Vikan


Vikan - 16.10.1952, Qupperneq 2

Vikan - 16.10.1952, Qupperneq 2
2 VIKAN, nr. 40, 1952; í FRÁSÖGUR FÆRANDI É G sagði í þessum dálkum síðast svolítið frá Elizabeth Bret- iandsdrottningu, og hvað hún hefði i mörgu að snúast; það var samkvæmt ósk eins les- arula, sem finnst VIKAN ekki segja nándarnærri nógu oft og itarlega frá konunglegu fólki á borð við Elísabetu. En nú er hérna á skrif- borðinu mínu annað óskabréf og mjög í öðrum dúr en drottningar- bréfið. Pað er frá „íþróttamanni“, og hann biður um „nákvæmar leið- beiningar" í Atlaskerfinu, „sem Tíminn er búinn að segja frá“. Þajð vill svo til, að við á VIKUNNI höfum verið að rabba um þetta fram og aftur upp á siðkastið, hvort ekki væri ómaks- ins vert að taka eitthvað saman xun kerfið. En svo varð úr að láta það Iiggja milli hluta, af tveimur ástæðum. I fyrsta Iagi eru menn víst almennt rétt sí- svona í meðallagi áfjáðir í að líta út eins og vöðvanuddaðir naut- gripir. 1 öðru lagi er það af og frá, að konur geti haft áhuga á kerfinu, nema að síður væri; þ. e. ef einhver yrði til þess að upp- finna nokkurskonar ranghverft Atlaskerfi, sem í stað þess að stækka vöðva minnkaði þá bók- staflega. svara nú ekki loðið. I*að verða herlegar kosningar, því þær hljóta að hafa í för með sér mikinn áróður, að minnsta kosti á bak við tjöldin. ÞAÐ verður sérstaklega spennandi að fylgjast með þessu í herbúðum stjórnmálamannanna. Pað vill nefnilega svo til, að það er sennilegast' ekkert til efiðara í lífi eins stjórnmálamanns en að taka afstöðu til áfengs öls. I*að getur stappað nærri pólitísku sjálfsmorði, og aumingja menn- irnir vita þetta. Aróðurinn hlýtur að verða eftir því. Ég spái því að hann snúist á annan bóginn um það að fá alla menn í Iandinu til þess að bannfæra ölið. Og á hinn bóginn um það, að fá alla menn í landinu til að bannfæra ekki þá stjórn- málamenn, sem ekki vilja bann- færa ölið. En þetta verður allavegana fullt af fjöri og kátlegum tilburðum. f>AB er sagt, að reykvískir dansleikir hafi tekið talsverðum stakkaskiptum síðan byrjað var að gera gangskör að því að ung- lingar hættu að fara þar á fyllirí. Sumir vilja þó halda því fram, að ekki sé breytingin áberandi til batnaðar. Vasapelar eru svo f jand- ans ári fyrirferðarlitlir. En það fer ekki milli mála, að allt eftirlit á dansleikjum hefur verið skerpt til mirna undanfarnar vikur, og að veitingahúsin reyna eftir mætti að fara að nýju regl- unum. ÞAÐ liggur þessvegna í aug- um uppi, að það verður ekki úr því, fyrsta kastið að minnsta kosti, að VIKAN eyði prentsvertu í að gefa nákvæmar leiðbeiningar í At- laskerfinu. En piltinum til sára- bóta, sem biður um þetta, er það að segja, að stórgripavöðvar eru ekki nærri þvi eins móðins úti í löndum eins og margur virðist ætla hér heima Pokkalegur lík- amsvöxtur er venjulegast látinn nægja þarna úti, og meir að segja eru dæmi til þess, hvemig ofvöxt- ur á vöðvum og önnur „hraust- leikamerki“ geta blátt áfram snú- izt gegn eiganda sínum. Ég nefni Jeff Cliandler leikara, en liann er samkvæmt blaðafregnum ekki ein- asta vöðvastæltur og atlas-legur, heldur líka I o ð i n n á brjóstinu. En hefur þetta þá vakið almenna hrifningu? Ónei! Því að þegar hann var ráðinn til þess að leika hálfstrípaðan sjóræningja í bíó- mynd fyrir skemmstu, gengu brjósthárin ekki meir í augun á leikstjóranum en það, að hann skipaði Jeff að veskú snauta heim til sín og raka þau af sér á svip- stundu! Svo að þama sjáið þig svart á hvítu, að það er ekki allt fengið með steinaldarútlitinu. I> \f) fara væntanlega kosn- ingar í hönd, sem árum saman hafa verið alveg sjálfsagðar, en enginn hefur almennilega þorað að mæla með fyrr en loksins núna. Þetta em kosningarnar um ölið, þegar allir atkvæðisbærir menn á landinu verða beðnir að segja meiningu sína um mjöðinn, óg Til DÆMIS er það víst orð- ið allt annað en bamaleikur fyrir fullan mann að komast inn á dans- leik. Honum er snúið við í dyr- unum. Og sannorðir menn segja, að það sé jafnvel hætt að vera barnaleikur að drekka sig fullan á dansleik, því að þjónarnir snúi bökunum við þannig mönnum. Þetta er ágætt og til fyrir- myndar. En meðaJ annarra orða — og úr því allt tal okkar snýst þessa stundina um fulla unglinga — hvað varð af kvenlög- reglunni, sem öll blöðin og jafnvel út- varpið með vom að tala um fyrir nokkrum ár- um ? Ef ég man rétt, átti málið að vera komið á það stig, að það væri ekkert eftir annað en ráða kvenmennina. Og síðan ekki söguna meir. Ekki svo að skilja, að ég hafi mikla trú á því, að einn eða tveir kvenlögregluþjónar geti bjargað drykkfelldum unglingum frá eilífri glötun. Bara ætlaði ég að nota tækifærið til þess að gera það að tillögu minni, að Fegrun- arfélagið verði látið velja konurn- ar, þegar að því kemur. Það setur þá að minnsta kosti ekki upp gosbrunna á meðan. G. J. A. Kæra Vika,! Nú er ég í svo miklum vandrœðum, og leita til þín í neyð minni. Ég yfir- gaf íbúðina héma í vor í aðeins mán- uð, en þegar ég kom aftur og lwf vorhreingeminguna fann ég tvo maðka með rauðan haus, en það var bara byrjunin því íbúðin virðist vera alveg undirlögð og mölur kominn um allt. Við ‘erum búin að sprauta DDT á alla hluti, veggina hvað þá annað en það virðist engin *áhrif liafa á pennan ófögnuð. Mölkúlur eru í hverri skúffu og hillu en alltaf er ég að finna fleiri götótt föt og mölflugur. Ég er nú alveg orðin úrrœðalaus og veldur þetta mér vaxandi áhyggjum með degi hverjum því alltaf er ég að rekast á þessar litlu iðandi livítu pöddur sem halda sig helzt í dökkum fötum. En þœr virðast ekkert stœkka og er ég farin að halda að þetta sé ekki mölur á byrjunarstigi. En hvemig lítur mölur út fyrst ? Hvemig i ósköpunum á ég að fara að? Ung húsmóðir. Því miður kannast VIKAN ekkert við maðka með rauðum haus, sem kippa sér ekki upp við DDT. Þú skalt snúa þér til Aðalsteins Jóhannssonar meindýraeyðis, Rauðarárstíg 36 (sími 5056). Svar til Erlu: Don Ameche lék Stefan Foster í kvikmyndinni „Við Svanafljót". Aðrir leikarar voru Andrea Leeds og A1 Jolson. Myndin var tekin 1940. Kœra Vika, Geturðu ekki sagt mér livað kona á að gera, þegar hún kemst að raun um að maðurinn hennar er hrœðilega reglusamw og hreinlegur, en hún sjálf óreiðusöm? Auðvitað á maður þá að taka gagngerðum breytingum, en það er ekki svo auðvelt. Er ekki bezt að mætast á miðri lcið? Getur eiginmaðurinn krafizt þess að allt sé i röð og reglu í saumakörfunni og i borðstofunni ? Húsmóðir. Mér finnst að konan eiga að hafa saumakörfuna sína í friði (hvernig sem hún lítur út), en þá verður hún að sauma tölurnar á buxurnar mannsins síns og gera við fötin hans, svo hann hafi ekkert erindi í körf- una. Það er öðru máli að gegna með borðstofuna bæði af fagurfræðilegum og heilsufræðilegum ástæðum. Þið eigið vafalaust bæði erfitt með að taka breytingum, en þú hefur sjálf stungið uppá því að mæta honum á miðri leið. Hvernig væri að hafa borð- Framhald á bls. 13. Iðnsýningin 1952 Opin alla daga frá klukkan 14 til 23. >>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>t»t»t»>>»>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>; Læknaskipti Þeir samlagsmenn, sem réttinda njóta í Sjúkrasam- lagi Reykjavíkur og óska að skipta um lækna frá næstu áramótum, snúi sér til skrifstofu samlagsins, Tryggvagötu 28, til loka þessa mánaðar, enda liggur þar frammi listi yfir lækna þá, sem valið er um. Læknaskipti geta því aðeins farið fram, að samlags- maður sýni tryggingarskírteini sitt og skírteini beggja, ef um hjón er að ræða, enda verða þau að hafa sömu lækna. — Reykjavík, 1. október 1952, Sjúkrasamlag Reykjavíkur. *>>: >»i< v V V V* V V V v V V V V V V V V V V V V V V V V V >z< ♦ V V V í V V V Útgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli J. Ástþórsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.