Vikan - 17.04.1958, Side 14
HÆTTULEGASTA KONA VERALDAR
verkfærageymslu bílsins. Þau urðu að treysta því, að varð-
mennimir leituðu ekki þar.
Andrew kom fyrstur að landamærunum. Hann var undir hið
versta búinn. En varðmennirnir bentu honum að halda áfram.
„Við megum ekki vera að þessu, við eigum von á brezka sendi-
herranum,“ sögðu þeir.
Bíllinn, sem Christine var í kom nú að hliðinu. Brátt voru
þou komin heilu og höldnu yfir landamærin.
Þau óku nú gegnum Júgóslavíu . . . Búlgaríu . . . til Tyrk-
lands. Nú var aðeins eitt land eftir, síðan voru þau komin í
vinahendur. Þetta land var Sýrland, en það var í höndum Vichy
herdeildarinnar frönsku, sem var Bretum óvinveitt.
Þeim var sagt, að það væri ómögulegt að fá vegabréf til
Sýrlands.
„Ómögulegt?“ sagði Christine. Hún fór nú í heimsókn til
franska ræðismannsins. Og töfrar hennar brugðust ekki í þetta
sinn.
Þegar hún yfirgaf ræðismanninn, hafði hún ekki einungis
með sér vegabréfin, heldur boðskort frá ræðismanninum. Chris-
tine og hann ætluðu að snæða saman þetta kvöld.
Framhald í nœsta blaði.
MOBÐIÐ — Framhald af bls. 5.
— Ég er feginn hennar vegna, sagði fulltrúinn. Og vegna drengsins
þeirra.
— Já, hann þarf ekki að skammast sín fyrir föður sinn. Og nú fær
unga konan tækifæri til að giftast aftur.
— Ég var ekki að hugsa um það, sagði Craddock hægt. Það veitir
þó ýms tækifæri.
— Þér ættuð að færa henni fréttirnar, fyrst þér eruð þarna staddur.
— Það skal ég gera. Ég skal fara þangað núna. Kannski það sé annars
betra að ég biði þangað til hún er komin heim. Þetta getur fengið á
hana — og auk þess vildi ég gjarnan hafa tal af annarri manneskju fyrst.
„Ég get ekki lifað lengur“
Framháld af bls. 3.
Þegar litið er á æfiferil síra Var-
ahs, virðist allt líf hans hafa verið
undirbúningur undir þetta núverandi
starf. Hann las sálarfræði og heims-
speki við háskólann í Oxford, og
ætlaði sér að verða visindamaður,
en áhugi hans fyrir mannfélaginu
kom honum til að lesa guðfræði —
ekki af því að hann vildi verða prest-
ur, heldur af því að sálarfræðin gat
ekki leyst úr öllum spurningum
hans.
Eftir að náminu lauk, skipti hann
þó um skoðun og tók vígslu. Næstu
árin var hann önnum kafinn við
venjuleg prestverk, en jafnframt
Iagði hann kapp á ýms félagsmál og
Ieiðbeiningar í sambandi við hjóna-
bandið, þangað til hann var reiðubú-
inn til að verða Samverjinn i sím-
anum árið 1953, þá fertugur að aldri.
Til allrar hamingju bauðst honum
sóknarprestsstaðan við kirkju heilags
Stephens Walbrooks í City, þar sem
aðeins eru um tuttugu heimilisföst
sóknarbörn, og hann er því að mestu
laus við hin daglegu skyldustörf
sóknarprestsins.
Fólki, sem helgar sig einhverju
málefni, hættir oft til að sökkva sér
svo niður í starfið að það útilokar
allt annað. En síra Varah á ekki
neitt slíkt á hættu. Hann er kvæntur
og á fimm börn. Og hann gætir
þess að taka sér reglulega frí frá
störfum. „Annars mundi ég brátt
verða taugabilaður sjálfur,“ segir
hann.
MANNÝGA NAUTH)
Framháld af bls. 6.
skarðinu í hlaðna veggnum. Hinum
megin sást skelft andlit Eiríks ofan
við steinana. Hann reiddi upp stór-
an bunka af blöðum. Hendin sveifl-
aðist aftur, eins og til að kasta þeim
frá sér, og Jói hugsaði: ■— Hann er
búinn að tapa vitglórunni!
Hvítu pappírsblöðin dreifðust og
lentu beint framan í bola. Hann
öskraði og rykkti upp höfðinu, en
hvíti pappírinn sat kyrr, yfir grönun-
um og framan á enninu, svo að hann
sá ekki glóru.
Meðan nautið snerist í óðum dansi,
staulaðist Jói út undan steininum og
hljóp að hliðinu.
Eirikur stóð þar skjálfandi á bein-
unum. — Mér datt ekkert annað í
hug, sagði hann. Ég bar lím á hand-
fylli af leiðarvísum. Það límir bara
alveg ágætlega.
Jói þreif töskuna upp af jörðinni.
— Komdu! Nautið getur brotið hlið-
ið. Hér er verkefni fyrir hundana.
Hann klappaði Eiríki á öxlina. — Og
við sem vorum vanir að kalla þig
dauðyfli! Komdu niður eftir. Eg skal
kaupa allt það lím, sem þú hefur
meðferðis.
Svör við „Veiztu“ á bls. 13.
1. Nei. „Gluggaþvott má ekki
framkvæma síðar en kl. 10 ár-
degis og ekki nema í frostlausu
veðri, ef þvotturinn veldur
rennsli á gangstétt eða götu og
getur valdið truflimum á annan
hátt“, stendur í lögreglusam-
þykkt Reykjavíkur.
2. My Fair Lady.
3. Spáni, Frakklandi, Monaco,
Italíu, Júgósiavíu, Albaníu,
Grikklandi og Tyrklandi.
4. Son. Maðurinn heitir Alexander
og er sonur Ivans.
5. Koibeinn ungi.
6. Góð jörð.
7. Minorca, Ibiza og Formentera
eru þær stærstu.
8. Það að ábyrgð hluthafa tak-
markist við gildi hlutabréfanna
sem hann á.
9. Shannon.
10. Kaffikvöm.
901. KROSSGÁTA VIKUNNAR.
Lárétt skýring:
1 fjarðarheiti, þf. — 13 eitt Norðurlandanna — 14 ferðalags —- 15 sjá!
— 16 nam — 18 gangþýða — 20 mannsnafn — 23 birta — 25 ilát — 27
hvíldarstaður — 28 illa unnið verk — 30 rifrildi — 31 lim — 32 verk-
færi — 34 hlutur — 36 eldur — 37 hrósar — 39 þeir eiga sér greni -—
41 seta — 42 fjöldi — 44 nafn á eyju — 46 vegvísar — 49 skop — 51
farartækið (slanguryrði) — 53 koma upp — 55 farvegur — 56 djúpur
árfarvegur — 57 gaf frá sér hljóð — 58 mjög — 60 á litinn — 62 góð-
málmur — 63 skilningsgóðar — 65 birtir — 67 viðarteinungur — 68 efni
i klæðnað — 70 gælunafn — 72 ofsakæti — 75 vinnustaður vísindamanna.
Lóðrétt skýring:
1 persónufornafn — 2 samstæðir — 3 ílátið — 4 greiddi hann við Galt-
ará — 5 ástarguð — 6 orðleysa — 7 samhljóðar — 8 kjólefni — 9 heiðar-
leg •— 10 biblíunafn — 11 skeyti — 12 eins —- 17 æviskeiðið — 18 gosefni
— 19 ávinningur — 20 nöldur — 21 börkur — 22 ekki stiga allir í það
— 24 matjurt — 26 fór yfir hana á íaufblaði einnar lilju — 28 sveit — 33
blómið — 34 næring —• 35 goð — 36 menn — 38 tengdan mann — 40 lengd-
armál — 43 manar — 44 kveðskapurinn — 45 korn — 46 íþróttafélag —
47 kali — 48 brekka — 50 flakk — 52 forsetning — 54 himintungl —
59 illgjörn — 60 gælunafn á skóla — 61 slær í ómegin — 62 sendir frá
þér gos — 64 tengds manns — 66 sú leiða lyndiseinkunn sem finnst
í gluggum og gáttum öllum — 69 tímamælir — 70 samhljóðar — 71 keyr
— 72 fangamark skóla — 73 sérhljóðar — 74 upphrópun.
Lausn á krossgátu nr. 900.
LÁKÉTT: 1 krás — 4 lóna —■ 7 glit — 10 joð — 11 mögn — 12 glóð
■— 14 að — 15 gagn — 16 seig — 17 RE — 18 haug — 19 slit — 20 vír
— 21 nælur — 23 tvær — 24 sigð — 25 otur — 26 Krím — 27 sála — 28
Rut — 29 Ivar — 30 mild — 32 kr. — 33 þrif — 34 lend —- 35 la — 36
svik — 37 bein — 38 for — 39 kókos — 41 árin — 42 vægð — 43 aðal
— 44 ítur — 45 Lára — 46 far — 47 Fram — 48 kýli — 50 bl. — 51
blak — 52 máti — 53 ká — 54 Frón — 55 sefi — 56 Ali — 57 talan •—■
59 Rósa — 60 snar — 61 utan — 62 loks — 63 einu — 64 rannsóknarstofa.
LÓÐRÉTT: 1 kjarnorkukafbátur — 2 roð — 3 áð — 4 lögg — 5 ógn
— 6 nn — 7 glit — 8 lóg — 9 ið — 11 maur — 12 geir — 13 gerð — 15
gaur — 16 slæm — 17 Ríga — 18 hlutur — 19 SVlR — 20 vild — 22
ætur — 23 traf — 24 sáld — 26 kvik — 27 sinn — 29 iris — 30 mein
— 31 barð — 33 Þvol — 34 leir — 35 loga — 36 skar — 37 brum — 38
færi — 40 óðal — 41 átak — 42 Váli — 44 Iran — 45 lýti — 47 flón —
48 káfa — 49 láir — 51 brann — 52 messa — 53 klauf — 54 flan — 55
sókn ■— 56 anno — 58 ata — 59 rok — 60 sit — 62 ló — 63 es.
Til minningar um . . .
Framháld af bls. 11
Sérstökum manni var falið
að sjá um einkennisbúning
Fritz Schurens fangabúða-
stjóra. Hann var áminntur um
að hafa reiðstígvél Schurens
(líflátinn eftir stríð fyrir
fjöldamorð) gljáburstuð og
tandurhrein, því að fangabúða-
stjórinn hafði verið einstak-
lega hégómagjarn maður.
Þegar allt var reiðubúið á
sviðinu, voru myndavélarnar
settar upp. Þegar myndatakan
hófst, tók hún þrjá daga. Þá
hafði það tekið rétta fimm mán-
uði að undirbúa þessa lýsingu
á glæp nazista gegn mannkyn-
inu. En í myndinni um Vioiettu
Szabo sjáum við þetta svið
samt aðeins í tæpar fimm mín-
útur. — ARTHUR JACOBS.
BRÉFASAMBÖND
Björn Björgvinsson (við pilta og
stúikur 17—19 ára) og Gunnar
Björgvinsson (við pilta og stúlknr
20—25 ára), báðir á Ytra-Núpi
Vopnafirði. — Guðlaug Þorsteins-
dóttir, Þemunesi (við pilta 17—18
ára), Halla Guðjónsdóttir, Katmúla
(við pilta 16—17 ára) og Jómnn Ste-
fánsdóttir, Berunesi (við piita 16—
17 ára), ailar á Reyðarfirði, S-Múl.
— Hermann T. Éinarsson, Sogamýr-
arbletti 46 (við stúlkur 13—15 ára),
Reykjavík. — Guðfinna Friðriks-
dóttir, Margrét Jóhannsdóttir, Krist-
ín B. Sigurbjömsdóttir og Margrét
Friðriksdóttir (við pilta og stúlkur
18—22 ára), allar á Húsmæðraskól-
anum á Laugalandi, Eyjafirði. — Ás-
rún Gunnlaugsdóttir (við pilta eða
stúlkur 15—17 ára), Eiríksstöðum,
Jökuldal, V-Múl, pr. Egilsstaðir.
14
VIKAN