Vikan - 09.10.1952, Qupperneq 3
VIKAN, nr. 39, 1952
LEIKARIÐ ER BYRJAÐ -
og með því miklar annir og miklar framkvæmdir
LEIKHÚSMENN segja, að það sé leit að öðru eins kvöldi eins
og frumsýningarkvöldi. Þeir segja, að þeir atburðir, sem þá
gerist að tjaldabaki, séu bláttáfram ótrúlegir. Og þeir vorkenna
sumir hverjir áhorfendunum að fara á mis við þetta allt.
Þeir eiga við ysinn og þysinn og hrópin og köllin, hvíslið og
hlátrana, taugaskjálftann og slysin — alla þá skipulögðu ring--
ulreið, sem er árangur margra vikna starfs og sem hinn
óbreytti áhorfandi fær aldrei að sjá og á aldrei að sjá sam-
kvæmt leikreglunum. Þetta er æfintýraheimur út af fyrir sig
og leikhúsmennirnir eiga hann.
Myndin á forsíðunni er lítið horn af þessum heimi. Það er
stúlka að tensa sig til, áður en hún fer inn á leiksviðið. Hún
er ein í kórnum í Leðurblökunni, og þó hún eigi að syngja eins
og hún hefur þol til, þá má ekki gleyma andlitsmálningunni.
Leiksviðsljósin fara illa með andlitið á manni, sé málningin
ekki í lagi. Þá verður andlitið grænt í augum áhorfandans, eða
kannski blátt, og það getur ekki gengið. Þessvegna eyðir leik-
arinn mörgum stundum fyrir framan spegilinn sinn; ekki af
því hann hafi gaman af að mála sig í framan, heldur af því
hann má til að gera þetta til þess að sýnast ekki grænn eða
blár í augum áhorfandans.
TVÆR FLUGUR í EINU HÚGGI
Það vill svo til, að þessi stúlka, sem við birtum myndina af,
á eiginlega. tvöfaldan rétt á að koma á forsíðu. í fyrsta lagi
sýnir hún okkur svolítið atvik úr svolitlu horni í heimi leik-
arans. Og í öðru lagi er þetta engin önnur en Ingibjörg Þor-
bergs, sem annast Oskalög sjúklinga í útvarpinu á laugardög-
um.
Þetta köllum við á VIKUNNI að slá tvær flugur í einu höggi!
Ingibjörg syngur í kórnum í Leðurblökunni, eins og áður er
sagt. Það eru 23 í kórnum. En það hafa yfir hundrað manns
orðið að taka til höndunum til þess að koma Leðurblökunni á
sviðið — sem ætti að sýna það meðal annars, að leiklistin og
sönglistin er ekkert smáfyrirtæki í Þjóðleikhúsinu okkar fs-
lendinga.
13.GGG MANNG Á 20 SÝNINGUM
Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri sagði VIKUNNI
ofurlítið frá þessu fyrir nokkrum dögum. Hann sagði, að 13,000
manns hefði séð Leðurblökuna í vor á aðeins 20 sýningum.
„Hún er feikilega vinsæl,“ sagði hann. „Við sýndum hana í einni
striklotu; söngvararnir áttu ekki nema eitt fríkvöld í viku.“
Guðlaugur sagði okkur líka, að sviðsetning Leðurblökunnar
hefði kostað yfir 200,000 krónur. Það var 30 manna hljómsveit.
Þó tókust sýningarnar afbragðsvel frá fjárhagslegu sjónarmiði,
því aðsóknin var svo mikil.
ÍRSKT, FRANSKT □□ ÍSLENZKT
Þjóðleikhúsið hefur að undanförnu verið að sýna Leðurblök-
una aftur. Það eru nýir menn í
sumum hlutverkunum, en móttök-
urnar eru alltaf jafn góðar. En
auk þess hafa leikhúsmennirnir við
Hverfisgötu glímt af kappi við ný
verkefni: leikritin nýju, sem nú á
að fara að sýna. Juno og páfagauk-
urinn er nýbyrjað — fyrsta írska
leikritið, sem sýnt er í Þjóðleik-
húsinu. Franskt leikrit er líka á
uppsiglingu, og svó er búið að
velja jólaleikritið.
Það verður talsverður viðburður.
Það verður Skugga-Sveinn, sem
ekki hefur verið leikinn í Reykja-
vík árum saman. fþróttamenn
sýndu hann víst síðast í KR-húsinu,
og þá var Erlendur Ó. Pétursson
KR-ingur í aðalhlutverkinu. En nú
á Jón Aðils að leika Skugga-Svein,
Og er víst ætlunin að æfing- Talsveröur viðburður um jólin
ar hefjist upp úr mánaðamótunum. ____________________
3
KABARETTINN ER KOMINN -
og meö honum hefst 15 daga
barátta fyrir góöu málefni.
REYKVlKINGA á ekki að skorta
skemmtanirnar næstu daga. Þeir
geta valið um bíómyndir í sjö kvik-
myndahúsum. Þeir ,geta sótt dans-
leiki í fjölda samkomuhúsa. Þeir geta
farið í leikhús og þeir geta hlustað
á söngvara. Eða þeir geta farið í
Austurbaejarbíó og horft á Júgóslava,
Belgi, Þjóðverja, Norðmenn, Dani,
Svía og fslendinga leika listir sínart
Þvi kabarettinn sjómannanna er
kominn aftur, og hann býður úpp á
stærra og fjölbreyttara prógram en
nokkru sinni fyrr.
Málefnið er ágætt. Þetta er einn lið-
urinn í þeirri baráttu, sem snýst um
það að koma upp dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn. Það er efnt til
kabarettsins beinlínis I því augnamiði að afla fjár til byggingarinnar, og
auk þess vill svo skemmtilega til að þessu sinni, að það verður einmitt
byrjað að grafa grunninn um líkt leyti og fyrstu sýningarnar hefjast. En
það er ætlunin, að greftrinum ljúki i haust og byggingarvinnan hefjist
svo strax með vorinu.
Þetta er þriðji kabarettinn, sem sjómannadagsráð efnir til. Það verða
tvær sýningar á dag í fimmtán daga, og aðgangseyrinn verður 25 krón-
ur fyrir fullorðna og 10 krónur fyrir börn.
Erlendu listamennirnir eru tólf. Þeir innlendu eru að minnsta kosti sjö
talsins. Og það verður gríðarmikið prógram.
Þýzkur hjólreiðamaður, sem heitir Bert Morris, ætlar að sýna mönnum,
hvernig hægt sé að leika allskonar listir á reiðhjóli í 20 mínútur án þess
að fara af hjólinu í eina sekúndu. Nico og Alex (danskir klónar) ætla að
skemmta mönnum með margvíslegum hundakúnstum og hárnákvæmri
flugleikfimi. Þrír Norðmenn ætla að sanna, að hægt sé að misþyrma konu
endalaust á vísindalegan hátt án þess að drepa hana, —• og kasta henni
þó fram af leiksviðinu, nota hana fyrir sippuband og fara öðruvísi illa
með hana. Tagora, júgósiavneskur fakír, ætlar að gleypa sverð og spúa
eldi. Og svo mætti lengi telja.