Vikan - 06.02.1958, Blaðsíða 5
III
— Hér þykir það afskaplega leiðinlegt, sagði Myrna Harris. Það er
svo sætt af yður að vera ekki reiður. En mamma er ein af þessum sem
gerir svo mikið veður af öllu. Og það er ekki eins og ég hafi verið með-
sek, skiljið þér? Ég á við að ég óttaðist bara að þér munduð aldrei trúa
því að ég hefði haldið að þetta væri bara grin.
Craddock lögreglufulltrúi endurtók hvatningarorðin, sem þegar höfðu
brotið niður varnir Myrnu.
— Eg skal segja yður allt af létta. Ætlið þér þá að halda mér eins
mikið utan við þetta og mögulegt er, vegna mömmu? Það byrjaði með
því að Rudi kom ekki á stefnumót við mig. Við ætluðum í bíó um kvöldið,
en svo sagðist hann ekki geta farið, og ég var ekkert of alúðleg við
hann, þvi hann hafði sjálfur stungið upp á þessu og ég kæri mig ekkert
um að útlendingar séu að stinga mig af. Hann sagðist ekkert geta að
þessu gert, og ég sagði að það væri líkleg afsökun, eða hitt þó
heldur. Þá sagði hann, að eitthvað sérstakt væri í bígerð þetta kvöld og
að það mundi gefa svolítið í aðra hönd, hvernig mér litist á að fá arm-
bandsúr. Hvað meinarðu með að eitthvað sé í bígerð? spurði ég, og hann
sagði að ég mætti engum segja það, en það ætti að vera veizla einhvers
staðar og hann ætti að leika gerfiárás. Svo sýndi hann mér auglýs-
fnguna, sem hann ,hafði sett i blaðið og ég gat ekki annað en hlegið.
Hann hafði hálfgerða fyrirlitningu á þessu öllu, sagði að það væri ótta-
lega barnalegt — en að það væri rétt eftir Englendingum. Þeir yxu aldrei
upp úr þessháttar, og auðvitað spurði ég hann hvað hann meinti með þvi
að tala svona um okkur — svo við rifumst dálitið en sættumst aftur. Þér
hljótið að geta skilið það, fulltrúi, að ég vissi ekki hvað ég átti af mér
að gera, þegar ég las um það í blöðunum að þetta hefði ekki bara verið
grín og að Rudi hefði skotið einhvern og sjálfan sig á eftir. Ég hélt
að fólk mundi halda að ég væri meðsek, ef það vitnaðist að ég hefði vitað
xim þetta fyrirfram. En svei mér þá ég hélt að það væri bara grín, þegar
hann sagði mér frá þvi. Ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að hann
ætti byssu. Hann minntist ekkert á að hann ætlaði að taka með sér byssu.
Craddock hughreysti hana og lagði að þvi búnu fyrir hana mikil-
vægustu spurninguna. — Hver sagði hann að hefði undirbúið leikinn?
En við þvi fékk hann/engin svör. -— Hann sagði ekkert um það hver
hefði fengið hann til þess. Ég býst ekki við að nokkur maður hafi gert
það. Hann hefur sjálfsagt útbúið þetta allt sjálfur.
— Nefndi hann nokkurt nafn? Sagði hann hún — eða hann?
— Hann sagði bara að þetta yrði alveg stórskemmtilegt. „Hvað ég
skal hlægja að svipnum á þeim,“ sagði hann.
Hann hafði ekki hlegið lengi, hugsaði Craddock.
IV
Verzlun okkar í Vesturveri
býður yður
Matar- og kaffistell úr postulíni
í fjölbreyttu úrvali.
Stakan leir, hvítan með blárri rönd.
2 stærðir af matardiskum.
Sósukönnur.
Matarföt, 5 stærðir.
Kartöfluföt, 2 stærðir.
Desertdiska og bolla, margar gerðir.
Mislitur leir frá Arabíu er væntanlegur
mjög bráðlega.
Við höfum á boðstólum öll þau búsáhöld,
sem fáanleg eru á hverjum tíma.
Skoðið og þér munuð sannfærast.
Verzlunin Hamborg
Vesturveri.
Verzlunin Hamborg
Laugavegi 44. — Sími 12527.
— Þetta er aðeins tilgáta, sagði Rydesdale, þegar þeir óku til baka
til Medenham. Og' hún er ákaflega ósennileg. Einhver dularfullur X
kemur allt i einu út úr myrkrinu á bak víð vin okkar, Svisslendinginn.
Hvaðan kom hann? Hver er hann? Hvar hafði hann falið sig?
— Hann hefði getað komið inn um garðdyrnar, alveg eins og Scherz,
sagði Craddock. Og hann hefur getað komið framan úr eldhúsi.
— Áttu við að hún hefði getað komið úr eldhúsinu?
— Já, það er hugsanlegt. Ég hef aldrei verið ánægður með stúlkuna.
Mér lízt ekki á hana. Allur þessi hávaði og þessi taugaveiklun — það
getur vel verið leikaraskapur. Hún hefði vel getað fengið piltinn til að
koma, iileypt honum inn á réttri stundu, skotið hann og flýtt sér inn í
borðstofuna, og farið að fægja sílfrið. Síðan gat hún byrjað ópin og
óhljóðin.
-— Það er eitt sem mælir gegn því — þessi, hvað heitir hann nú aftur
— ójá, þessi Edmund Svettenham heldur því ákveðið fram að lyklinum
hafi verið snúið í skránni að utan, og að hann hafi opnað með honum til
að hleypa henni út. Eru nokkrar dyr inn í þá álmu hússins?
— Já, það eru dyr fram í bakdyraganginn rétt undir stiganum, en
húnninn losnaði víst fyrir þremur vikum og hefur ekki verið festur á
aftur. Á meðan er ekki hægt að opna. Ég hugsa að það sé alveg rétt
með farið, því báðir húnarnir og járnið á milli þeirra lá á hillu í and-
dyrinu, þakið ryki, en auðvitað mundi æfður maður geta opnað án mik-
illa erfiðleika. Við ættum að rannsaka stúlkuna ofurlítið nánar og athuga
hvort skilríkin hennar eru í lagi. — Já, ég veit — ef yður finnst að
við ættum að láta við svo búið standa, þá verður svo að vera. En ég
vildi gjarnan fá að vinna ofurlítið meira að þessu.
Craddock til mikillar undrunar, sagði lögreglustjórinn aðeins ofur
rólega. — Ágætt, drengur minn.
— Við getum reynt að vinna út frá byssunni. Ef tilgátan er rétt, hefur
Scherz ekki átt hana. Ég veit að vísu að það er fullt af þýzkum byssum
í landinu. Ameríkanarnir komu með þær úr stríðinu og piltarnir olckar
reyndar líka. Það verður liklega ekki mikið upp úr því að hafa.
— Satt er það. Nokkuð fleira?
— Einhver ástæða hlýtur að vera. Ef nokkuð er til í þessari tilgátu
okkar, þá hefur það sem gerðist á föstudaginn var ekki verið neitt grín,
heldur kaldrifjuð morðtilraun. Einhver reyndi að myrða ungfrú Black-
lock. En hversvegna? Ég get ekki betur séð en að ef einhver veit svarið
við því, þá sé það ungfrú Blacklock sjálf.
— Mér skilst að hún hafi vísað þeirri tilgátu á bug.
— Já, hún neitaði því afdráttarlaust að Rudi Scherz hefði ætlað að
myrða sig. Og hún hafði rétt fyrir sér. Og svo er það annað. Einhver gæti
gert aðra tilraun.
Framhald á blaðsíðu llt.
I .
NYJA BLIKKSMIÐJAN
Höfðatiíni 6. — Símar: 1J/672 - !Jf80Jf.
REYKJAVlK
Stærsta blikksmiöja landsins.
Framleiðir:
Hraðfrystitæki og flutningsvagna með
gúmmíhjólum fyrir hraðfrystihús o. fl.
Eirþök á hús. — Þakglugga — Þakrennur.
Alúminíum veggrör.
Lofthitunar- og loftræstingartæki með
tilheyrandi. /
Hjólbörur með upppumpuðum gúmmí- |
hjólum. ;
Olíugeyma á tankbíla, frá 3000—7500
lítra.
Ennfremur allar tegundir olíugeyma til
húsa og skipa.
VIKAN
5