Vikan


Vikan - 12.09.1956, Síða 7

Vikan - 12.09.1956, Síða 7
HJÓIMABAIMDIÐ ER DÁSAMLEGT - ÞEGAR RÉTT ER AÐ FARIÐ Gætið þess að heimilið verði ekki einskonar fangelsi EG geri ráð fyrir, að það sé nú á dög- um að ýmsu leyti erfiðara að vera giftur en nokkru sinni fyrr. Það er svo mikið sem gengur á allt í kringum okk- ur; það verður sífellt erfiðai’a og flókn- ara að stjórna heimili og það er sannar- lega enginn barnaleikur lengur að átta sig á hinni sívaxandi dýrtíð. Auk þess neyðumst við flest til að vinna of mikið og — það er bezt að segja sannleikann eins og hann er — við erum oft allt of þreytt. Það er alltaf erfitt að umgangast þreytt fólk. Og svo eru hugmyndirnar, sem fólk g;erir sér um hjónabandið, allt of oft rang- ar. Það dreymir um hjónaband með eins- konar kvikmyndasniði. Hvert ævintýrið á að reka annað, allt að vera hlátur, söng- ur og dans. Hjónaefnin hittast aðeins þeg- ar bezt á stendur. Engin ólund. Bæði eru eins og klippt út úr tízkublaði. Hann kemur fram sem hinn síglaði heimsmaður, hún sem skilningsbezta og fegursta stúlka veraldar. Hann sér hana aldrei nema í beztu fötunum sínum og í sínu skemmtilegasta skapi, og alltaf eru þau að fara eitthvað saman og reiðubúin að skemmta sér. Flest ungt fólk skemmtir sér mikið í trúlofunarstandinu. Hjónaefnin eru sífellt að „fara út“ saman. Þau fara í bíó, í leik- húsið, á dansleiki og í veitingahús. Þau vita ef til vill, að seinna muni þau ekki hafa efni á þessu. Þá hugsa þau sem svo, að það sé bezt að njóta lífsins meðan þau geti. Og þar sem allt er svo dásamlegt, er ekki nema eðlilegt, þótt sum hjónaefnin haldi, að svona verði það ævinlega. Hjóna- bandið þeirra á að verða ólíkt öllum öðr- um. Þau gera sér ekki ljóst, að hið á- hyggjulausa tilhugalíf þeirra kann að draga dilk á eftir sér. Því meiri verða við- brigðin, þegar' þau uppgötva, að hjóna- bandið þeirra er nákvæmlega eins og öll önnur. Sannleikurinn er sá, að hugmyndir ungs fólks um hjónabandið eru oftast alrang- ar. Enginn 'hefur fyrir því að sýna hjóna- efnunum fram á, að hjónabandið sé ekki eintómur dans á rósum, að það sé í raun- inni gjörólíkt tilhugalífinu. Hið róman- tíska ástarævintýri tekur enda og við tek- ur daglega lífið með öllu sínu erfiði og vandamálum. Það er mikill vandi að láta hjónabandið ekki verða leiðinlegt. Þegar fólk stofnar heimili, er það að binda sér bagga. Þetta er svosem ekki rómantískt, en þetta er staðreynd. Það fylgja ýmsar skyldur hjónabandinu, og það er ekki hægt að hlaupast frá þeim. Heimili þarfnast þjón- ustu; það er ekki of djúpt tekið í árina að segja, að á heimilinu séu verkefnin óþrjótandi. Það er ekki hægt að halda áfram að haldast í hendur og hvísla ástar- orðum, þegar diskarnir standa óþvegnir frammi í eldhúsi. Hið hættulega augnablik rennur upp, þegar ungu hjónin gera þessa uppgötv- un. Þau verða sumsé að læra að taka hin- um nýju skyldum með jafnaðargeði og án þess að láta sér leiðast. Staðreyndirnar blasa við ungu hjónun- um, þegar hann arkar út á nýþvegið gólf- ið í skítugum skóm eða henni tekst að stífla eldhúsvaskinn í fjórða skipti á jafn- mörgum vikum. Eða hið fagra sumar- kvöld, þegar þau geta ekki farið í göngu- túr „eins og einu sinni“ af því verkefn- in heima fyrir eru svo mörg og knýjandi. Eitt sinn dreymdi þau um að snæða sam- an morgunverð á fallega dúknum, sem hún hafði saumað. Þau mundu aldrei láta hversdagslega hluti skyggja á rómantík- ina. Það eru einmitt hversdagslegu smáat- riðin sem varpa skugga á svo mörg hjóna- bönd. Þau hjón eru allt of mörg, sem láta koma sér úr jafnvægi. En þessi skyldu- verk eru partur af hjónabandinu, og þeg- ar þau byrja að valda leiðindum, er voð- inn vís. Svo mikið er víst, að mikill háski er fyrir dyrum, þegar hjónabandið kemst á það stig, að hjónunum fer að leiðast. Ég er sannfærð um, að fátt er heim- ilisfriðnum og hjónabandinu hættulegra en að lifa um efni fram. Peningaáhygggj- um fylgja allskyns aðrar áhyggjur og framhaldið er oft á tíðum óánægja, þreyta og rifrildi. Staðreynd er það líka, að ung hjón eru oftast allt of mikið saman. Ég skal viður- kenna, að þetta lætur einkennilega í eyr- um. En bíðum nú við. Þegar þau voru trúlofuð, höfðu þau feiknin öll að tala um; þau sögðu hvoru öðru frá öllu, sem á daga þeirra hafði drifið, síðan þau sáust síðast. Svo að það er alveg óhætt að mæla með því, að hjón leiti öðru hvoru út af heimilinu — og ekki alltaf saman. Það er farsælt fyrir hjónabandið, að þau hafi eitthvað að tala um, sem ekki snýst ein- göngu um þau bæði. Af sömu sökum get- ur það verið heilladrjúgt á stundum fyrir hjón að vera ekki saman allt sumarfríið. Einkum mæli ég með þessu, ef heimilis- lífið er eitthvað erfitt. Allir þarfnast til- breytingar, og skiptir það þar að sjálf- sögðu engu, hvort menn eru giftir eða ógiftir. Þótt margar skyldur fylgi hjónaband- inu, ættu aðilar ávallt að gæta þess, að þær verði ekki að fjötrum. Það er hollt fyrir hjónabandið að fleygja skyldunum fyrir borð — öðru hvoru. Til dæmis er sjálfsagt að taka frá að minnsta kosti eitt kvöld í viku — og helst einn dag — til þess að láta eitthvað eftir sér. Þá eiga hjónin að fara út saman eða skemmta sér á þann hátt, sem báðum líkar bezt. Kunn- ingi minn, sem er læknir, sagði einu sinni við mig, að hann ráðlegði oft sjúkling- um að fara út að skemmta sér. Tilbreyt- , ingarleysið og hinn grái hversdagsleiki er Framhald á bls. lJf. IMý tíðindi — af léttara tagi KONA ein í Los Angeles fór nýlega í mál við mann sinn og krafðist skilnaðar á harla ó- venjulegum grundvelli. Hún upplýsti, að í hvert skipti sem hundurinn þeirra neitaði að hlýða eiginmanninum, tæki hann hana — og flengdi! Dómarinn veitti henni skiln- aðinn — og hundinn. ÞEGAR blökkumaður, sem starfaði í gimsteinanámu i Kimberley i Suður-Afriku kvartaði undan magapínu, spurði læknirinn hann, hvað hann hefði borðað síðast. ,,Nautaket,“ var svarið. En þegar hann var gegnum- lýstur, komu í ljós tíu gim- steinar, sem hann hafði ætlað að smygla upp úr námunni á þennan hátt. BOBBY WHEELER heitir Bandaríkjamaður, sem búsett- ur er í bænum Memphis. Fyrir skemmstu lenti hann i klandri, þegar hann var að reyna — eftir beztu getu — að fylgja umferðarreglunum. Hann var að aka heim til sín um kvöld, þegar hann sá rautt ljós framundan, taldi það vera umferðarljós og stöðvaði bílinn sinn. Járnbrautarstarfs- maður, sem þarna var nær- staddur, horfði sem snöggvast á bílinn, Wheeler og ljósið, og hringdi að þvi búnu á lögregl- una. Upp úr þessu var Wheeler sakaður um ölvun við akstur. Rauða ljósið hafði verið á járnbrautavita og hann hafði verið að aka eftir járnbrauta- teinunum! WOODY WOODSON í Corn- ing, Californiu, komst líka i kast við lögregluna fyrir skemmstu, en fór eiginlega með sigur af hólmi. Hann var sektaður fyrir ógætilegan akstur, taldi dóminn ranglát- an og borgaði fyrir sig með því að skipa lögreglunni að flytja innan þrjátíu daga! Gat hann þetta? Jú, raunar. Hann á húsið, sem lögreglu- stöðinn er í. LOUIS VUILLEUMIER heitir Frakki, sem mánuðuni samau var búinn að reyna að selja 32 herbergja sveitasetur, sem hann átti. Fyrir slcemmstu gafst hann upp. Hann keypti sér 130 stengur af dýnamiti og sprengdi óðalið í loft upp! EGGJ AFR AMLEIÐENDUR i Vínlandi í Bandaríkjunum efndu í sumar til mikillar ,,eggjahátiðar“. Við það tæki- færi harðsuðu þeir 15,000 egg í risastórum potti og útbýttu meðal gesta. 7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.