Vikan


Vikan - 21.08.1958, Síða 2

Vikan - 21.08.1958, Síða 2
 Kœra Vika! Blg er I miklum vanda og bið þig að hjálpa mér að ráða fram úr þessu. Í3g er 25 ára gömul og gifti mig fyrir hálfu ári, manni sem er tveim árum eldri en ég. Hann var giftur áður og á 2 % ár's gamla dóttur. Konan hans lenti í kananum og fór til Ameríku, en hann fékk barnið. Mér þykir vœnt um litlu stúlkuna eins og ég ætti hana sjálf og hún kall- ar mig mömmu, því að hún er alveg búin að gleyma hinni réttu móður, þvi að hún hljóp að heiman þegar telpan var háifs árs. En það er eitt, sem ég skil ekki. Þó að samkomulagið milli okkar sé yfirleitt gott og mér þykji mjög vænt um hann, gremst mér ákaflega, að maðurinn minn hefur ennþá uppi mynd af fyrri konu sinni. Þ. e. a. s. af henni, honum og barninu og er myndin tekin, þegar barnið var skirt. Eg hef reynt að tala við hann um þetta, en það gagnar ekkert, hann segir að hann vilji hafa uppi mynd af barn- inu á skírnardaginn. Það er kannski skiljanlegt, en nú veit ég að það voru teknar fleiri myndir m. a. af honum ein- um með dótturina. Ég botna ekkert í, hvað þetta á að þýða og oft græt ég vegna þessa, þegar ég er ein. Getur verið, að hann sé enn hrifinn af henni? Eg trúi þvi samt varla, þvi að ég get ekki fundið annað en það sé ég, sem hann elskar. Segðu mér nú, Vika min, hvað ég á að gera. Viltu svara mér eins fljótt og þú getur. Kærar þakkir og kveðjur. SVAR: Það eina sem þú- œttir að gera, er að taka myndina niður og setja aðra í staðinn, þar sem hann er einn með barnið, fyrst fleiri myndir voru teknar, en þessi eina, þegar barnið var skirt. Ef hann er með eitthvað múður, skaltu ekki hika við að vera ákveðin og segja honum svikalaust, að þú látir ekki viðgangast að hann stilli upp mynd af fyrri eiginkonu sinni. Hún hefur sjálf- sagt ekkert gert til að verðskulda það og leitt til þess að vita, ef hún verður alvarlegt deiluefni milli ykkar hjón- anna. Kæra Vika, getur þú veitt mér upplýsingar um það, hvar er að læra hér hjálp í viðlögum, hvað það tekur langan tíma og hvað þátttökugjald muni kosta? Virðingarfyllst, Lesandi Vikunnar. SVAR: Slysavarnarfélag íslands gengst fyrir námskeið- um í hjálp í viðlögum öðru hverju að veturlagi. Um 200 deildir Slysavamarfélagsins um allt land hafa samskonar námskeið á sínum vegum. Mest er kennt með kvikmynd- um. Það er mismunandi hvað námskeiðin standa lengi. Kostnaður fyrir þátttakendur er enginn. Það er bezt fyrir þig að snúa þér beint til skrifstofu félagsins, Grófinni 1, Reykjavík, Birting á nafni, aldri og heim- ilisfangi kostar flmm krónur. Tom Donelly (18 ára) 2643 Sunnyfield Drive, Bridge- ville, pa. U.S.A. Öskar eftir bréfaskriftum við ungan mann á líku reki. Aðaláhugamál: Prímerkjasöfnun, íþróttir, tungumál, ferðalög og Island. Uppáhaldsíþrótt: sund, göngur, fjaligöngur og skautaíþrótt. Biður um að skrifað sé á ensku. — Mr. Wolfgang Statz (18 ára) Schweinfurt/ Main, Satterstr. 11, Deutschland. Getur einnig skrifað ensku. Miss Gisels Statz (13%), skrifar aðeins þýzku, Schweinfurt/Main, Satterstr. 11. Deutschland. — Bára Ólafsdóttir, Haugum, Mýrarsýslu, við pilta (17—20 ára). — Katrín Magnúsdóttir, Munaðarnesi, Mýrarsýslu. Við pilta (22—27). — Elisabeth E. Holm (13 ára), Musegt. 12, Norge. — Gunnar Melbö (15% ára), Liland, Norge. — Ernst Hassel (20 ára) Havna Alle 12, Blindern, Oslo, Norge. — Villy Andersson (14 ára), Malm, Norge. — Máifrid Lauvás, (15 ára), Box 108, Stranda, Norge. — Jon Dobloug (14 ára), Stor-Deglum, Jessnes str., Norge. — Ólafur Tryggvason, Sámsstöðum, Fljótshlíð, Rangár- völlum. Við pilt eða stúlku á aldrinum 23—28 ára. — Dísa Garðarsdóttir, Klukkulandi, Dýrafirði, V.-lsafjarðar- sýslu. Við pilt eða stúlku á aldrinum 14—16 ára. I’EMIMAVIIMIK KRAFAÐl SEINNIIBÖLLANN ALLRI úrgangsmjólk á Landakotsspítala er safn- að saman í eitt heljar- stórt ker og er hún notuð til. að þvo gólf og ganga einu sinni i viku. For- ráðamenn spítalans segja að þessi mjólkurþvottur gefi betri raim en bón, sem er stórhættulegt fyr- ir sjúklinga að ganga á. Þetta er sannkölluð ger- nýting mjólkur. ★ ★ ★ Blöðunum flett Hver gerir vothey og hver gerir ekki vothey? Til eru hreppar þar sem enginn bóndi gerir vothey, og í öðrum eru þeir tiltölu- leýga fáir. Aftur eru til hreppar þar sem allir bænd- ur gera vothey og gefa skepnum sínum. Páll Zóphoníasson. (TlMINN 6. ágúst). En húsfreyjan? Staður í Staðarhverfi er sá bær, er næst stendur eldinum. Hefur mikinn reyk lagt að bænum undanfarið og er nú svo komið, að bóndinn þar er orðinn þegj- andi hás af reyk. (Alþbl. 10. ágúst). FYRIR nokkru var opnað dvalarheimili fyrir drykkjusjúkar konur á vegum Bláa bandsins á Flókagötu. Forstöðiunenn Bláa bandsins eru flestir fyrrverandi ofdrykkju- menn, sem læknast hafa af sjúkdómnum og ganga að því með oddi og egg að liðsinna þeim sem enn eru á valdi Bakkusar. Góðtemplarar i Reykja- vík, sumir hverjir, líta Bláa bandið hornauga og telja gengið inn á verk- svið sitt, en hafa þó ekki reynst þess umkomnir að benda á betri tillögur til úrbóta en þeir sem komið hafa Bláa bandinu á. stofn. Þegar drykkjuheimili kvenna var vígt með við- höfn, var boðið þangað ýmsu stórmenni ásamt blaðamönnum og for- stöðumönnum Góðtempl- arareglunnar í Reykja- vík. Þar var meðal ann- ars rætt um það hverjir hefðu meiri skilning á vandamálum ofdrykkj- unnmanna, þeir sem þekktu sjúkdóminn af eigin raun eða hinir sem aldrei hefðu smakkað vín. Stefán Jónsson, fréttamað- ur útvarpsins, vék sér að Jónasi Guðmundssyni og varpaði fram þessari spurningu: „Heyrðu Jónas, hvernig ætii það sé, skyldu stúku- menn hafa nokkra hug- mynd um það hvernig það er að vera edrú?" ★ ★ ★ NÝLEGA fóru hjón ein í Reykjavík út að skemmta sér og fengu sér duglega neðan í því. Fóru þau heim síðla nætur og sofn- uðu í sínu hjónarúmi eins og lög gera ráð fyrir. En skömmu siðar vaknar frúin við eitthvert þrusk, stuggar við manni sín- um og segir: „Flýttu þér í burtu, mað- urinn minn er að koma."' Eiginmaðurinn snaraðist fram úr rúminu í ofboði,. skellti sér í fötin og átt- aði sig ekki fyrr en hann var kominn út á götu. Gestrisið fólk í tunglinu. Þegar gesti’ að garði bar úr geimfari á dögunum, fylltu kaffikönnumar konurnar á Mánanum. Lestrarmerkjavísur. Karlinn standast kjassið mun : — og ! þó Gudda klappi gömlum skrögg H • > Tómas barði á : tældur , svikum síðan hent’ ann [ ] í haus á ------ Rímaðar gátur. (Ráðningar í nœsta blaði) Hárbeitt vopn í hönd jeg fjekk en hvergi jeg því beiti. Hverfistein jeg gegnum gekk gettu hvað jeg heiti. Ó, hve jeg er orðinn sár andann getraun þreytir. Forðum Ægir felldi tár, frúin þessi heitir. Afi minn var ágætur en ofurlítið sjervitur, , hagsýnn bæði og heilráður en hann var aldrei lóðrjettur. Isleifur Gíslason. Vikan hefur lagt á það höfuð- áherzlu að undanförnu að birta sem mest af allskonar innlendu efni, enda hefur sú orðið raunin á, að það hef- ur náð meiri vinsældum en annað. Nú vill blaðið beina þeim tilmælum til þeirra, sem eiga í fórum sér smá- sögu eða grein um innlent efni að senda blaðinu ritsmíðar sínar. Einkanlega þætti okkur fengur í að fá innlendar smásögur til birting- ar. Ritlaun eru sanngjörn. Þeir sem hafa hug á að sinna þessu eru beðnir að senda blaðinu efni hið fyrsta, utanáskrift er: VIKAN, póst- hólf 149, Reykjavík. Ritstj. IJtgefandi VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jökull Jakobsson, Tjarnargötu 4, sími 15004, pósthólf 149.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.