Vikan


Vikan - 14.08.1952, Page 13

Vikan - 14.08.1952, Page 13
VIKAN, nr. 31, 1952 13 Hraust fólk í hraustu umhverfi. /ft, 1 baráttunni geg-n malaríu í Indlandi dreifði Alþjóða heilbrigðismálastofn- unin DDT til að drepa moskítóflugur. Við rannsókn kom í ljós að DDT hafði líka drepið rottur og flær og dregið þannig úr þeirri plágu um leið, Hér sjást starfsmenn stofnunarinnar við vinnu sína. Frá sköpun heimsins hefur um- hverfið ógnað heilsunni. Allt, sem miðar að því að vernda manninn gegn slíkum hættum, eykur lifsfjör hans, bætir lífsskilyrði og gerir honum líf- ið þægilegra. Þessar utanaðkomandi hættur eru ekki alltaf ósýnilegar og ófinnanleg- ar; hafa verið fundnar, flokkaðar og ráð fundin til að losna við þær eða draga úr þeim. Það er ekki síður verk hvers ein- staklings en æfðra heilsufræðinga, að nota þessi ráð. Fyrir 100 árum benti Chadwick á að heilsuleysi er einkum að finna í lélegu húsnæði. Síðan hefur mikið verið unnið að því að bæta húsnæði fólksins. Við rannsóknir á mislingafaraldri í Glasgow, kom t. d. í Ijós, að í eins herbergis íbúðum fundust 125 tilfelli meðan á faraldrinum stóð, og þar dóu 27 af 1000, en í fjögurra her- bergja íbúðum voru tilfellin 11 og þar dóu 1 af 1000. Ef litið er á allar þær aðstæður sem myndast við ófullnægjandi íbúð- ir, hlýtur maður að komast að þeirri niðurstöðu að lélegt húsnæði hafi í för með sér mesta hættu fyrir heils- una. Næstum daglega komast menn í snertingu hver við annan gegnum jörðina. Jörðin getur verið svo gegn- sósa af óhreinindum, að það sé blátt áfram hættulegt að ganga á henni. 1 Perú sýktust t. d. 99% af skóla- börnunum af „ormaveikinni" vegna óhrcinlætis. Innan fjögurra ára frá því að farið var að hreinsa í kring um húsin var sýkingartalan komin niður í 58%. 1 miðvestur Bandaríkj- unum, þar sem þessi sjúkdómur var mjög algengur, er hann nú næstum horfinn með bættu hreinlæti. En jörðin er ekki ein um að vera hættuleg heilsu mannsins. 1 margar aldir hafa menn vitað að samband er milli góðrar heilsu og hreins lofts. Með þeirri þekkingu, sem heimurinn býr yfir nú, er hægt að koma í veg fyrir útbreiðslu margra hættulegra sjúkdóma, sem berast í lofti. Á einu stað í Bandarikjunum fundust t. d. hættulegar lofttegundir í loftinu, sem sýktu íbúana nokkurs- konar gaseitrun. Flugur bera líka oft sjúkdóma og á mörgum stöðum hefur verið hafin herferð gegn þeim. 1 Neapel var unn- ið á taugaveikisfaraldri 1944 með því að aflúsa með DDT. Þetta lauslega yfirlit sýnir greini- lega að óhreint umhverfi eykur heilsuleysi. Kostnaðurinn við að bæta umhverfið er margborgaður með minni dauðsföllum. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin vinnur nú að því að ,,kenna“ þeim þjóðum, sem þess þurfa hreinlæti og betri aðbúnað. PÓSTURINN Framhald af bls. 2. „Líkþorn eru hornmyndanir, sem einkum koma á tærnar og eru orsak- irnar ævinlega skóþrengsli. Líkþorn- in eru utan til aðeins í hornlagi húðarinnar, en í miðju ná þau ofan í dýpri lög hennar. Fyrsta skilyrði þess, að líkþorn batni er, að skór þrengi ekki að fæt- inum. Oftast reynist nægilegt að smyrja salisýlkollódíum (Acid. sali- cylic g. 15, Collodii g. 100) á líkþorn- ið daglega til að ná því burtu. En stundum þarf þó að bleyta það upp i heitu vatni. Venjulega gengur vel að lækna líkþorn með radíum." Líkþornaplástrar fást i öllum lyfjabúðum. Ör undan bólum nást venjulega með rafmagni og nuddi. En ef þér hættir til að fá ör, kreistu þá aldrei bólur í andlitinu á þér. BIBLlUMYNDIR 1. mynd: Jesús sagði við höfðingj- 3. mynd: Allir gestimir gáfu ein- ann: „Maður nokkur gjörði mikla hverjar afsakanir fyrir því, að þeir kvöldmáltxð og bauð mörgum. Og er gætu ekki komið. Einn sagði: „Ég matmálstimi var kominn, sendi hann er nýgiftur og þess vegna get ég þjón sinn, til að segja þeim er boðnir ekki komið." Og þjónninn kom og voru: Kornið þvi allt er þegar til- kunngerði herra sínum þetta. Þá búið. Og þeir tóku allir í einu hljóði reiddist húsbóndinn. að afsaka sig. Hinn fyrsti sagði við hann: Eg hefi keypt land. 4- mynd: Fariseamir gerðu gys að orðum Krists um að þeir gætu 2. mynd: Annar sagði við hann: ekki þjónað Guði og Mammon. Jesús „Ég hefi keypt fimm pör akneyta, sagði: „Þér eruð mennirnir sem rétt- og fer nú að reyna þau; ég bið þig lætið sjálfa yður í augsýn manna: haf mig afsakaðan." en Guð þekkir hjörtu yðar." Skraddarinn FRÆKNI Hann kallaði til sín skradd- arann og hét honum, að hann skyldi fá kóngsdótturina og háíft ríkið, ef hann dræpi tröllin tvö, sem herjuðu á landið' og bólstað höfðu í skógi einum skammt í burtu. Skraddarinn hugsaði sig um litla stund, það var hvorki létt né löðurmann- legt, verkið, sem fyrir hann var lagt, en að lokum lét hann til leiðast^og hét því að hætta ekki fyrr en bæði tröllin lægju dauð.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.