Vikan - 16.10.1952, Side 13
VIKAN, nr. 40, 1952
13
AL JOLSON: rússneskur
Oyðingur sem varð heimsfrægur.
AL JOLSON — kvikmyndaleikar-
inn og söngvarinn, sem lést í
fyrra — var sennilega eini leikarinn
í Bandaríkjunum sem nokkurntíma
féll af frjálsum vilja frá sextán
milljón króna kaupkröfu. Hanri var
líka eflaust eini leikarinn í Banda-
ríkjunum, sem ekki hafði hugmynd
um, hvenær hann var fæddur, og
hann var vissulega sá leikarinn
bandaríski, sem hlotnaðist sá heiður
að leika aðalhlutverkið í fyrstu tal-
myndinni. Þar á ofan átti það fyrir
honum að liggja að leika aðalhlut-
verkið í þeirri mynd bandarískri, sem
skilað hefur hvað mestum ágóða til
þessa; það var myndin The Singing
Pool, og tekjurnar af henni námu um
200 milljónum króna.
Vikukaup Jolsons var um eitt skeið
rösklega 500,000 krónur, og þetta
kaup fékk hann i sex mánuði, þó
hann gerði ekki handtak! Auðvitað
var hann fús til að vinna. En svo
vildi til, að vinnuveitandinn hans —
United Artists — vantaði handa hon-
um gott kvikmyndarhandrit, svo það
kom í hans hlut að gera nákvæmlega
ekkert annað en spila golf og sækja
kaupið sitt — um 14 milljónir króna
eftir núverandi gengi!
Það var í lok þessa tímabils sem
hann afsalaði sér réttinum til 16
milljóna króna í viðbót. Kreppan var
skollin á og Joseph Schenck, góðvin-
ur Jolsons, var í miklum kröggum.
Samkvæmt samningi, átti Jolson
þessar miiljónir inni. En hann reif
samninginn í skrifstofu Schencks,
sem þá var forstjóri United Artists.
„Við skulum sleppa þessu! Ég geri
ekkert og þið getið hætt að borga
mér.“
Dæmdur til dauða.
A1 Jolson fékk berkla í æsku. Þeg-
ar hann leitaði til læknis, var honum
sagt, aö ef hann kæmist ekki frá
New York, yrði hann dauður eftir
sex mánuði. Þetta læknisráð var
ókeypis, sömuleiðis lyfseðillinn, sem
þjji'r fengu honum, og lyfið, sem hann
átti að fá. En þegar hann fór að
sækja það, uppgötvaði hann, að hann
átti að greiða tíu cent fyrir flösk-
una. Hann átti ekki tíu cent — og
lyfið eignaðist hann aldrei.
Það skipti þó kannski ekki máli,
því að án þess batnaði honum og án
frekari læknishjálpar. En hann gat
að vonum ekki gleymt því, hvernig
honum varð innanbrjósts, þegar hann
hafði eklci einu sinni efni á að eign-
ast ókeypis lyf. Hann taldi sig þá
dauðadæmdan mann. Og nokkrum
árum seinna, þegar hann var orðinn
ríkur, mundi hann þetta enn, og upp
frá því gaf hann tugi og jafnvel
hundrað þúsunda á ári til hjálpar
fátækum berklasjúklingum.
Afmæli í maí.
A1 Jolson — leikarinn og söngvar-
inn heimsfrægi — vissi ekki hvenær
hann var fæddur! Hann taldi sig vera
eitthvað á sjötugsaldri, þegar hann
lést í fyrra. Hann var fæddur í Rúss-
landi. Foreldrar hans voru blásnauð-
ir Gyðingar. Þeir voru ekki að hafa
fyrir því að leggja afmælisdag eins
krakkabarns á minnið. En eftir að
Jolson var orðinn frægur, vildu vinir
hans gefa honum afmælisgjafir, svo
að hann varð að velja sér afmælis-
dag. Hann vissi, að hann mundi lítið
græða á því að velja sér afmælisdag
í haustmánuði, því leikarar eru oft-
ast félitlir í byrjun leikárs. Aftur á
móti geta þeir verið talsvert f jáðir á
vorin, svo að Jolson ákvað að hafa
læðst í maí — nákvæmlega tiltekið
26. maí.
Jolson var barn að aldri, þegar
hann fékk fyrsta hlutverkið sitt.
Þetta var í leikriti, sem nefndist
Börn Gyðingahverfisins. Honum var
aðeins ætluð ein setning; hann átti
að æða inn á leiksviðið og öskra:
„Drepum Gyðingana!" Faðir hans
var ákaflega hreintrúaður Gyðingur.
Þegar hann frétti, að sonur hans
heimtaCi dauða yfir alla Gyðinga á
hverju kvöldi, munaði minnstu að
leiklistarferli Jolsons væri þar með
lokið.
Trébekkur í garði.
Jolson var allslaus, þegar hann
fyrst lagöi leið sína til New York.
Hann komst til borgarinnar sem
launfarþegi í járnbrautarlest. Og eft-
ir að þangað var komið, varð hann
um hríð að gera sér að góðu að eiga
ekki annan svefnstað en trébekk í
skemmtigarði. Og hann fékk ekki
matarbita dögum saman.
En hann gafst ekki upp og svo
fór hann að fá svolítil hlutverk. Svo
urðu hlutverkin stærri og svo komu
talmyndirnár og Jolson varð fræg-
ur um allan heim. Það var þá sem
hann varð að velja sér afmælisdag,
þá sem hann hafði efni á að afsala
sér 16 milljónum króna á einu bretti.
Tvær myndir voru 4
gerðar um æfi hans
Al JOLSON hætti kvik-
myndaleik að mestu fyrir 1940.
Þó kom hann enn frani í nokkr-
um revýumynd-
um á stríðsárun-
um. En það var
ekki svo að skilja,
að liann væri
gleymdur. Og
1947 var búin til
kvikmynd um æfi
hans með Larry
Parks í aðalhlut-
verkinu. Jolson
söng sjálfur alla
söngvana, og
þessi niynd Varð
svo vinsæl, að
larry Parks' framlialdsmynd
var búin til tveimur árum síðar.
Henni var líka mjög vel tekið og
því var þriðja myndin ákveðin,
þar sem Jolson sliyldi ekki ein-
asta syngja, beidur einnig láta sjá
sig. En áður en þeim áformum
varð hrint i framkvæmd, lézt hann
af hjartaslagi.
4
4
4~
4~
4-
4-
4-
4-
4■
4■
4
4
4
4
4
4•
4
Hver man nú eftir Mary Piclcford? Þeir eru orðnir fáir. En
það er vafasamt, hvort nolckur kvikmyndastjarna hefur nokk-
urntíma notið eins mikillar hylli eins og hún. VIKAN segir frá
henni í nœstu viku.
PÓSTURINN
Framhald af bls. 2.
stofuna í lagi, en saumakörfuna i
eins mikilli óhirðu og þig langar til.
Ef þetta er þér ofviða, sé ég ekki
annað en að þú verðir bara að ganga
út og hengja þig — en manninum
þínum mundi þá vafalaust gremjast
hvað þú gerir það ófaglega og sóða-
lega.
Svar til Hönnu:
Inntökuskilyrði Leiklistarslcóla
Þjóðleikhússins eru þau að nemandi
sé 16—25 ára, hafi lokið gagnfræða-
prófi eða hafi aðra sambærilega
menntun og að málfræði sé lýtalaust.
Á inntökuprófi flytur nemandi eitt
ljóð og atriði úr tveim leikritum. Það
er því bezt fyrir þig að búa þig undir
þennan skóla, taka gagnfræðapróf og
æfa þig að lesa upp. Þú hefur 6 ár
til stefnu.
Síðari spurninguna geymum við
þar til seinna.
Halló Vika!
Viltu vera svo góð að svara þess-
um spurningum fyrir mig?
1. Hvað á ég að vera þung, ég er
13 ára?
2. Hvað á ég að gera við varirnar
á mér þcer eru svo þurrar ?
Fáfróða Sakaria.
P.s. Viltu svara þessu sem fyrst
ég er svo spennt.
Við getum ekki sagt þér hvað þú
átt að vera þung, því við vitum ekki
hve há þú ert.
Fáðu þér varasalva í næstu lyfja-
búð og varastu svo að sleikja var-
irnar.
Ég hef skrifað þér einu sinni áður
og ekki fengið svar, en nú reyni ég
aftur og vonast til að verða heppn-
ari.
Er hmgt að fá „Afga“ litfilmur í
algengar kassavélar, t. d. 6X9 — 620
umfram allt sendið mér svar fljótt
L. M. N.
Verzlunin Týli í Austurstræti hef-
ur Agfa-litfilmur, 6X9 á tréspólum.
Afgreiðslustúlkan sagði nú samt að
kassavélar væru varla nógu góðar til
að taka litmyndir, þó það sé hægt.
Getur þú Vika mín góðfúslega tjáð
mér svör við eftirfarandi spurning-
um.
1. Á vegum hvers eða hvaða félags
hafa verlistjóranámskeið farið fram?
2. Hafa slik námskeið eingöngu
verið miðuð við fiskaðgerð og fisk-
mat ?
3. Hvað langan tíma taka svo þessi
námskeið ?
j. Verða slík námskeið á árinu
1952 eða síðar?
Vœnti ég nú svars við þessum
spurningum.
Verkamaður úti á landi.
Á vegum Fiskimats ríkisins hafa
farið fram námskeið fyrir matsmenn.
Eitt slíkt námskeið verður haldið eft-
ir áramót og nokkuð margir menn
hafa þegar tilkynnt þátttöku sína. Ef
þú hefur áhuga fyrir þessu skaltu
skrifa Fiskimati Ríkisins í Hamars-
húsinu í Reykjavík, fá nánari upp-
lýsingar og tilkynna þátttöku þína.
Því miður vitum við ekki af öðr-
um námskeiðum fyrir verkstjóra.