Vikan - 17.04.1958, Síða 9
FAGRIR MUNIR
ÚR GULLI
OG SILFRI
Sendnm gegn póstkröfu.
Guðlaugur Magnússon
SKARTGRIPAVERZLUN
Laugavegi 22 A. — Sími 15272.
Valur - Vandar- Vöruna
SULTUR — Á V AXT AHLAUP
MARMELAÐI — SAFTIR
MATARLITUR — SÓSULITUR
EDIKSÝRA — BORÐEDIK
TÓMATSÓSA — ISSÓSUR
— Sendum um allt land —
Efnagerðin Valur h.f.
Box 1313. — Sími 19795 — Reykjavík.
TRICHLORHREINSUN
(ÞURRHPEINSUN)
bj(|)rg
SDLVALLAGQTU 74 • SÍMI 13237
BARMAHLÍÐ 6 SÍMI 23337
Prjónastofan Hlín h.f.
Skólavörðustíg 18. Símar 12779 og 14508.
Prjónavörur höfum við framleitt í
síðastliðin 25 ár úr íslenzku og er-
lendu gami.
* , {
Höfum ávallt á boðstólum fyrsta
flokks vinnu, og fylgjumst vel með
tízkunni.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Ég þakka þeim sem verzlað hafa I
Sölutuminum við Arnarhól ánægju-
leg kynni, og bið þá um að beina við-
skiptum sínum í
Hreyfilsbúðina.
Pétur Pétursson.
LITLA BLIKKSMIÐJAN
Nýlendugötu 21A. Sími 16457.
Smíðar meðal annars:
Þakrennur, allar stærðir og gerðir.
Þakglugga, allar stærðir og gerðir.
Oliukassa í báta og skip.
Benzíngeyma í bíla og báta.
Loftrör, allar stærðir.
Lóðabala. Lofttúður o. fl.
frd Tnítium bœjardyrum
skrifar fyrir kvenfólkið, um
kvenfólkið og hugðarefni þess
í heimsókn hjá fjölskyldu, sem er
HEPPIN í LÍFINU
EGAR ég hef lesið um
það í blöðunum að ein-
hver samborgari minn hafi
fengið bíl eða jafnvel heilt
hús í happdrœtti, hef ég oft
hugsað um það hvilík áhrif
slíkt happ getur haft á lifn-
aðarhætti heillar fjölskyldu.
Nú hef ég fengið tækifæri
til að heimsækja eina slíka
fjölskyldu, og þar sem ég
reikna með að ykkur langi
líka til að kynnast fólki,
sem er heppið I lífinu, ætla
ég að skýra ofurlítið frá
þessari heimsókn minni.
Hér er um ræða fjöl-
skyldu Guðmundar Guðjóns-
sonar, efnisvarðar í Stál-
smiðjunni, sem fékk eitt af
húsunum í Happdrætti DAS
fyrir tveimur árum, og er
nú búin að koma sér vel fyr-
ir í nýja húsnæðinu. Af
ýmsum orsökum var húsið
ekki alveg tilbúið, þegar
dregið var um það, svo Guð-
mundur og kona hans,
Svanhildur Magnúsdóttir,
fegnu tækifæri til að haga
þar ýmsu eftir eigin höfði.
Ég hringdi bjöllunni í Ás-
garði 2, inni í Bústaða-
hverfi, og meðan ég beið
eftir að opnað yrði fyrir
mér, rak ég augun í áletr-
un á forstofuhurðinni. Þar
stendur:
3. 4. ’56 49865
og fyrir ofan er svo sand-
biásin mynd af skipi. Þetta
minnir þau hjónin, í hvert
skipti sem þau koma heim
í húsið sitt, á happadaginn,
þegar þau fengu íbúð, sem
virt var á hálfa milljón, á
happdrættisnúmerið 49865.
Þegar inn er komið, tek-
ur við rúmgóð forstofa, með
borðkrók rétt við eldhús-
dyrnar. Tvær samliggjandi
stofur eru á þeirri hæð, og
svalir út frá borðstofunni,
en af þeim er útsýni yfir
græn tún, því húsið stendur
í neðstu röð við Bústaða-
veginn. Uppi á lofti eru
þrjú svefnherbergi, öll með
góðum skápum, og stórt
baðherbergi. Ég minnist
þess ekki að hafa á síðari
árum séð svo rúmgott bað-
herbergi í nýju húsi. 1 kjall-
ara er svo þvottahús, rúm-
gott skot á ganginum fram-
an við þvottahúsdyrnar, þar
sem hægt er að ganga frá
þvotti, lítil geymsla og svo
heill salur, sem nota má
fyrir vinnustofu eða hvað
sem er. Guðmundur hefur
útbúið þarna leikherbergi
fyrir börnin og fest á vegg-
ina hljóðeinangrunarplötur,
svo að þau geti haft eins
hátt og þau lystir, án þess
að trufla nokkurn mann.
Þarna þeystu nú um á
þríhjóli og bíl þriggja ára
gamall sonur hjónanna, Við-
ar að nafni, og Halldóra
Bergljót, leiksystir hans,
sem er þar í fóstri um
stundarsakir (sjá forsíðu-
mynd).
„Viðar kunni sér ekki
læti, þegar við fluttum
hingað fyrst,“ segir Svan-
hildur. „Hann vissi ekki
hvar hann átti helzt að vera.
Það voru líka mikil við-
brigði að koma úr einu
herbergi og eldhúsi í kjall-
ara og í svona stórt hús.
Þar var svo þröngt, að við
urðum að stytta rúmið
hans um þrjá sm. til að
koma því inn í stofuna, þar
sem við sváfum sjálf á
svefnsófa.
Annars virðist litla kjall-
araíbúðin okkar hafa verið
mesta happaíbúð, því sá
sem flutti inn í hana á eftir
okkur fékk skömmu seinna
bíl í happdrætti.“
Guðmundur og Svanhild-
ur voru svo heppin að fá
happdrættishúsið, þegar
þeim lá mest á. Þau áttu í
vændum að verða húsnæð-
islaus með vorinu og voru
farin að hugsa um að reyna
að festa sér hús í smáíbúð-
arhverfinu. „En við hefðum
sjálfsagt aldrei komið því
upp,“ segir Svanhildur, „því
um líkt leyti minnkaði mjög
vinnan hjá manninum mín-
um. Og jafnvel þó við hefð-
um komið því upp, þá hefð-
um við ekki getað farið að
eignast neitt í það fyrsta
kastið."
Nú er húsið í Ásgarði 2
fullbúið húsgögnum. Þar eru
gólfteppi út í öll horn,
þvottavél með þurrkara í
þvottahúsinu, strauvél á
ganginum og yfirleitt allt
sem húsmóðir getur óskað
sér.
„Það er auðveldara að
eignast þessháttar, þegar
maður þarf ekki líka að
kaupa rammann utan um
það.“ segir Svanhildur. „Jú,
það er óhætt að segja að
húsið sé næstum fullkom-
ið. Á því er aðeins einn smá-
vægilegur galli. Þrátt fyrir
nóg húsrými allsstaðar, get
ég hvergi komið inn barna-
vagni. Kjallarainngangurinn
er of þröngur til þess.“
Uppi á lofti sefur fjög-
urra mánaða gamall snáði,
Bryngeir Guðjón, sem bráð-
um þarf að fá eitthvert
farartæki til að geta farið
að skoða sig um í veröld-
inni.
Ég spurði þau hjónin
hvort þau ættu marga happ-
drættismiða, og hvort það
hefði nokkurn tíma hvarfl-
að að þeim að sleppa mið-
unum sínum.
„Já, þegar við fórum að
hugsa til að byggja, fannst
okkur auðvitað að við þyrft-
um að spara. Við vorum þá
með miða bæði i Happdrætti
DAS og SlBS, og ákváðum
að hætta á öðrum hvorum
staðnum. Eftir miklar
vangaveltur kom okkur
saman um að sleppa heldur
miðunum í happdrætti
SlBS, en halda öllum okkar
átta miðum í hinu. Það hef-
ur komið í ljós að það var
vel ráðið. Annars höfum
við alltaf hugsað okkur að
eignast aftur miða i SlBS
happdrættinu."
Ég kvaddi þau hjónin og
þakkaði fyrir mig. 1 dyrun-
um sögðu þau mér að þau
héldu áfram að spila í
happdrætti, kváðust ekki
vera vonlaus um að þau
kynnu kannski að fá annan
vinning.
Þarna inni í Bústaða-
hverfinu er nú að rísa upp
happdrættishúsahverfi. 1
áföstu húsi býr Hannes
Guðjónsson, sem fékk sams-
konar vinning í happdrætt-
inu í fyrra, og nú er í bygg-
ingu þriðja húsið, sem
dregið var um fyrir nokkr-
um dögum. Þessi hús eru
stærstu vinningarnir í
happdrætti DAS, og þeir
eru dregnir út einu sinni á
ári. Hina mánuðina er svo
dregið um minni íbúðir,
ásamt bílum og öðrum góð-
um gripum.
Sitt af hverju tagi
® Konur munu aldrei ná
karlmönnunum, þó þær
hlaupi á eftir þeim! Þetta
eru orð Sir Adolphes
Abrahams, læknis brezka
íþróttaflokksins, sem keppa
mun á Olympíuleikjunum, í
tiJefni þess að minna bil er
nú orðið milli kvenhlaupara
og karlhlaupara. —■ Þó kon-
ur hafi staðið sig eins og
hetjur, segir hann, þá eru
þær líkamlega ófærar um
að keppa við karlmenn í
iþróttum. Skrokkurinn á
þeim er lengri, fæturnir
styttri og vöðvaminni,
hjartað minna, lungun
kraftminni og þessvegna
flytur blóðið ekki eins mik-
ið súrefni.
En því í ósköpunum
skyldu konur vera að elta
karlmenn ? Það virðist
miklu skynsamlegra að bíða
við endann á hlaupabraut-
inni.
• 1 Bandaríkjunum er
verið að gera tilraunir í því
skyni að gera venjulega skó
jafnþægilega skóm, sem
saumaðir eru eftir máli.
Innan í skónum er komið
fyrir hylki með silicone-
gúmmíi, sem lagar sig eftir
fætinum, og styður hann
jafnvel meðan hann hreyf-
ist í göngu.
Fjölskyldan í stofunni í nýja happdrættishúsinu. Guðmund-
ur, Halldóra Bergljót, Viðar og Svanhildur með Bryngeir
Guðjón.
arsenih oy
99þögw§i riáiBÍ
eftir George Godvin
SPURNIN GIN sem frú
Charlotte Bryant lagði
fyrir nágrannakonu sína,
var óvenjuleg að ekki sé
meira sagt:
„Hvað gefur maður mann-
eskju, sem maður vill losna
við?“
Þarna stóð hún í dyrun-
um á húsi sinu í þorpinu
Coombe í Devonshire, mið-
aldra, þrifleg og ekki ólag-
leg.
Hún bjó í húsinu með mann-
inum sinum, einum leigj-
anda og fjórum börnum.
Eitt barnið átti leigjandinn.
Prú Bryant var ekki orð-
vör kona. Satt að segja fór
það orð af henni í þorpinu,
að hún væri mesta kjafta-
kind. Hún lét allt f júka. Og
meðal þess sem nágrann-
ar hennar heyrðu hana
segja, voru svona setningar:
„Ég hata manninn minn“
og: „Ég vildi að ég væri
laus við hann fyrir fullt og
allt.“
Nú er það auðvitað mál,
að mörg eiginkonan tekur
hressilega upp í sig í bræði.
Hvað Charlotte Bryant við-
víkur átti hinsvegar eftir
að koma i ljós, að hún hafði
meint hvert orð af því sem
hún sagði.
1 mai þetta ár — það var
1935 — byrjaði Bryant
bóndi, sem aldrei hafði
kennt sér meins um dag-
ana, að kvarta undan las-
leika. Hann hafði miklar
þrautir innvortis, óeðlilega
háan púls og stöðug upp-
köst.
Læknir var kvaddur til og
Bryant slcánaði. En um
haustið varð hann aftur
veikur með sömu einkenn-
um. 1 þetta skipti stoðaði
læknishjálp ekki, og hinn
22. desember andaðist sjúkl-
ingurinn sárkvalinn.
Þegar eiginkona hefur
eins rækilega lýst yfir
hatri sínu til eiginmanns
síns eins og frú Bryant, er
ekki við öðru að búast en
að það skapi umtal. Og það
komust margar sögur á
kreik í Coombe þennan
vetur. Sannleikurinn er sá,
að þorpsbúar komust fljótt
að þeirri niðurstöðu að frú
Bryant hefði myrt mann-
inn sinn.
Lögreglan ákvað að rann-
saka málið, og dr. Roche
Lynch, einn frægasti glæpa-
sérfræðingur Scotland
Yard, var kvaddur til.
Af sjúkdómslýsingunni
komst dr. Lynch fljótlega
að þeirri niðurstöðu, að
margt benti til arsenikeitr-
unar. Honum lék forvitni á
að vita hvort arsenik hefði
verið geymt í húsinu.
Hann byi’jaði strax að
kanna „þöglu vitnin“ eins
og hann orðaði það: rykið
af gólfinu, öskuna úr eld-
stónni, vasana á fötum frú
Bryants.
Umslögunum fjölgaði sí-
fellt og á hverju umslagi
var áletrun sem gaf til
kynna, hvaðan innihaldið
var komið.
Þegar dr. Lynch hélt til
baka til London, hafði hann
meðferðis hvorki meira né
minna en 153 „þögul vitni“,
sem hann hugðist athuga á
rannsóknarstofu sinni.
Og á eða í eða saman við
öll þessi gögn fann hann
arsenik.
Nú var hinn látni kruf-
inn og fannst þá enn arsen-
ik. Það var ekki lengur
blöðum um það að fletta,
að banameinið hafði verið
arsenikeitrun.
Þar sem böndin byrjuðu
nú að berast að Charlotte
Bryant, var hún handtekin
og leidd fyrir rétt.
Sönnunargögnin geng frú
Bryant voru öll vísindalegs
eðlis og það féll því i hlut
dr. Lynch að skýra þau fyr-
ir kviðdómnum og sann-
færa réttinn um gildi þeirra.
Hann gerði þetta vel og
rækilega. Á borðinu fyrir
framan hann i réttarsaln-
um var safn „þögulla
vitna“: flöskur, umslög,
fatnaður. Og þessir hlutir
voru komnir þarna af því
þeir höfðu allir fundist í
húsi Bryants og í þeim öll-
um hafði fundist arsenik.
Það höfðu fundist arsen-
ikleifar í öskunni í eld-
stónni, í dós, sem búið hafði
verið að fleygja var arsenik,
í eldavélinni —- arsenik, í
gólfrykinu — arsenik, í
kápuvasa frú Bryants —
arsenikduft.
Dr. Lynch lýsti yfir, að
svo mikið hefði fundist af
arseniki í öskunni, sem tek-
in hefði verið úr eldstónni,
að þar hlyti nokkuð stórum
skammti af eitrinu að hafa
verið brennt. Auk þess hefði
fundist í innyflum manns-
ins tvöfalt stærri skæmtur
af arseniki en gefa þurfti
til þess að valda dauða.
Pramburður dr. Lynch
bar með öðrum orðum
tvennt með sér. 1 fyrsta
lagi að arsenikleifar hefðu
fundist um allt hús hins
látna. 1 öðru lagi að arsen-
ik hefði valdið veikindum
hans i mai og dauða hans
í desember. Og þar sem
sannað var, að arsenik hafði
verið geymt í kápuvösum
frú Bryants, var ljóst að
hún hafði meðhöndlað eitrið.
Verjandi hennar hélt því
fram, að ekki hefði verið
hægt að gefa Bryant jafn
banvæna skammta af ar-
seniki og raun var á, án
þess að hann fyndi hið
beiska bragð eitursins. Með
öðrum orðum, að Bryant
hefði sjálfur aflað sér eit-
ursins og tekið það inn til
þess að stytta sér aldur.
En dr. Lynch hafði átt
von á þessu. Hann sýndi nú
réttinum flösku af te og
flösku af kaffi. 1 báðum
flöskunum, tjáði hann rétt-
inum, var auk þess banvænn
skammtur af arseniki.
„Ég dreypti á flöskunum
í rannsóknarstofu minni,"
sagði hann, en fann ekkert
arsenikbragð. Það var
venjulegt kaffibragð af
kaffinu og tebragð af te-
inu.“
Þegar dr. Lynch steig
niður úr vitnastúkunni,
voru örlög frú Bryants inn-
sigluð. Hún var sek fund-
in og dæmd til dauða. Hún
áfrýjaði dóminum árang-
urslaust og var hengd eftir
að náðunarbeiðni hennar
hafði verið hafnað.
„Þöglu vitnin“ glæpa-
fræðingsins höfðu sent hana
í gálgann.
r^j
T—I
w
I I
£2
>-Cá
ÍH
:0
w
'cd
•r-j
U2
1. Mega íbúar liöfuðstaðarins þvo
gluggana sina livenær sem er?
2. Hvaða bandarískur söngleikur, 7,
sem oft er leikið úr í útvarpinu,
er byggður á „Pygmalion“ eftir
Bernhard Sliaw?
3. Hvaða löndum mundirðu sigla
framhjá, ef þú færir frá Gibralt-
arsundi til Istambúl, og sigldir
meðfram ströndinni til vinstri?
4. I Rússlandi heita menn nöfnum 9.
eins og Alexander Ivanovitch.
Hvað þýðir þetta ,,-vitch“?
5. Hver barðist við Þórð kakala á *<>4
Húnaflóa árið 1244?
6. í hvaða kvikmynd, sem gerð var
eftir sögu Pearl S. Buck, lék Paul
Muni Wang og Luisc Rainer lék
O-lan ?
Islendingar sækja nú mikið til
Majorca á sumrin. Þekkið þið
nokkrar aðrar af Baleareyjun-
um?
Hvað táknar þnð þegar „limited“
stendur fyrir aftan nöfn fyrir-
tækja ?
Hvað heitir írski flugvöllurinn
fyrir millilandaflugvélar ?
Gáta:
Snótin hefur höfuð bjan,
harðar tönnur stillir,
bryður með þeim brauðið hart,
búkinn af því fyllir.
Gerist áskrifendur
VIKUNIMAR!
8
VIKAN
VIKAN
9