegar hún var 5 ára gömul og hafði sinn eigin útvarpsþátt þegar hún var 11 ára. Eftir það fór hún að syngja með hljómsveitum og í kvikmyndum 1943: Hér hafa verið sýndar margar myndir með henni í aðalhlutverkinu. Þær eru flestar í fallegum litum og íburðarmiklar og þannig gerðar að Jítið reynir á leikhæfileika hennar. í>ví miður get ég ekki gefið þér heimilisfang hennar, ef þú ætlar að skrifa henni, þá skaltu bara senda bréfið til Hollywood, Californiu. Ég er viss um að það kemst til skila. Kæra Vika mín. Nú leita ég til þíp í vandræðum mínum, og vonast ég eftir að þú get- ir hjálpað mér. Ég er með svo aga- lega mikinn hármaðk! Hef ég reynt að klippa hárið jafnóðum og ég sé að það byrjar að klofna, og nú er ég komin með svo stutt hár að mér er um og ó að halda áfram að klippa meira af þvi. Getur þú ekki gefið mér ráð við þessu? Hvaða litir fara mér bezt. Ég er brúnhærð með grá augu, freknótt. Með fyrirfram þakklæti fyrir svörin. Kolla. Svar: „Fegurð og snyrting“ segir að bezta meðal við hármaðki sé pyro- gallóismyrsli, en það er: Naphtoii ........ aa g 1.50 Sulfuris praecipitat 5 Vaselini ........ad 50 Þú getur sjálfsagt fengið þetta smyrsl í næstu lyfjabúð. i Tímaritið SAMTÍÐIN | ■ ■ ! Flytur snjallar sögur, fróðlegar j | greinar, bráðsmellnar .skopsögur, : ; iðnaðar- og tækniþátt o. m. fl. : • 10 hefti árlega fiyrir aðeins 35 kr. : ■ Ritstjóri: Sig. Skúlason magister. • : Askriftarsími 2526. Pósthólf 75. ■ June Haver Beztu litir þinir eru rautt, hlut- lausir dökkbláir litir, grænt, „beige"- litir og eggjaskurnslitur. Kæra Vika! 1. Við erum tveir skrítnir naglar að deila um það hvort Doris Day sé lifandi eða dáin. Við vonumst til að þú svarir þessu fljótt, vegna þess að það eru svo margir sem vita ekki hvort er rétt. 2. Annar naglinn er með stúlku, en hann er alltaf að kvarta um að hún sé svo stríðin og hann langar til að venja hana af því. Hvernig á hann að losna við stríðnina í henni? Og þegar hann býður henni út þá vill stúlkan alltaf hafa vinkonu sína með sér, hvað á hann að gera við því? Við þökkum þér fyrirfram fyrir svarið, vertu ævinlega sæl og blessuð. Tveir naglar með flötum haus. Svar: 1) Það er mikið spurt um það, hvort Doris Day sé lifandi eða dáin. Þess vegna hefi ég leitað upp- lýsinga hjá ungri stúlku, sem er ný- komin frá Bandaríkjunum og hefur lesið dagblöðin þar síðastliðin tvö ár. Hún segist hvergi hafa lesið dánar- fregn umræddrar leikkonu og heldur að það sé útilokað að dagblöðin hefðu ekki gert meira veður út af dauða hennar en svo að það hefði getað farið fram hjá sér. Við verðum þvi að gera ráð fyrir því að Doris Day sé lifandi. 2) Fólki þykir ekkert gaman að stríða þeim, sem ekki taka það illa upp. Reyndu að láta þér á sama standa, nagli minn, þó stúlkan stríði þér. Ef þú getur það ekki og stúlk- an er ólæknandi af striðni, sé ég ekki fram á annað en að þú verðir að hætta að umgangast hana svona mikið. Elkki þykir stúlkunni gaman að fara út með þér ef hún þarf aXltaf að hafa vinstúlku sína með sér. Reyndu að segja nei einu sinni og vittu hvort hún metur meira vin- stúlkuna eða þig. ^mhhhhhimmiiimhhmmmmimhmiiimmiiiiiiimiíiiiiiiiiiiii >, s Norge — Island i í Noregi, innan- [ lands eða öðrum i löndum, getur hver | valið sér í gegnum Islandia, í bréfavin við sitt hæfi. Skrif- I ið eftir upplýsingum. BRÍFAUÚBÍUftlNN ' I ISLAN DIAI Reykjavík ' ........................... . Svar til áhugamamis. Við höfum nú fengið þær upplýs- ingar til viðbótar svarinu i síðasta blaði, að Selmersaxofónar fást í Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadótt- ur, Lækjargötu 2, og kosta 6000— 7000 krónur. Boosy Hawks klarinett fást þar líka og kosta 1860 kr. Þú alvita Vika, vilt þú nú gera mér þann greiða að gefa mér ná- kvæmar upplýsingar um meðferð og hirðingu heimilispálma, hversu mikið er hæfilegt að vökva hann áburðargjöf o. s. frv. Með fyrirfram þökk fyrir birting- una. Lesandi. Svar: Ég á sjálf ljómandi fall- egan pálma, sem hefur dafnað vel í mörg ár, þó ég geri ekkert fyrir hann annað en skvetta úr fullri vatns- könnu yfir hann þriðja hvern dag og þvo blöðin öðru hvoru upp úr mjólk. Auk þess ver ég hann fyrir reykjandi gestum. Það er bráðnauð- synlegt að vekja athygli gesta á því, að það skaði blómin ef drepið sé í sígarettum í blómsturpottunum eða ösku dreift yfir þau. Þú getur líka fengið blómaáburð í blómabúðum, en ég hefi aldrei gefið mínum pálma annað en mjólk. Svar til Ebbu J. I bókinni Fegurð og snyrting segir svo: Framhald á bls. 13. Það má vera annað en gaman að vera kjölturakki, sem neyddur er til að ganga með hatt. En einmitt það gerði bandarísk tískudama fyrir nokkru; og ekki nóg með það, því hundsgreyið er líka með tösku. AC 109 PaÓ er mjög mikilvægt að líggja ekki í sólinni án pess fyrst að hafa smurt húðina vandlega með NIVE A cremi. Aðals atriðið er að venja sig smátt og smátt við sólina og að vernda húðina með NIVEA cremi. Þeir sem vilja liggja lengi i sólinni og verða brúnir a skömm- um tíma, noti NIVEA ultraíoliu. NIVEA er sjerstætt því að það inniheldur Euzerit, sem er skylt húðfitunni. Verðið fallega brún með N I V E A. m* "'viA / Utgefándi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Erlingur Halldórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.