Vikan


Vikan - 17.04.1958, Qupperneq 13

Vikan - 17.04.1958, Qupperneq 13
„Sjá hann? Já, vilduð þið ekki fyrst ýta aðeins á bílinn, til þess að sjá hvort hann fer í gang?“ Hún steig upp í bílinn og hermennirnir ýttu á eftir. Skyndi- lega fór bíllinn í gang. „Þakka ykkur kærlega fyrir!“ kallaði Christine. „Hæ! Leyfið okkur að sjá passann!“ kölluðu verðirnir, en Christine og Andrew voru á bak og burt. — Næsta morgun voru þau tekin til fanga. — Það var barið á hurðina klukkan fimm. Christine fór til dyra, og sagði í gamni eitthvað um það, að hún ætti eftir að borga húsaleiguna. En þau höfðu bæði átt von á þessu. Þetta voru Gestapomenn. Fjórir menn með svarta hatta, með fyrirferðarmiklar yfir- hafnir stóðu fyrir utan. Einn þeirra sagði: „Klæðið ykkur strax, bæði tvö, og komið með okkur.“ Christine og Andrew áttu alltaf von á þessari heimsókn. Þessvegna eyðilögðu þau alltaf öll skjöl, nema eina bók, sem í voru skrifuð nöfn og símanúmer og sem þau urðu að hafa á sér. „Augnablik,“ sagði Christine við foringjann. Þegar hún var komin inn í læst baðherbergið, skildi maður- inn, að hún hafði leikið á hann. Christine var í óða önn að rífa bókina í tætlur. „Komið strax út!“ skipaði hann og barði á hurðina. Það heyrðist í rennandi vatni, og Christine opnaði hurðina brosandi. Þegar hún hafði verið tekin til bækistöðva Gestapomanna, var þegar byrjað að yfirheyra hana. Christine tók nú að hósta ákaft. í einu hóstakastinu tókst henni að bíta sig í tunguna, og nú tók hún að hósta upp blóði í vasaklút sinn. Hún var nú flutt á spítala, sem Þjóðverjar höfðu umsjá með. Gamal ungverskur læknir annaðist hana. Á milli þessara uppgerðar hóstakasta, trúði Christine hon- um fyrir því að hún ætti ekki langt eftir. Hún sagðist vera pólsk greifynja, náskyld H'orthy flotaforingja, einræðisherra Ungverjalands. Hún kvað það smán fyrir Horthy, að skyldmenni hans létist í höndum Þjóðverja. „Og það sem ég er sökuð um,“ muldraði hún, „er þvætting- ur. Hvernig hefði ég átt að geta gert allt þetta í þessu ástandi?“ Læknirinn lét segjast. Og röntgenmyndir, sem af henni voru teknar, sýndu, að hún var fárveik. Þetta kom Christine á óvart. Þá rann upp fyrir henni ljós. í æsku hafði hún veikzt af völdum málmryks í verksmiðju einni. Rykið hafði farið ofan í lungun og valdið þar einhverjum sjúk- dómi, sem brátt fór batnandi. En á röntgenmyndunum líktist þetta einna helzt berklum. Menn neyddust nú til þess að leggja trúnað á sögu hennar og henni var sleppt. Og þar sem Andrew var tekinn til fanga sem samsekur henni var honum einnig sleppt.. Um kvöldið fóru þau á fund brezka sendiherrans í Buda- pest, sem var að búa sig undir að fara heim til Englands. „Þið verðið að hafa ykkur á brott þegar í stað,“ sagði sendi- herrann, Sir Owen O’Malley. Hann lét þegar útvega þeim vega- bréf. Andrew og Christine sváfu nú í síðasta sinn í íbúðinni hennar. Um morguninn stukku þau út um bakglugga niður í bíl Andrews. Andrew keyrði Christine til sendiráðsins, en hélt síðan einn áfram ferðinni. Það hafði verið ákveðið, að Chris- tine ferðaðist í sendiráðsbíl. í skógi einum nálægt borginni, skreið Christine aftur í Framhald á bls. 14 Kveneðlið var ríltt í Christine. Allt; fagurt gladdi liana. Myndin er tekin í Palestínu 1944. BRIJÐH JOIMIIM voru i nyjum nankinsfötum44 , dálkunum á 2. síðu var fyrir Iskemmstu sagt frá óvenjuleg- um hjónavígslum. 1 Bandaríkj- unum hefur komið til mála að banna þessi skrípalæti. En það eru fleiri en Bandarikjamenn, sem lát- ast þurfa að ganga í hjónaband eftir óvenjulegum leiðum. Þannig er það í frásögur fær- andi, að frönsk stúlka kom unn- usta sínum mjög á óvart í febrúar síðastliðnum, þegar hún tjáði hon- um, að það væri draumurinn henn- ar að giftast í helli. Aumingja unnustinn hafði haft kirkjubrúðkaup í huga. En allt fyrir ástina, eins og þar stendur. Hjónaefnin voru gefin saman i helli i Alpafjöllum, hundruð feta undir yfirborði jarðar. Kuldinn var svo mikill, að brúðhjónin urðu að vera dúðuð upp að eyrum —- og presturinn hríðskalf. Ein glannalegasta hjónavígsla síðari ára fór fram uppi á háum verksmiðjureykháf. Þetta var í Bandaríkjunum. Það var með naumindum að brúðhjónin og presturinn komust fyrir uppi á skorsteininum. Allmörg hjón hafa verið gefin saman í naktranýlendum; við eitt slíkt tækifæri báru brúðhjónin ekkert nema fíkjublöð en prest- urinn var með mittisskýlu úr geitarskinni. Yfir 20,000 áhorfendur voru viðstaddir, þegar franskt kærustu- par var splæst saman á þveng- mjóum streng í sextíu feta hæð. Hér var um línudansara að ræða. Presturinn stóð uppi í brunastiga, sem slökkvilið bæjarins hafði lánað. v-v-v Frakkar virðast vera gefnir fyrir sjóðvitlausar hjónavígslur. 1 vetur létu frönsk hjón gefa sig saman á vinnupalli. Þau hétu Jacques og Louisette. Þau völdu þennan óvenjulega stað af þvi þau höfðu kynnst á vinnupallinum og orðið ástfangin. Þau höfðu unnið þarna saman í nokkrar vikur við að setja gler í verksmiðjuþak. Þau mættu til vígslunnar í vinnugallanum, skáluðu í kampa- víni, veifuðu til „viðstaddra" niðri á götunni — og byrjuðu svo aftur að glerja. v-v-v Annað par fékk þá furðulegu hugmynd að láta gefa sig saman í kjaftinum á hval, sem rekið hafði á land i Kaliforníu! V-¥-V 1 New Hampshire fannst brúð- arpari það hinsvegar hið mesta snjallræði að aka upp að altarinu á mótorhjólum. Allir gestirnir mættu á mótorhjólum. Aðeins presturinn var fótgangandi. ¥-¥-¥ Hjónavígslur hafa verið fram- kvæmdar í kolanámum og trjá- toppum, og það hefur gerst oftar en einu sinni að brúðhjðn hafi verið gefin saman í loftbelg. Fyrir nítján árum datt banda- rísku pari í hug að reyna enn nýja aðferð. Þau ætluðu að láta hnýta hnútinn á meðan þau svifu til jarðar í fallhlíf. En það kom babb í bátinn. Þeim og prestinum gekk erfiðlega að halda hópinn í loftinu. Og eftir sex tilraunir urðu þau að gefast upp. vvv 1 Chicago voru brúðhjón gefin saman i feiknstórri vinámu. Ám- an var reyndar fleytifull af víni svo að brúðhjónin urðu að vera í sundfötum. Þetta var, eftir á að hyggja, ágætis auglýsing fyrir vínfram- leiðandann, sem borgaði allan kostnað af fyrirtækinu. v-v-v Ralph nokkur Steinbrage og Genevieve Norvel, sem búsett eru í Kanada, voru gefin saman í hraðbát, sem þaut með 45 mílna hraða á meðan athöfnin fór fram. Og í París létu ónafngreind skötu- hjú einhverra hluta vegna splæsa sig saman í hjólbörum. v-v-v Elisabeth Carl, þýzk stúlka, heimtaði hinsvegar að fá að mæta til kirkju á Vespu. Brúðguminn mætti svo á sinni Vespu og félag Vespu-eigenda lagði til fimmtíu gesti. v-v-v Að minnstakosti tvennar hjóna- vígslur hafa farið fram í ljóna- búri. Einhverra hluta vegna hef ur fólki líka fundist gaman að láta gefa sig saman í kafarabún- ingi á hafsbotni eða buslandi í sundlaug. v-v-v Þá eru þess allmörg dæmi, að brúðhjón hafi verið gefin saman á vinnustað. Ein slík hjónavígsla átti sér stað í Saar á síðastliðnu hausti, þegar Paula Hoffman gekk að eiga Wilhelm Chackfield. Wil- helm er verkstjóri i kolanámu og Paula stjórnar kolalyftu. Þau voru gefin saman í lyftunni. ,,Brúðhjónin“, sagði blaðið, sem átti fréttamann á staðnum, „voru í nýjum nankinsfötum, og brúður in var með hvíta slæðu undir hlífðarhjálmi sínum.“ VIKAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.