Vikan - 21.08.1958, Side 2
Kœra Vika!
Blg er I miklum vanda og bið þig að hjálpa mér að ráða
fram úr þessu.
Í3g er 25 ára gömul og gifti mig fyrir hálfu ári, manni
sem er tveim árum eldri en ég. Hann var giftur áður
og á 2 % ár's gamla dóttur. Konan hans lenti í kananum
og fór til Ameríku, en hann fékk barnið. Mér þykir vœnt
um litlu stúlkuna eins og ég ætti hana sjálf og hún kall-
ar mig mömmu, því að hún er alveg búin að gleyma hinni
réttu móður, þvi að hún hljóp að heiman þegar telpan
var háifs árs.
En það er eitt, sem ég skil ekki. Þó að samkomulagið
milli okkar sé yfirleitt gott og mér þykji mjög vænt um
hann, gremst mér ákaflega, að maðurinn minn hefur
ennþá uppi mynd af fyrri konu sinni. Þ. e. a. s. af henni,
honum og barninu og er myndin tekin, þegar barnið var
skirt.
Eg hef reynt að tala við hann um þetta, en það gagnar
ekkert, hann segir að hann vilji hafa uppi mynd af barn-
inu á skírnardaginn. Það er kannski skiljanlegt, en nú veit
ég að það voru teknar fleiri myndir m. a. af honum ein-
um með dótturina. Ég botna ekkert í, hvað þetta á að þýða
og oft græt ég vegna þessa, þegar ég er ein.
Getur verið, að hann sé enn hrifinn af henni? Eg trúi
þvi samt varla, þvi að ég get ekki fundið annað en
það sé ég, sem hann elskar.
Segðu mér nú, Vika min, hvað ég á að gera. Viltu svara
mér eins fljótt og þú getur.
Kærar þakkir og kveðjur.
SVAR: Það eina sem þú- œttir að gera, er að taka
myndina niður og setja aðra í staðinn, þar sem hann er
einn með barnið, fyrst fleiri myndir voru teknar, en þessi
eina, þegar barnið var skirt. Ef hann er með eitthvað
múður, skaltu ekki hika við að vera ákveðin og segja
honum svikalaust, að þú látir ekki viðgangast að hann
stilli upp mynd af fyrri eiginkonu sinni. Hún hefur sjálf-
sagt ekkert gert til að verðskulda það og leitt til þess að
vita, ef hún verður alvarlegt deiluefni milli ykkar hjón-
anna.
Kæra Vika,
getur þú veitt mér upplýsingar um það, hvar er að læra
hér hjálp í viðlögum, hvað það tekur langan tíma og
hvað þátttökugjald muni kosta?
Virðingarfyllst,
Lesandi Vikunnar.
SVAR: Slysavarnarfélag íslands gengst fyrir námskeið-
um í hjálp í viðlögum öðru hverju að veturlagi. Um 200
deildir Slysavamarfélagsins um allt land hafa samskonar
námskeið á sínum vegum. Mest er kennt með kvikmynd-
um. Það er mismunandi hvað námskeiðin standa lengi.
Kostnaður fyrir þátttakendur er enginn. Það er bezt fyrir
þig að snúa þér beint til skrifstofu félagsins, Grófinni 1,
Reykjavík,
Birting á nafni, aldri og heim-
ilisfangi kostar flmm krónur.
Tom Donelly (18 ára) 2643 Sunnyfield Drive, Bridge-
ville, pa. U.S.A. Öskar eftir bréfaskriftum við ungan mann
á líku reki. Aðaláhugamál: Prímerkjasöfnun, íþróttir,
tungumál, ferðalög og Island. Uppáhaldsíþrótt: sund,
göngur, fjaligöngur og skautaíþrótt. Biður um að skrifað
sé á ensku. — Mr. Wolfgang Statz (18 ára) Schweinfurt/
Main, Satterstr. 11, Deutschland. Getur einnig skrifað
ensku. Miss Gisels Statz (13%), skrifar aðeins þýzku,
Schweinfurt/Main, Satterstr. 11. Deutschland. — Bára
Ólafsdóttir, Haugum, Mýrarsýslu, við pilta (17—20 ára).
— Katrín Magnúsdóttir, Munaðarnesi, Mýrarsýslu. Við
pilta (22—27). — Elisabeth E. Holm (13 ára), Musegt. 12,
Norge. — Gunnar Melbö (15% ára), Liland, Norge. —
Ernst Hassel (20 ára) Havna Alle 12, Blindern, Oslo,
Norge. — Villy Andersson (14 ára), Malm, Norge. —
Máifrid Lauvás, (15 ára), Box 108, Stranda, Norge. —
Jon Dobloug (14 ára), Stor-Deglum, Jessnes str., Norge.
— Ólafur Tryggvason, Sámsstöðum, Fljótshlíð, Rangár-
völlum. Við pilt eða stúlku á aldrinum 23—28 ára. —
Dísa Garðarsdóttir, Klukkulandi, Dýrafirði, V.-lsafjarðar-
sýslu. Við pilt eða stúlku á aldrinum 14—16 ára.
I’EMIMAVIIMIK
KRAFAÐl
SEINNIIBÖLLANN
ALLRI úrgangsmjólk á
Landakotsspítala er safn-
að saman í eitt heljar-
stórt ker og er hún notuð
til. að þvo gólf og ganga
einu sinni i viku. For-
ráðamenn spítalans segja
að þessi mjólkurþvottur
gefi betri raim en bón,
sem er stórhættulegt fyr-
ir sjúklinga að ganga á.
Þetta er sannkölluð ger-
nýting mjólkur.
★ ★ ★
Blöðunum flett
Hver gerir vothey
og hver gerir ekki
vothey?
Til eru hreppar þar sem
enginn bóndi gerir vothey,
og í öðrum eru þeir tiltölu-
leýga fáir. Aftur eru til
hreppar þar sem allir bænd-
ur gera vothey og gefa
skepnum sínum.
Páll Zóphoníasson.
(TlMINN 6. ágúst).
En húsfreyjan?
Staður í Staðarhverfi er
sá bær, er næst stendur
eldinum. Hefur mikinn reyk
lagt að bænum undanfarið
og er nú svo komið, að
bóndinn þar er orðinn þegj-
andi hás af reyk.
(Alþbl. 10. ágúst).
FYRIR nokkru var opnað
dvalarheimili fyrir
drykkjusjúkar konur á
vegum Bláa bandsins á
Flókagötu. Forstöðiunenn
Bláa bandsins eru flestir
fyrrverandi ofdrykkju-
menn, sem læknast hafa
af sjúkdómnum og ganga
að því með oddi og egg
að liðsinna þeim sem enn
eru á valdi Bakkusar.
Góðtemplarar i Reykja-
vík, sumir hverjir, líta
Bláa bandið hornauga og
telja gengið inn á verk-
svið sitt, en hafa þó ekki
reynst þess umkomnir að
benda á betri tillögur til
úrbóta en þeir sem komið
hafa Bláa bandinu á.
stofn.
Þegar drykkjuheimili
kvenna var vígt með við-
höfn, var boðið þangað
ýmsu stórmenni ásamt
blaðamönnum og for-
stöðumönnum Góðtempl-
arareglunnar í Reykja-
vík. Þar var meðal ann-
ars rætt um það hverjir
hefðu meiri skilning á
vandamálum ofdrykkj-
unnmanna, þeir sem
þekktu sjúkdóminn af
eigin raun eða hinir sem
aldrei hefðu smakkað vín.
Stefán Jónsson, fréttamað-
ur útvarpsins, vék sér að
Jónasi Guðmundssyni og
varpaði fram þessari
spurningu:
„Heyrðu Jónas, hvernig
ætii það sé, skyldu stúku-
menn hafa nokkra hug-
mynd um það hvernig það
er að vera edrú?"
★ ★ ★
NÝLEGA fóru hjón ein í
Reykjavík út að skemmta
sér og fengu sér duglega
neðan í því. Fóru þau
heim síðla nætur og sofn-
uðu í sínu hjónarúmi eins
og lög gera ráð fyrir. En
skömmu siðar vaknar
frúin við eitthvert þrusk,
stuggar við manni sín-
um og segir:
„Flýttu þér í burtu, mað-
urinn minn er að koma."'
Eiginmaðurinn snaraðist
fram úr rúminu í ofboði,.
skellti sér í fötin og átt-
aði sig ekki fyrr en hann
var kominn út á götu.
Gestrisið fólk í tunglinu.
Þegar gesti’ að garði bar
úr geimfari á dögunum,
fylltu kaffikönnumar
konurnar á Mánanum.
Lestrarmerkjavísur.
Karlinn standast kjassið mun
: — og !
þó Gudda klappi gömlum skrögg
H
• >
Tómas barði á :
tældur , svikum
síðan hent’ ann [ ]
í haus á ------
Rímaðar gátur.
(Ráðningar í nœsta blaði)
Hárbeitt vopn í hönd jeg fjekk
en hvergi jeg því beiti.
Hverfistein jeg gegnum gekk
gettu hvað jeg heiti.
Ó, hve jeg er orðinn sár
andann getraun þreytir.
Forðum Ægir felldi tár,
frúin þessi heitir.
Afi minn var ágætur
en ofurlítið sjervitur, ,
hagsýnn bæði og heilráður
en hann var aldrei lóðrjettur.
Isleifur Gíslason.
Vikan hefur lagt á það höfuð-
áherzlu að undanförnu að birta sem
mest af allskonar innlendu efni, enda
hefur sú orðið raunin á, að það hef-
ur náð meiri vinsældum en annað.
Nú vill blaðið beina þeim tilmælum
til þeirra, sem eiga í fórum sér smá-
sögu eða grein um innlent efni að
senda blaðinu ritsmíðar sínar.
Einkanlega þætti okkur fengur í
að fá innlendar smásögur til birting-
ar. Ritlaun eru sanngjörn.
Þeir sem hafa hug á að sinna þessu
eru beðnir að senda blaðinu efni hið
fyrsta, utanáskrift er: VIKAN, póst-
hólf 149, Reykjavík.
Ritstj.
IJtgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jökull Jakobsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.