Vikan - 27.11.1952, Page 3
VIKAN, nr. 46, 1952
3
er félag allra
landsmanna
Þaö á aldarfj órðungsafm æ tí
Lárus Ottesen framkvœmdastjóri F.I.
jl ANN 27. nóvember 1927 stofn-
uðu 63 menn Ferðafélag íslands. I
þessari viku — 25 árum síðar — er fé-
lagið orðið eitt hið f jölmennasta á öllu
landinu með rösklega 6,000 meðlimi. Það var stofnað í því augnamiði
að stuðla að auknum ferðalögum almennings á Islandi. Það hefur rækt
hlutverk sitt með sóma. Það reisti fyrsta sæluhúsið í Hvítárnesi 1930,
og nú á það átta sæluhús í óbyggðum og enn fleiri eru á prjónunum.
Það hefur frá upphafi átt mæta forystumenn. Jón Þorláksson borg-
arstjóri var fyrsti forseti félagsins, þá Bjöm Ólafsson stórkaupmað-
ur, þá Gunnlaugur Einarsson læknir, þá Jón Eyþórsson veðurfræðing-
ur og nú hin síðustu ár Geir Zoega vegamálastjóri.
Það hefur beitt sér fyrir ótal ferðalögum, lengri og skemmri. Fyrsta
skemmtiferðin var farin 21. apríl 1929; það var út á Reykjanes. 1 ár
hefur það efnt til margra sumarleyfisferða í byggð og á öræfum
(dæmi: Breiðifjörður, Barðaströnd, Vestfirðir, Isafjarðardjúp, norð-
urleiðin til Mývatnssveitar, Dettifoss, Ásbyrgi, Axarfjörður, Fljóts-
dalshérað, Austfirðir) og fjölda skemmri ferða. Og í vetur verður
ekkert lát á ferðalögunum.
I fyrstu árbók Ferðafélags Islands (kjörorð þess er annars: „Ferða-
félagið er félag allra landsmanna“), sem kom út 1928, er meðal annars
grein eftir Sigurð Nordal sendiherra. Hún heitir Gestrisni byggða og
óbyggða. VIKAN birtir hér, með leyfi Ferðafélagsins, kafla úr rit-
gerð hans:
Geir Zoega, vegamálastjóri, forseti Ferðafélags íslands.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
H. 6. Wells hefur í einni af
bókum sínum um framtiðarskipulag'
beimsins borið fram þá hugmynd, að
UPP þyrfti að risa stétt manna, er
bæri frá að hæfileikum, uppeldi og
mannkostum, og setti sér það mark
að verða leiðtogar og stjórnendur
mannkynsins. Ein af þeim kröfum,
er gera skyldi til þessara manna, var
sú, að hver þeirra færi hálfan mánuð
á ári upp í fjöll og óbyggðir, einn
sins liðs. Það vakir fyrir honum, að
slikt ferðalag væri hið bezta ráð til
þess að kenna manninum að treysta
sjálfum sér, horfast í augu við til-
veruna, greina sundur aðalatriði og
aukaatriði lífsins, hressa og herða
líkama og sál.
Öræfin eiga líka sína gestrisni,
svipmikla og stórfellda, bláfjallageim
og heiðjöklahring,
sem enn þá betra er
að kynnast sjálfur en
lesa um hjá skáldun-
um, því að orðin ná
skammt til þess að
lýsa hátign óbyggð-
anna og friði. Ein
dagleið um öræfi er
að hressingu á við
margar í byggðum.
Það eina, sem ástæða
er til þess að óttast,
er langvarandi óveð-
ur. Páeinar dembur
eru ekki nema
skemmtileg tilbreyt-
ing fyrir þann, sem
hefur kunnað að búa
sig heiman. En i
langviðrum er sjald-
an vont veður nema
Geir Zoega vegamála-
stjóri er forseti F.í. og
Pálmi Hannesson rektor
varaforseti. En rneð-
stjórnendur eru: Gísli
Geirsson bankafulltrúi,
Guðmundur Einarsson
myndliöggvari, Helgi
■Jónasson frá Brennu, Jón
Eypórsson veðurfrœðing-
ur, Lárus Ottesen fram-
kvœmdastjóri, Þorsteinn
Jósefsson rithöfundur,
Jóhannes Kolbeinsson
trésmiður, Hallgrímur
Jónasson yfirkennari og
Þórarinn Bjömsson full-
trúi.
öðrumegin við vatnaskil hálendisins.
Sunnanbrælan endar á Hveravöllum
og þá er sólskin og sunnanvindur
norður i haf, og norðansvækjan nær
ekki nema suður í Gránunes. Sá sem
fer í ferðalag um óbyggðir, og getur
skapað sér áætlun jafnóðum, getur
líka valið sér veður miklu meir en
niðri í byggðum.
Keyndu að koma í tjaldstað á fögru
sumarkvöldi eftir hæfilega langa
göngu með háfjallablæinn í blóðinu
og góða samvizku áreinslunnar í
hverjum lið. Þú þarft að slá tjaldi,
leysa föggur, kveikja eld, sjóða mat,
koma fyrir svefnpoka, hafa allan
veg og vanda af sjálfum þér. Það er
enn þá betra en koma á bæ, hima
inn í stofu og bíða þess, hvað við
þig verði gert. Svefninn er ótrúlega
vær, loftið hreint, hvildin þæg, og
þú vaknar ekki um
morguninn við skil-
vindusón eða hænu,
sem er að verpa. Þú
vaknar endurfæddur,
kemur út úr tjaldinu
og finnst heimurinn
nýr og ósnortinn eins
og hann hafi verið
skapaður í nótt. Ef
til vill hefurðu geng-
ið daginn áður um
brunahraun og auðn-
ir og tjaldstaðurinn
er Hveravellir eða
Landmannalaugar,
iðjagrænn blettur
með heitu vatni. Þá
finnurðu, að þú ert
að kynnast Islandi,
andstæðum þess,
harðleikni og blíðu,
tign og yndi, eins og það væri að
hvisla að þér leyndarmálum sínum.“
Þorsteinn Jósefsson tók myndina,
sem hér er fyrir neðan: tveir ferða-
langar og Loðmundur í baksýn. Nú
er fjölmennt á þessar slóðir árlega,
fólkið er farið að taka ferðalögin
eins og sjálfsagðan hlut, það er að
komast í nánari tengsl við landið og
farið að meta fegurð þess.
Þar á Ferðafélag Islands mikinn
hlut að máli. Það hefur i 25 ár brýnt
fyrir fólkinu, að óviða í heiminum
sé önnur eins náttúrufegurð eins
og einmitt i þessu landi. Það hefur
líka ósjaldan auðveldað þvi ferðalög-
in, kennt því að ferðast, og hvað eftir
annað unnið brautryðjandastarf í ís-
lenzkum óbyggðum. Það er af sem
áður var, þegar menn renndu varla
augum út fyrir sýslumörk sín og al-
menningur leit á ferðalög sem svaðil-
farir.