Vikan - 04.09.1952, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 34, 1952
9
MAÐUR í FRÉTTUNUM!
Daniel l\lalan
Damiíl FRANCOÍS
MAL.AN, forsætisráðherra
Suður-Afríku, er 78 ára og
sá maðurinn, sem kunnast-
ur er í veröldinni í dag
fyrir hatur á negrum, Ind-
verjum og kynblendingum
allskonar. Hann virðist hata
— eða að minnsta kosti
hafa megnustu óbeit á —
bróðurpartinn af öllu mann-
kyni; hann er yfirlýstur
fjandmaður þeirra karla,
kvenna og barna, sem elíki
hafa „hvítan“ hörundslit.
Þrepi neðar
Kynþáttaofsóknir hans í
Suður-Afríku hafa nú leitt
til handtöku þúsunda
blökkúmanna og Indverja.
Þessir menn hafa — vilj-
andi — brotið kynþáttalög-
gjöfina illræmdu, en sam-
kvæmt henni virðast „lit-
aðir“ menn m. a. ekki mega
ganga um sömu dyr og
hvítir á opinberum bygg-
ingum, ekki nota sömu al-
menningsvagnana og hvítir,
ekki setjast á sömu bekk-
ina og herraþjóðin. „Lit-
aðir“ menn standa þrepi
neðar en hvítir, segir Mal-
an, og hvítir menn verða
að beita öllum ráðum, til
þess að þessar „óæðri“
mannverur taki ekki völdin
í sínar hendur.
Bókstafstrúarmenn
Malan er foringi þjóð-
flokksins, sem hefur meiri-
hluta á þingi. Það eru Bú-
arnir (afkomendur hol-
lenskra, franskra og þýskra
innflytjenda), sem veita
honum öflugastan stuðn-
ing, en þeir liafa löng-
um þótt harðir í horn að
taka, fastheldnir á gamla
siði, miklir bókstafstrúar-
menn, sem margir hverjir
aðhyllast þá kenningu af
fullri einlægni, að hvítir
menn eigi að drottna yfir
hörundsdökkum.
Búarnir — og Malan —■
hafa raunar löngum verið
sakaðir um nasistiskar til-
hneigingar, en nasistasýk-
illinn í flokki þeirra á
sennilegast rætur sínar að
rekja til rótgróinnar andúð-
ar á Bretum. Sú andúð á
aftur upphaf sitt i Búa-
stríðinu (1899—1902), sem
var blóðugt stríð, sem lauk
með breskum sigri og bresk-
um yfirráðum.
Hitlers-maður
IMalan (hann er giftur og
á eina fósturdóttur) varð
ekki áhrifamaður í landi
sínu fyrr en í síðari heims-
styrjöldinni. I>á var hann
yfirlýstur Hitlers-maður og
óskaði eindregið eftir sigri
Þjóðverja. Þó honum yrði
ekki að þeirri frómu ósk,
efldist flokkur hans, og
hann bar sigur úr býtum
í þingkosningunum 1948.
Smuts marskálkur, vinsæll
maður, lét af stjórn og við
tók Daniel Malan.
Botnlangaskurður á sjó
Myndirnar til vinstri eru
teknar úti á rúmsjó. Þegar
Carol Arthur (átta ára) fékk
heiftarlega botnlangabólgu,
kom meðfarþegi hennar, brezk-
ur læknir, til skjalanna. Carol
litla var skorin upp á tveimur
borðum, sem reyrð höfðu verið
saman. Skipsþernan aðstoðaði.
Efri myndin sýnir iæknirinn
að verki, en á þeirri neðri
heimsækir hann sjúklinginn.
Uppskurðurinn tókst ágætlega.
Sæmdur æðsta heiðurs-
merki Bandaríkjamanna
Jerry K. Crump er 19 ára.
Honum var veitt æðsta heið-
ursmerki Bandaríkjamanna,
þegar hann bjargaði félögum
sínum í Koreu með því að
fleygja sér ofan á óvinahand-
sprengju. Það furðulegasta
\ ar, að Jerry lifði sprenging-
una af.
Maðurinn, sem krýpur frammi fyrir prestinum, heitir Eric Von Dem Bach-Zelewski. Hann
var eitt sinn hershöfðingi í SS-deildum nasista. Um líkt leyti og hann gerðist kaþóliki,
Ijóstraði hann því upp, að það hefði verið hann, sem gaf Göring eitur. Hann segist hafa
smyglað eitrinu til nasistaforingjans í sápustykki. Back-Zelewski kom mikið við sögu í Núrn-
bergréttarhöldunum, en eins og kunnugt er lyktaði þeim með dauðadómi yfir Göring og
ýmsum félögum hans, en fangelsisdómum yfir öðrum. Þeir dauðadæmdu voru hengdir.
. .................................■■■■■■■■■
MYNDIR í
FRÉTTUNUM
Fjórburar í New York
Tígrisdýr, sem fætt er í
Bengal, en nú búsett í dýra-
garðinum í New York, hefur
þrisvar sinnum átt fjórbura
síðustu fimm árin. Á mynd
inni til vinstri er nýjasta
serían: Sira, Gingi, Wadi og
Sauja. Með unglingunum sr
starfsmaður dýragarðsins og
konan hans, sem tók að sér að
sjá um uppeldishlið málsins.
Tilraunir með atomið
Atomsprengingar í tilrauna-
skyni gerast nú tíðar í Banda-
ríkjunum. Á myndinni er af-
gangurinn af radartæki og
dráttarvagni, en hvorutveggja
var komið fyrir í námunda við
atomsprengju, sem reynd var
í Nevada-eyðimörkinni. Yfir
2,000 menn úr bandaríska
strandvarnaliðinu voru við-
staddir þessa sprengingu, og
síðar gafst. þeim tækifæi-i til
að athuga gereyöilegginguna.