Vikan


Vikan - 30.10.1952, Side 10

Vikan - 30.10.1952, Side 10
10 VIKAN, nr. 42, 1952 - HEIMILIÐ - BITSTJÓRI: EL.ÍN PALMADÓTTIB AÐSTOÐ TIL SÆNGURKVENNA Meira öryggi fyrir konur að fœða börn sín heima, ef þœr hafa góða hjálp, segir Helga Níelsdóttir tjósmóðir. FYRIR nokkrum vikum lásum við í Morgunblaðinu, að frú Auður Auð- uns hefði skýrt frá því á fundi bæj- arstjórnar, að bærinn hefði stúlkur til hjálpar sængurkonum. Nú hefur VIKAN snúið sér til Helgu Nielsdóttur ljósmóður, sem hefur séð um þessa aðstoð á þriðja ár og fengið hjá henni nánari upp- lýsingar um þessi mál. Helga hefur á að skipa þrem fast- ráðnum stúlkum, sem allar eru á kaupi hjá bænum. Auk þess fær hún aukastúlkur, ef á þarf að halda. Nú um tíma hafa t. d. sjö stúlkur séð um heimili sængurkvenna, meðan þær hafa átt börn sín. Sængurkona, sem á barn sitt heima og ekki hefur húshjálp, getur þvi snúið sér til Helgu Nielsdóttur með beiðni um aðstoð og fengið stúlku í 12 daga frá niu á morgnana til kl. sjö á kvöldin. Auk þess hefur stund- um verið hægt að senda stúlku til að þvo 1—2 þvotta eftir að húsmóð- irin er komin á fætur, þ. e. s. ef ekki liggja of margar hjálparbeiðnir fyrir. Aðstoðarstúlkurnar leysa af hendi þau heimilisstörf, sem með þarf: þvo, matreiða, hugsa um börnin o. fl. Þessvegna þurfa þær helzt að kunna öll hússtörf. Tvær af aðstoðarstúlk- unum, sem nú hafa þetta starf á hendi, eru útskrifaðar af húsmæðra- skólum. Ein stúlknanna, sem ráðin er til frambúðar til þessa starfa, er nú á vegum norska húsmæðrasambandsins á námskeiði fyrir slíkar aðstoðar- stúlkur i Voss í Noregi. Þar vinnur hún um tíma á fæðingardeild, í sjúkrahúsi og þvottahúsi og fær til- sögn í hverskonar hússtörfum og meðferð mjólkur, með tilliti til sveit- anna. Frú Helga segist vonast til að geta skipulagt þessa hjálp betur, þegar hún fái fleiri stúlkur sérstak- lega menntaðar til þessa starfa. Frúin lagði mikla áherzlu á að hún væri sammála grein, sem land- læknir skrifaði í Heilbrigðistíðindi, þar sem hann hélt þvi fram að í raun og veru væri mikið meira öryggi í því fyrir konur að fæða börn sín heima, ef þær hefðu góða hjálp, þó það væri auðvitað lífsspursmál að hafa fæðingardeildir, ef eitthvað kemur fyrir og fyrir þær stúlkur, sem ekkert heimili eiga. Við spurðum frúna, hvort slík hjálp til sængurkvenna væri nýtilkomin. „Nei, Magnús Jóhannesson hafði slíka aðstoð með höndum fyrir 20— 30 árum og aðstoðaði þau heimili, sem nutu styrks hjá bænum. Um tíma hafði Likn slikar aðstoðarstúlk- ur og nú hefi ég séð um þetta á þriðja ár fyrir ljósmæðrafélagið." „Getið þér sinnt öllum beiðnum?" „Ég man aldrei eftir að hafa neit- að nokkru heimili um aðstoð.“ „Og hvernig finnst stúlkunum að- búðin og hreinlætið á heimilunum ?“ „Yfirleitt eru stúlkurnar bundnar þagnarheiti um það sem þær sjá á heimilunum eins og ljósmæðurnar sjálfar. Ef hreinlæti er ábótavant, þá er það þeirra að bæta úr því." „Er þessi hjálp aðeins veitt sæng- urkonum?" „Já, sama stúlkan getur ekki hugsað um sængurkonur og aðra sjúklinga t. d. taugaveikissjúklinga eða hálsbólgusjúklinga. Til þess þyrfti aðrar stúlkur." „Borga sængurkonurnar eitthvað fyrir aðstoðina?" „Ef ástæðumar eru góðar á heim- ilinu borgar það 20 kr. á dag. Ann- ars legg ég til að hjálpin verði veitt ókeypis og bærinn hefur verið ákaf- lega rýmilegur með það.“ Við þökkum svo Helgu Nielsdóttur fyrir upplýsingamar. Hún þekkir kvenna bezt hvernig þessum málum er háttað í Reykjavík, því hún hefur verið ljósmóðir í bænum síðan 1927. Allar aðstæður hafa mikið breytzt síðan hún hóf starfsferil sinn og þá áttum við enga fæðingardeild. garðurinn ■'7'i f -=ÍJD Maðurinn með fuglsvipinn er mjög vinsæll i gleðskap. Svo ef þér þykir gaman að skemmta þér . . . Það er margs að gæta á barnaheimilum • hágir bamastólar eru börnun- um síður hœttulegir en venjulegir barnastólar. • Bindið bömvn i vagninn og stól- inn, þegar þau fara að hreyfa sig og klifra. • Setjið hlið ofan við stigann, þangað txl barnið getur sjálft geng- ið niður. • Setjið rimla fyrir opna glugga. • Hafið ekki barnið í eldhúsinu meðan þið eruð að steikja. Feiti- slettur eru hœttulegár. • Venjið ykkur á að setja skapt- pottana þannig frá ykkur að skaptið snúi að veggnum og látið skaptið á pönnunni ekki undir neinum kring- umstœðum standa fram af borðrönd- inni. • Setjið heit föt alltaf á mitt borðið meðan verið er að borða. • Festið dúkinn, svo barnið geti ekki dregið hann til sín. • Látið barnið ekki ná i tölur, baunir eða aðra litla liluti, meðan það stingur öllu upp í sig. • Látið barnið ekki hafa blýanta eða aðra oddhvassa hluti. Það getur hlaupið með þá uppi í sér og dottið. • Verið nákvœmar með hita bað- vatnsins. • Snertið aldrei rafmagnsáliald meðan þið eruð að baða barnið. • Slciljið aldrei eftir bala með heitu vatni á gólfinu. • Gœtið þess vandlega að hafa rafmagnstenglana i lagi og venjið barnið strax á að snerta þá ekki. • Geymið eldspýtustokkana, þar sem bamið ncer ekki í þá. • Hendið strax glerbrotum og tómum dósum. Og gœtið um fram allt rakvélablaðanna. • Losið ykkur við allt eitur. Skýrslur sýna að meirihluti fólks, sem deyr af því að borða óviljandi eitur, eru börn á aldrinum 1—2 ára. • Lokið vandlega niðri öll meðul, blettavatn, stei/noliu, tóbak, ammon- íak og önnur efni til að hreinsa með. UR YMSUM ATTUM 10 mest hrífandi menn heimsins. Marlene Dietrich er vafalaust frægasta amma heimsins. Þó hún sé komin til ára sinni, er hún jafn töfrandi og áður og hún hefur enn hæfileikann til að heilla karlmenn, hvort sem er á léreftinu eða í eigin per- sónu. Fyrir nokkrum árum sagði hún blaðamanni nokkrum, hverjir væru 10 mest hrífandi karlmenn, sem hún hefði kynnzt. Við könnumst við þá alla, þó við höfum ekki orðið fyrir persónulegu aðdráttarafli þeirra: Erich María Remarque rit- höfundur, Ernest Hemingway rithöfundur, Eerle Stanley Gardner, Noel Coward leikari, Alexander Kirk frv. sendiherra í Róm, tónskáldið Igor Strav- insky, hljómsveitarstjórinn Art- uro Toscanini, kvikmyndastjór- inn Robert Rossolini (þar var Ingrid Bergmann henni sam- mála) og málararnir Pablo Picasso og Salvador Dali. Aftur á móti finnst henni hershöfðingjar hræðilega alvar- legir menn — nema í stríði. Og þegar hún var spurð hvaða manni hana langaði til að kynn- ast, svaraði hún: ,,Engum.“ Greta Garbo býr nú á Hotel Carlton í Cannes og sést oft án dökku sólgleraugnanna og barðastóra hattsins. Hún ekur um nágrennið með Emile, bíl- stjóranum, sem er nú búinn að aka henni í 30 ár. Fleiri frægar konur búa á Carlton um þessar mundir. Þar er t. d. hertogafrúin af Winds- or, sem aldrei leyfir sér að ganga í stuttbuxum á strönd- inni. Nuddkonan hennar, Berta, er með henni, eins og venjulega. Hættum að nota ljótu höfuðklútana Flestum kemur saman um aö ekkert höfuðfat sé Ijótara og óklœðilegra á kven- fólkinu en íclútar bundnir undir kverk. En hér á íslandi er alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað áhöfðinu, sem hylur hárið, svo það blotni ekki í rigningunni og sit- ur fast á höfðinu, svo það fjúki ekki í rokinu. hneppa henni með einum hnappi neðst í hnakkanum. Þá myndast gat á hvirflinum og sumir setja vattrönd kringum það líka, til að halda því stífu, en það er þó ekki nauðsynlegt. í mestu kuldunum í fyrravetur komu svona húfur á markaðinn í Frakklandi og viku seinna sást önn- ur hver kona með þær á götunni, bæði með fínum pelsum eða sport- kápum. Báða þessa kosti hefur húfan á myndinni. Og hún hefur líka fleira sér til ágætis, því hún er bæði klæði- leg og tvilit, græn að innan og svört að utan, svo það er hægt að snúa henni við. Og til að eignast svona höfuðfat, þurfum við ckki annað en að prjóna tvö stykki með sléttu prjóni, grænt og svart, setja vattrönd á milli þeirra að framan, svo húfan rísi svolítið við andlitið, sauma hana saman og

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.