Vikan - 18.09.1952, Blaðsíða 13
VIKAN, nr. 36, 1952
13
Hepbnrn hneykslaði
(rúrnar í
Hollywood
með stag-
bættum nankinsbnxum
AÐ stendur þvengmjó, rauðhærð
stelpa uppi á leiksviðinu, frekn-
ótt stelpa, nýþ'vegin og nýkembd.
Niðri í salnum, en hann er þéttsetinn
áhorfendum, eru, foreldrar hennar og
fimm systkini; þau brosa blíðlega upp
á senuna og bíða með eftirvæntingu.
Freknótta stelpan rauðhærða á að
fara með kvæði.
En þá skeður eitthvað undarlegt.
Stelpan þarna á leiksviðinu horfir
fram í salinn og ræskir sig og opnar
munninn — og steinþegir. Hún ræsk-
ir sig aftur, og nú standa augun í
henni á stilkum, og hún andar djúpt
að sér — og steinþegir. Hún reynir
enn og augun kúffyllast af tárum,
og svo er allt í einu eins og hún losni
úr álögum og — hún hleypur eins
og fætur toga út af leiksviðinu.
Þetta var Katharine Hepburn að
troða upp i fyrsta skipti.
Hún var þrettán ára, þegar þetta
gerðist. En nákvæmlega jafnmörg-
um árum síðar var hún orðin heims-
fræg fyrir frábæran kvikmyndaleik.
Sjálfstæðar skoðanir
Kunningjar hennar og vinir kalla
hana Katie. Hún útskrifaðist úr ein-
um kunnasta kvennaskóla Bandarikj-
anna, og skömmu síðar virtist gæfan
ætla að brosa við henni, þegar henni
bauðst aðalhiutverkið í spánýju
Broadway-leikriti. En Kata hafði
svolitið sjálfstæðar skoðanir. Meðal
annars hafði hún um það alveg
sjálfstæða skoðun, hvaða tökum
hún ætti að taka hlutverkið sitt
—i sannast að segja allt aðra skoðun
en leikstjórinn. Og svo mótmælti hún
og svo mótmælti hann og svo varð
úr þessu rifrildi og svo missti Kata
vinnuna.
Næst bauðst henni ágætt hlutverk
i öðru góðu leikriti. Hún tók boðinu
fegins hendi. En áður en leikritið
hélt innreið sína á Broadway var hún
rekin.
Alls engin hæfileikar, sagði leik-
stjórinn.
Og þó voru hamingjudísirnar ekki
enn orðnar þreyttar á Katie Hepburn.
1 þriðja skiptið tókst henni að kló-
festa eftirsóknarvert hlutverk. Leslie
Howard átti að leika á móti henni.
Hún var staðráðin að glata ekki þessu
einstæða tækifæri líka, svo hún lifði
sig inn í hlutverkið, las og æfði og
lærði mánuðum saman. Og þá endur-
tók sagan sig. Hún mætti á fyrstu
æfinguna sprengfull af sjálfstæðum
skoðunum. Hún lét leiðbeiningar
leikstjórans eins og vind um eyrun
þjóta, sagði að svona og aðeins svona
ætti að túlka þetta hlutverk. Og varð
atvinnulaus.
Iþróttir og útilíf
Fijótfærni og þverúð? Kannski.
En Hepburn hefur sjálf gefið eftir-
farandi skýringu á þessum atburð-
um: „Eg trúði því statt og stöðugt,
að ef ég gæti farið mínar eigin leiðir,
þá mundi ég sigra að lokum. En ég
vissi, að ef ég fylgdi blindandi öll-
um fyrirmælum, þá mundi ég skila
dauðri vinnu — og tapa.“ — Og auð-
vitað hafði hún rétt fyrir sér!
Henni var það raunar í blóð borið
að forðast hinar troðnu slóðir. Hún
var alin upp við frjálslyndi og útilif;
faðir hennar var læknir í Hartford,
Connecticut. Hann kenndi börnunum
sínum, en þau voru sex, margskonar
íþróttir, gleymdi ekki einu sinni
glímu og loftfimleikum! Katie elsk-
aði þetta líf, og hún varð afbragðs
Hún er mesti bókahestur
Hepburn hefur grænblá augu
og rautt hár. Þegar hún er
ekki að vinna í Hollywooil eða
annarstaðar, býr hún oft. í New
Yorlt, þar sem hún á stórt og
notalegt hús. Húsið er sneisa-
fullt af bókum, en Katie les
feiknmikið og fylgist vel með
þvi sem gerist í bókmennta-
heiminum.
Hún á fáa vini — en góða.
Hún er annáluð fyrir að geta
setið tímunum saman í baði,
venjulegast með einhverja bók.
Baðherbergið hennar er prýtt
fjölskyldumyndum.
Hún var einu sinni gift, en
það reyndist bara venjuleg
Hollywoodgifting, sem lauk
með skilnaði. En maðurinn
hennar fyrrverandi er góður
vinnr hennar. Annar góður
vinur er Spencer Xracy. Hann
og Hepburn liafa leikið saman
í fjölda vinsælla mynda.
skautahlaupai’i, fyrsta flokks sund-
kona og svo leikin í golfíþróttinni,
að hún hafði um skeið fullan hug
á að gera golf að atvinnu sinni. Svo
fór þó ekki. En þó var það í og með
þessi íþróttaáhugi sem varð til þess
að hún vann fyrsta sigurinn á leik-
sviðinu.
Ferleg heljarstökk
Þetta var í hlutverki valkyrju.
Hún bar að sjálfsögðu vopn á svið-
inu, og hún þurfti að sýna hin fer-
legustu heljarstökk. Hún vakti svo
mikla hrifningu, að Hollywood-menn
vöknuðu við vondan draum og sendu
henni i flýti tilboð um að koma til
vesturstrandarinnar. Þeir spurði líka,
hve háa kaupkröfu hún mundi gera.
Þeir bjuggust vúð, að rauðhærða,
óþekkta stúlkan mundi biðja um 200
dollara á viku — 250 dollara í al-
mesta lagi. Þessvegna héldu þeir, að
svarskeytið hennar hefði misritast,
þegar hún símaði, að hún gæti víst
fallist á 1500 dollara til að byrja með.
Þeir simuðu um hæl og spurðu, hvort
þarna hefðu ekki orðið einhver mis-
tök hjá ritsímanum og núllin orðið
of mörg. Og Hepburn svaraði: „Nei.
Mistökin mín. Fimmtán hundruð á
viku of lítið."
Þegar Katie kom til Hollywood,
tók George Cukor á móti henni, en
hann átti að stjórna fyrstu myndinni
hennar. Hann var ekki fyrr búinn að
heilsa en hann sagði umbúðalaust,
að hún yrði að láta klippa sig og svo
væri hún herfilega til fara.
Katie herpti saman varirnar. „Hvað
eigið þér við?“ heimtaði hún. „Ég
vil leyfa mér að segja yður það, að
þessi föt eru saumuð sérstaklega fyrir
mig í París.“
„Svo já,“ anzaði Cukor. „Og þá
vnl ég leyfa mér að segja yöur, að
þetta eru þær afkáralegustu fata-
druslur sem ég hef nokkurntíma lit-
ið á æfinni. Engin heilvita kona
mundi taka í mál að láta sjá sig í
þeim.“ Katie glápti. Og svo fór hún
allt í einu að skellihlæja.
Buxurnar hneyksluðu frúrnar
Katharine Hepburn hafði lagt
stund á sálfræði í skóla. Henni
fannst fín föt skipta minnstu máli.
Enda hneykslaði hún nú Hollywood-
frúrnar með því að ganga i stag-
bættum nankinsbuxum og reimuðum,
öklaháum stígvélum! Stígvélin hafði
hún notað, þegar hún gekk á fjöll í
Evrópu.
Síðan hefur hún oft lagt leið sína
til Evrópu, núna siðast í sumar til
Englands, þar sem hún lék aðal-
hlutverkið í leikriti eftir Shaw. Þeg-
ar hún fer sjóleiðina, ferðast hún
sjaldnast á fyrsta farrými. Hún hef-
UM NÆSTA GEST í NÆSTU VIKU er nóg a8 segja þetta:
Þegar hann steypti trékassa ofan á höfuðið á föður sinum, gerbreyttist
líf hans á einni svipstundu!
ur alltaf haft orð á sér fyrir góða
dómgreindi, og hún segir, að það
skipti nákvæmlega engu máli hvar
hún liggi í skipum, hún verði hvort
eð er strax rænulaus af sjóvaiki og
komi ekki til sjálfs sín fyrr en í
leiðarlok!
Dagsverk sem sagði sex
Annars er Katie slingur fjármála-
maður. Frægt er það til dæmis í
Hollywood, þegar hún fékk um
160,000 krónur fyrir eitt dagsverk.
Það var búið að taka myndina Spit-
fire, sem hún lék aðalhlutverkið í,
þegar það kom upp úr kafinu, að
óhjákvæmilegt væri að bæta einni
senu við. Katie kvaðst fús til auka-
vinnunnar — fyrir 160,000 krónur.
Og þar sem samningur kvikmynda-
félagsins við hana var þá nýfallinn
úr gildi — og þar sem Katie er og
verður Katie -— mátti félagið gjöra
svo vel að ganga að þessu beði.
SVOLÍTIL SAGA.
Allar leiðir lokaðar
FLUGVÉLIN stóð tilbúin á flug-
vellinum í Los Angeles. Ludloff
beygði sig og kyssti konu sína. Koss-
inn var ekkert innilegur, en við því
var ekki að búast eftir 18 ára hjóna-
band.
„Ég sendi þér skeyti um leið og
ég kem til Chicago," sagði hann.
Karlotta sleppti ekki jakkaerminni
hans og leit á hann dálítið tortryggi-
lega.
„Er það alveg vist, Tom, að þú
ætlir að fljúga alla leið til Chicago
með þessari vél?“
Ludloff varð óþolinmóður: „Heyrðu
nú, Karlotta! Hættu nú! Þú mátt ekki
vera að hugsa um svona smámuni.
Þú veizt að hún var mér einskis virði
og þú lofaðir að tala ekki meira um
þetta.“
Hún leit niður og sagði, svo lágt
að hann heyrði það varla: „Fyrir-
gefðu, Tom, en þú verður að skilja,
að ég gæti ekki þolað það enn einu
sinni.“
„Góða ferð, Tom.“
„Ég sendi þér skeyti," hrópaði
hann um leið og hann steig upp í
vélina.
Hann hallaði sér aftur á bak í
sæti sínu og lokaði augunum.
Þetta yrði siðasta æfintýrið hans.
Auðvitað yrði erfitt fyrir Lois að
skilja það, en hann vissi — þó það
særði metnað hans — að frá hennar
hálfu var þetta ekki ofsafengin ást,
heldur deyjandi glóð.
Hann brosti ósjálfrátt, þegar hann
sá í huga sér tælandi vöxt hennar
og eggjandi brosið. Hann ætlaði,
þrátt fyrir allt, að tæma þennan sið-
asta forboðna bikar — og lifa svo
ánægður rólegu lífi með Karlottu.
Honum þótti mjög vænt um Kar-
lottu og var hreykinn af börnunum
sínum og heimilinu sínu. Ekkert
mætti koma fyrir þau. Það hafði
munað litlu að illa færi fyrir
skemmstu, þegar einhver hafði séð
hann með Lois I Las Vegas og sagt
Karlottu frá þvi. Þá var hann ný-
Framhald á bls. 14.